Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 27
Edda Björgvinsdóttir kom vel til skila örvæntingu manneskiu sem hefur horfst í augu
við óbærilega grimmd og mannlega þjáningu og brotnaðJ
Miöasalan er opin kl. 13-18 og frarn
að sýningu sýningnrdaga. Sími miðasölu
opnar kl. 10 vir1<a daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is
bakka, það var stærsta eggið og
fannst mér vera sprunga á því og
fannst því rétt að taka það fyrst, það
skal tekið fram að eggið var ívið
stærra en venjuleg egg. Ég braut
það og sá að það voru tveir ungar í
því, ég sá ekki lífsmark með þeim og
voru þeir ennþá með slím á sér og
tæplega tilbúnir að koma úr egginu.
Ég henti þessu í ruslafötuna og
sé í því að það lendir í fötunni að
þetta eru tvö fóstur í mannsmynd.
Mér fannst ég spyrja einhvem sem
var nálægt mér hvort þetta gæti átt
sér stað að mannsfóstur kæmi úr
hænueggi! Ég skoðaði þetta betur
og sá að þetta voru drengur og
stúlka, þau voru dáin og áleit ég að
líklega hefði verið liðið nokkuð langt
á meðgöngu, kannski 7 mánuðir. Ég
náði mér í lítinn pappakassa og kom
þeim fyrir í honum. Mér fannst þá
þegar hér var komið að móðir mín
sem dó fyrir tæpum tveimur árum
væri komin til að aðstoða mig við
þetta og vorum við að stússa í því
að koma þessu vel fyrir og að þess-
um litlu manneskjum yrði ekki
sýnd sú óvirðing að henda þeim í
ruslið.
Ráðning
Eldhús er táknrænn staður, þar
fer sköpun fram og þar verður orka
til. Táknið má skoða bókstaflega
fyrir þá næringu sem við borðum
þar og gefur okkur kraft. Það má
líka skoða í andlegu samhengi sem
merki hugmynda og sköpunar.
Draumurinn er nokkuð tvíbentur
þar sem hann gæti verið að ýja að
bókstaflegri förgun mannslífa en
kökubaksturinn (kökur tákna and-
lega sköpun) breytir þeirri mynd í
þann raunveruleika að þú sért
hugsanlega að kasta á glæ góðum
tækifærum í lífi þínu. Það geta verið
hugmyndir (fóstur geta táknað hug-
myndir) sem þú telur ekki þess virði
að reyna enda mun þér hafa verið
kennt (móðir þín hjálpaði þér að
losa þig við fóstrin) að sinna lítt slík-
um málum. Það er svo spurning
hver þessi mál eða hugmyndir eru
og hvort ekki sé kominn tími til að
kanna og endurskoða afstöðu sína
til þeirra.
• Þeir lesendur sem viya fá drauma sína
birta og ráðna sendi þá með fullu nafni,
fæðingardegi og ári ásamt heimilis-
fangi og dulncfni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reylgavík
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is_
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 2 7
Bakverkinn burt
Bakverkina á bak og burt?
Langvinnir
bakverkir
eru meðal al-
gengustu
heilbrigðis-
vandamála.
Álitið er að
70-85% allra
fái bakverki
einhvern
tíma á æv-
inni. Á
hverju ári er talið að um 30% að
meðaltali séu með bakverki (80.000
íslendingar?). Flestir sem fá bak-
verki ná sér fljótt eða á þremur
mánuðum en 10-20% (meira en
10.000 íslendingar?) fá langvinn
bakvandamál. Bati þeirra sem fá
langvinna bakverki er oftast hæg-
ur og þeir þarfnast oft mikillar
þjónustu af heilbrigðiskerfinu.
Langvinnir bakverkir eru ein a\-
gengasta ástæða óvinnufærni. I
Bandaríkjunum eru bakverkir tald-
ir algengasta orsök minnkaðrar
færni einstaklinga innan við 45 ára
aldur, næstalgengasta orsök þess
að leitað er til læknis og þriðja al-
gengasta orsök uppskurða (1).
Orsakir bakverkja geta verið af
ýmsu tagi. Breytingar í liðþófunum
eru líklega ein algengasta ástæða
langvinnra bakvandamála (brjósk-
loss). Reykingar eru í dag taldar
meðal áhættuþátta bakvandamála.
Bakverkir eru oftast af óljósum or-
sökum (2) eða upprunaleg orsök
þeirra ekki lengur til staðar. Þetta
á m.a. við um einstaklinga sem
hafa farið í aðgerð og brjósklos
verið fjarlægt en verkirnir hafa
ekki horfið þrátt fyrir það. Ekki er
sjálfgefið að breytingar sem sjást á
röntgenmynd valdi bakverkjum og
seinni tíma rannsóknir hafa sýnt
að margir eru með brjósklos án
þess að vita af því (3).
í dag er talað um langvinna bak-
verki hafi þeir staðið lengur en I 6
vikur. Þegar kemur að meðferð og
endurhæfingu þeirra sem eiga við
langvinn bakvandamál að etja er
mikilvægt að hefjast handa sem
fyrst. Best er þó að reyna að
sporna gegn þessum vanda með
forvörnum, t.d. fræðslu strax á
grunnskólastigi.
