Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
LM
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 29
Hollusta hófdrykkju
Hreinsar æðar
Reuters
Áhrif áfengis á verkun lyfja gætu reynst verri en hugsanlegir kostir
hófdrykkjunnar.
HÓFLEG neysla áfengis kann að
stöðva, og jafnvel hreinsa burt
fitu sem safnast fyrir í æðum og
er lielsta orsök hjartasjúkdóma.
Er þetta niðurstaða nýrrar rann-
sóknar sem greint var frá í kana-
diska dagblaðinu The Globe and
Mail nýverið.
Yísindamenn hafa löngum vit-
að að þeim sem neyta áfengis í
hófi er síður hætt við hjartasjúk-
dómum, jafnvel þótt þeir neyti
mjög fituríkrar fæðu. Hefur
þetta verið nefnt franska þver-
sögnin, því Frakkar neyta marg-
ir kólesterólríks matar en hjarta-
sjúkdómar eru mun óalgengari í
Frakklandi en Bandaríkjunum.
Hefur þessi munur verið talinn
tengjast víni.
I nýlegu hefti læknaritsins
Alcohol: Clinical and Experíment-
aI Research greinir hópur
faraldsfræðinga við Háskólann í
Illinois í Chicago frá því að það sé
sjálft alkóhólið sem veiti vemd.
Telja vísindamennimir að
alkóhólið hafi áhrif á framleiðslu
líkamans á cytokínum, sem leiði
til ónæmisviðbragða er dragi úr
hættunni á að æðar stíflist. Cytok-
ín em prótín sem nefnd hafa ver-
ið sendiboðar ónæmiskerfisins.
Dr. Eugene Emeson, sem
stjórnaði rannsókninni, segist
telja að er fram líði stundir verði
unnt að kalla fram þessi áhrif án
þess að nota alkóhól. Þá væri
hægt að búa til lyf til þess að
meðhöndla eða koma í veg fyrir
að fita safnist upp í æðum.
í sama hefti læknaritsins segir
dr. Sam Zakhari, framkvæmda-
stjóri bandarískrar stofnunar er
rannsakar áfengissýki og mis-
notkun áfengis (U.S. National
Institute on Alcohol Abuse and
Alcoholism), að fara verði var-
lega í að túlka niðurstöður rann-
sóknarinnar.
Þar eð hjartasjúkdómar em
óalgengir hjá körlum yngri en 35
ára og konum yngri en 50 ára
njóti ungt fólk að engu leyti góðs
af áfengisneyslu. Auk þess eigi
fólk, sem þarf að taka lyf - eink-
um eldra fólk - á hættu að áfeng-
isneyslan hafi áhrif á verkan lyíj'-
anna og gæti það haft mun verri
áhrif en hugsanlegir kostir
áfengisneyslunnar.
Lj ósmynd/Reuters
Kúbveijarnir Reinaldo Cuellar (t.v.) og Roman Marrero fá sér reyk.
Nikótínnauð á
nokkrum dögum
London. Reuters.
Nýtt lyf sem slær á nikótíhlöngun
Hefur reynst
áhrifaríkt
ÞAÐ kann að taka einungis fáeina
daga að verða háður nikótíni eftir að
maður byrjar að reykja og verið get-
ur að nauðin taki völdin eftir aðeins
nokkrar sígarettur, að því er vísinda-
menn greindu nýverið frá. Stangast
þetta á við það sem áður hefur verið
talið, þ.e. að nikótínnauð nái smám
saman tökum á reykingamönnum.
í niðurstöðum rannsóknar vís-
indamanna við Háskólann í Massa-
chusetts og læknadeild Harvard-há-
skóla í Bandaríkjunum, er birtust í
ritinu Tobacco Control, segir að
„fyrstu einkenni nikótínnauðar"
kunni að koma í ljós aðeins nokkrum
dögum eða vikum eftir að byrjað er
að reykja öðru hvoru og „oft áður en
farið er að reykja á hverjum degi“.
Rannsakaðar voru reykingar um 700
bandarískra táninga á aldrinum tólf
til þrettán ára og kom í ljós að 95
þeirra reyktu að minnsta kosti eina
sígarettu á mánuði. Af þessum 95
kváðust fimm hafa farið að finna fyr-
ir einkennum nikótínfíknar eftir inn-
an við mánuð frá því að þeir byrjuðu
að reykja og 16 fóru að finna fyrir
einkennum eftir innan við hálfan
mánuð, að því er einn vísindamann-
anna, Joseph DiFranza, tjáði Reut-
ers.
Alls sögðust 60 táninganna hafa
fundið fyrir einu eða fleiri ein-
kennum nikótínnauðar. Þrjátíu og
sjö af þeim hópi sögðust hafa fundið
fyrir fyrstu einkennunum áður en
þeir fóru að reykja daglega eða byrj-
uðu að reykja á hverjum degi eftir að
hafa farið að finna til nauðar.
Vísindamennirnir sögðu að til-
raunir á músum sýndu að fjöldi
nikótínmóttakara í heilanum eykst
hratt strax eftir að annar skammtur-
inn af nikótíni hefur verið gefinn og
geri þetta að verkum að nauð geti
þróast hratt. Vísindamennirnir geta
sér þess enn fremur til, að flokka
megi fólk i þijá hópa í ljósi nauðar
þess í nikótín. í fyrsta lagi séu þeir
sem ánetjist hratt, í öðru lagi þeir
sem ánetjist hægt og í þriðja lagi
þeir sem séu ónæmir fyrir nikótín-
nauð.
FYRSTA lyfið sem hefur þau áhrif
að löngun reykingamanna í tóbak
minnkar eða hverfur er komið á
markað á Islandi. Lyfið heitir Zyb-
an en virka innihaldsefnið buprop-
ion.
Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir á
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur,
segir lyfið áhrifaríkt og að kostir
þess að losna við reykingar og nik-
ótínnauð vegi upp hugsanlegar
aukaverkanir. „Auk þess getur
Zyban stuðlað að því að þeir sem
reykja öðlist betri aðgang að þeirri
auknu þekkingu sem komið hefur
fram á síðustu árum um eðli og or-
sakir reykinga. Að skilgreina nikó-
tínnauð sem sjúkdóm er ekki leng-
ur umdeilt og tök heilbrigðisstétta
á vandamálinu eru markvissari
þegar báðum aðilum er ljóst frá
byrjun að um er að ræða langvinn-
an sjúkdóm þar sem stuttur með-
ferðarhnykkur í bjartsýnisvímu á
ekki við,“ segir hann.
Verkun ekki með vissu þekkt
Hormónið dópamín losnar úr
taugaendum i heila þegar tóbaks er
neytt og með endurteknum reyk-
ingum verður þetta aukna magn
hormónsins hið „eðlilega“ ástand
heilans. „Dópamín losnar m.a. þeg-
ar fólk hefur borðað góðan mat í
hópi vina og þegar kynlíf er stund-
að og veldur velliðan,“ segir Þor-
steinn. „Hormónið losnar í mun
meira magni þegar nikótíns er
neytt.“
Dópamínstyrkurinn fellur á milli
þess sem reykt er og við það fær
reykingamaðurinn fráhvarfsein-
kenni og löngunin i nikótín vaknar.
Ekki er vitað með vissu á hvern
hátt lyfið dregur úr tóbakslöngun.
Þó er vitað að Zyban kemur í veg
fyrir endurupptöku dópamíns í
taugaendunum og er talið líklegt að
í því sé galdurinn fólginn. Breyt-
ingar á magni enn annars hormóns,
svonefnds nóradrenalíns, eru taldar
minnka fráhvarfseinkenni.
Áhrifa lyfsins fer að gæta um
viku eftir að byrjað er að nota það
og er reykingafólki því ráðlagt að
byrja að taka það inn í a.m.k. 7
daga áður en það haéttir alveg að
reykja.
Niðurgreitt í Bretlandi
Áhrif lyfsins á taugakerfið eru
háð lyfjaskammtinum sem tekinn
er þannig að líkur á aukaverkunum
aukast með stærri skammti. Helstu
aukaverkanir eru þær sömu og af
ýmsum þunglyndislyfjum, svo sem
munnþurrkur og svefnleysi. Sjald-
gæfari aukaverkanir eru maga-
verkir, truflun á einbeitingu, hroll-
ur, höfuðverkur, svimi og sviti. Auk
þess hefur lyfið áhrif á verkun ým-
issa annaira lyija t.d. annarra
þunglyndislyfja og sumra hjarta-
lyfja. „Hægt er að minna líkur á
svefntruflunum m.þ.a. taka seinni
töfluna af þeim tveimur sem teknar
eru inn dag hvern 1-2 tímum fyrr,“
segir Þorsteinn. Töflurnar eru
hannaðar þannig að lyfjaefnið losn-
ar hægt út í blóðið og segir Þor-
steinn að það minnki líkur á auka-
verkunum á borð við krampa. „Þeir
sem hafa sögu um krampa eða eru
flogaveikir mega ekki nota lyfið.“
Tímaritið British Journal of
Medicine birti í fyrra niðurstöður
úr samanburðarrannsókn sem gerð
var á lyfinu, lyfleysu og nikótínlyfj-
um. Þegar eitt ár var liðið frá því
að rannsóknin hófst voru 30,3%
þeirra sem fengu lyfið enn reyk-
laus en rúmlega 15% þeirra sem
fengu platlyf og ríflega 16% þeirra
sem fengu nikótínplástur. Rann-
sóknin var tvíblind og voru þátttak-
endur 893 reykingamenn. Árang-
urinn var mældur m.þ.a. miða við
þá sem voru í reykbindindi á hveij-
um fylgitíma en ekki sem samfellt
reykbindindi. Heimilislæknir í
Bretlandi segir í bréfi, sem hann
sendi tímaritinu í sumar skömmu
eftir að lyfið fékk markaðsleyfi í
Bretlandi, að þátttakendurnir
hefðu fengið mjög mikla ráðgjöf
meðan á rannsókninni stóð, m.a. í
formi einkaviðtala og símaviðtala.
Dregur hann mjög í efa að hægt sé
að veita almenningi sömu þjónustu
og að þess vegna sé ekki von til
þess að árangurinn verði eins góð-
ur og rannsóknin gefi til kynna.
Hann telur að nýja lyfið gæti vel
reynst góð viðbót við þær aðferðir
sem til eru en viðrar um leið þá
skoðun sina að aukaverkanir á borð
við krampa sé vart hægt að þola
þegar „lífsstílslyf“, eins og hann
orðar það, á borð við þetta er ann-
ars vegar.
Zyban er lyfseðilsskylt. Segir
Þorsteinn að mánaðarskammtur af
lyfinu kosti 9.000 krónur hér á
landi en um 600 krónur í Bretlandi,
þar er lyfið niðurgreitt til að stuðla
að reykbindindi sem allra flestra.
n v v c y s 1 ij n n v r ný verslun í Faxafeni 9 s_t_a ö_u_r n v i a r v n r u r n v r s t í 1 1
l o p 1 F a x inni iö laugardag 10 - afeni 9 • s í m i 551 1 1 6 0 8 8