Á Reykjalundi er sérstakt
Á Reykjalundi er sérstakt verkjasvið þar sem einstaklingar með lang-
vinna verki koma til meðferðar.
verkjasvið þar sem einstaklingar
með langvinna verki koma til með-
ferðar. Á undanförnum þremur ár-
um hefur tæplega helmingur
þeirra (48%) verið með bakvanda-
mál. Ekki gengur að meðhöndla
langvinna bakverki á sama hátt og
verki sem varað hafa skemur.
Bólgueyðandi lyf og verkjalyf geta
hjálpað til að byrja með en ekki til
lengdar. Gegn mörgum sterkari
lyfjum (morfíni og skyldum efnum)
myndar líkaminn þol og ekki geng-
ur að nota þau ef stöðugt þarf að
auka skammtana. Kappkostað er
að taka á vanda einstaklinganna
frá öllum hliðum og sérstaklega
hugað að andlega þættinum. Það
er eðlilegt að einstaklingur sem
hefur haft verki mánuðum og jafn-
vel árum saman búi við streitu,
spennu, kvíða og jafnvel þunglyndi.
Mikilvægt er að taka einnig á þess-
um þáttum því annars næst aldrei
fullkominn árangur. Meira en
helmingur þeirra sem til okkar
hafa leitað hafa þjáðst í fimm ár
eða lengur. Það verður að setja
raunhæf markmið og þau eru
sjaldnast að losna við verkina á
nokkrum vikum. Mikilvægara er að
læra að lifa með verkjunum á
besta mögulega hátt. Fræðsla er
mikilvægur þáttur í meðferðinni.
Fólki er kennd sjálfshjálp með það
að markmiði að draga sem mest úr
verkjunum. Árangurinn hefur
hingað til verið góður þegar hann
er mældur í virkni (færni). Tæp-
lega 20% þeirra sem til okkar leita
voru vinnufær við komu, en tæp-
lega 50% við útskrift. Við eftirlit
u.þ.b. ári eftir útskrift voru rúm-
lega 60% vinnandi.
I byrjun árs 2000 var gerður
samningur milli Tryggingastofnun-
ar og Reykjalundar um atvinnu-
endurhæfingu með það að markm-
iði að koma einstaklingum sem
fyrst til vinnu á nýjan leik. I þessu
skyni var myndað sérstakt svið á
Reykjalundi. Þar starfar þverfag-
legt teymi margra fagstétta. Lögð
er áhersla á að greina hæfni og
styrkleika hvers skjólstæðings.
Vinnuprófun og vinnuaðlögun fer
fram. Markmið eru sett varðandi
vinnu, t.d. að fara aftur til fyrra
starfs, skipta um starf, minnka
starfshlutfall eða afla frekari
menntunar. Læknar Trygginga-
stofnunar vísa fólki til meðferðar
eftir tillögu endurhæfingarmat-
steymis. Lítil reynsla er komin á
starfið ennþá en þessi viðbót við
endurhæfingarstarfið lofar góðu.
Heimildir:
(1) Gunnar B.J. Andersson, Epidemiological
features of chronic low-back pain. The
Lancet, vol. 354, ágúst 1999; 581-5.
(2) Peter Croft, Is life becoming more of a
pain? People may be getting more willing to
report pain. British Medical Journal, editor-
ial, 10.júní2000.
(3) Maureen C. Jensen o.fl. Magnetic reson-
ance imaging of the lumbar spine in people
without back pain. N. Engl. J. Med. 1994;
331:69-73.
Höfundar eru Gunnar K. Guð-
mundsson, yfirlæknir atvinnuendur-
hæfingarsviðs, og Magnús Ólason,
yfirlæknir verkjasviðs á Reykjalundi
endurhæfingarmiðstöð.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Oðuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Vasar
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18
ð
Pálsson
Sýningin fær frábæra dóma
Næstu sýningar:
Sun 24.09 kl. 19
Sun 01.10 kl. 19
Síðustu sýningar!
Miðasala: 568 8000
www.borgarleikhus.is
„Einhver í dyrunum stendur og fellur með leikkonunni sem velst í aðalhlutverkið og þar
brást Kristbjörgu Kjeld ekki bogalistin...það bókstaflega geislaði af henni f hlutverki
Kotbrúnar og tók hennar á persónunni voru þannig að unun var á að horfa.”
„Bjöm Ingi Hilmarsson var hka magnaður í hlutverki Vilmans...og (samleik þeirra
Kristbjargar reis sýningin hæst.” •-
„Þetta er án efa besta leikrit Sigurðar Pálssonar til þessa...frammistaða Kristbjargar Kjeld
er slík að enginn áhugamaður um leikhús ætti að iáta þessa sýningu fram hjá sér fara.”
Halldóra Friðjönsdóttir í DV 18.9.00
„...Kristfn hefúr náð því besta fram hjá öllum leikurunum...og gaman var að fylgjast með
þeím brillera, hverjum á fætur öðrum.
Kristbjörg vann ákaflega vel og fagmannlegá ur erfiðu hluiveiki..
Sigurð Karlsson hef ég sjaldan séð gera betur en hér...
Bjöm Ingi Hilmarsson var frábær í hlutverki hins unga aðdáanda leikkonunnar, svipbrigði
hans, hreyfingar og textaflutningur var af hæsta gæðaflokki.
Guðmundur Ingj Þorvaldsson var í því erfiða hlutverki að leika hina un
hans vó hárffnt jafnvægi milli hins kómíska og ínónfska sem hlutveii
Soffía Auður Birgisdóttir í Morgunblaðlnu 16.9.00
BORGARLEIKHUSIÐ