Morgunblaðið - 23.09.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 33
LISTIR
Opnunaratriði 38. kvikmyndahátíðarinnar í New York, sem hófst í gærkveldi, var frumsýning á mynd Lars von
Trier ,,Myrkradansarinn“. Björk Guðmundsdóttir leikur aðalhlutverkið í myndinni, en eins og flestum er kunn-
ugt hlaut hún gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor fyrir frammistöðu sína. Björk hefur fengið mikið
lof fyrir leik sinn í bandarískum blöðum þó myndin fái almennt misjafna dóma.
„Myrkradansarann““. Hann segir
ennfremur að þrátt fyrir að myndin
hafi unnið til gullpálmans sé hún
„einhver sundurgerðarlegasta fóls-
un sem nokkurn tíma hafi borið fyrir
augu áhorfenda“.
Tónlist Bjarkar vinnur vel inn-
an samhengis myndarinnar
Nýjasta tölublað tímai'itsins Emp-
ire gerir myndinni nokkur skil og
fjallar meðal annars um tónlist
Bjarkar. Þar segir gagnrýnandinn
Kim Newman að Björk smeygi sér
fyrirhafnarlítið í hlutverk hinnar
tékknesku Selmu og sé „framúrskar-
andi í ákaflega erfiðu hlutverki, þar
sem hún lokar sjálfa sig af í raun-
veralegu og táknrænu fangelsi
vegna ástar sem hún getur ekki tjáð
Björk Guðmundsddttir í hlutverki Selmu, „sem lokar sig af í raunverulegu og táknrænu fangelsi vegna ástar sem hún getur ekki tjáð með orðum“.
Björk framúrskarandi í
ákaflega erfíðu hlutverki
með orðum“. Newman telur tónlist
Bjarkar vinna vel innan þess sam-
hengis sem myndin markar henni þó
hin óvenjulega rödd hennar „njóti
sín ekki sem skyldi, jafnvel í þessari
ólíkindalegu söngvamynd". Hann
minnist sérstaklega á flutning
Bjarkar á laginu „My Favourite
Things" úr „Tónaflóði“, þar sem hún
færir lagið að sínum persónulega
stíl, fyrst á fyndnum nótum, en að
lokum þannig að áhrifin ganga mjög
nærri tilfinningum áhorfandans.
í grein sem birtist í gær á frétta-
vef New York Times segir að heimur
„Myrkradansarans" feli ekki í sér
neinn vonarneista, hann sé alveg
„snauður af farsælum málalyktum".
Greinarhöfundurinn A.O. Scott er
ekki eins afdráttarlaus í dómum sín-
um um kvikmyndina og flestir aðrir,
hann telur hana undarlega samsuðu
snilldar og lágkúru. Hann segir
myndina „hvorttveggja óendanlega
lélega og að sama skapi ómótstæði-
lega yfirþyrmandi". „í einu og sama
atriðinu getur hún látið áhorfandann
standa á öndinni af hrifningu og
hrylla sig af viðurstyggð." Hann ráð-
leggur áhorfendum að mæta á sýn-
inguna „með vasaklút í annarri hendi
og rotinn tómat í hinni“.
Finnur upp nýja tegund
kvikmyndaleiks
Umsögn hans um leik Bjarkar er
þó mjög hástemmd, enda segir hann
Lars von Trier enn einu sinni hafa
tekist að laða fram hjá aðalleikonu
sinni leik sem nálgist það að vera
kraftaverk. Hann líkir Björk við leik-
konuna Emily Watson í „Brimbroti",
„þar sem hún virðist í þessari frum-
raun sinni. sem kvikmyndaleikkona
hafa fundið upp nýja tegund kvik-
myndaleiks, ef ekki nýja tegund
mannveru". Scott ber saman hlut-
skipti kvennanna tveggja sem eru
aðalpersónur „Myrkradansarans"
og „Brimbrots" og segir Björk og
Watson leika lík hlutverk, því báðum
þeim persónum sem þær leika sé
fómað á altari vitsmunalegi’ar sann-
færingar af verstu gerð. I lokaorðum
greinarinnar segir hann að vera
megi að „hin raunverulegu átök sem
maður verður vitni að á tjaldinu hafi
verið á milli Bjarkar og Lars von
Trier, á milli listrænnar sannfæring-
ar og fagurfræðilegrar kaldhæðni".
Það er erfitt að dæma hvort þeirra
hefur vinninginn, segir hann, „og
ómögulegt að beina augunum annað
en á tjaldið. „Myrkradansarinn" er
sterklega lituð af kvalalosta, en
myndin varpar jafnframt fram þeirri
spurningu hvort kvalalosti geti þrátt
fýrir allt, verið ein tegund ástar.“
Dramatískur
ARÍUR og sönglög eftir Handel,
Monteverdi, Elgar, Brahms og Off-
enbach eru meðal þess sem mezzó-
sópransöngkonan Inga Björg
Stefánsdóttir hefur valið á efnis-
skrá tónleika sinna í
Langholtskirkju í dag kl. 16. Þá
mun hún einnig taka þrjú fslensk
sönglög; „f Qarlægð“, „Vögguljóð á
hörpu“ og „Vorvísu“ - og þrjú
spænsk eftir Manuel de Falla. Ólaf-
ur Vignir Albertsson leikur með á
píanó, Helga Þórarinsdóttir á víólu
og einnig mun Valgerður Guðna-
dóttir sópransöngkona syngja einn
dúett með Ingu.
,„,Sjávarmyndir“ eftir Edward
Elgai- eru mitt uppáhald og á tón-
leikunum ætla ég að flytja þrjú lög
af fimm - en seinna dreymir mig
um að flytja allan ljóðafiokkinn
með hljómsveit," segir hún.
Aðspurð segist Inga vera drama-
tískur mezzósópran, en það þýði að
hún syngi helst vinnukonu- og
hjúkrunarkonuhlutverk. „Minn
búningur er kartöflupoki," segir
hún. „Meðan hinar stelpurnar eru í
fínum kjólum með uppsett hár er ég
alltaf ómáluð með hárið út í loftið."
mezzósópran í kartöflupoka
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Inga Björg Stefánsdóttir mezzósópran og
Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari.
Inga hóf söngnám hjá Guðmundu
Elíasdóttur nítján ára gömul, fór
svo í Söngskólann í Reykjavík til
Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og
lauk þaðan áttunda stigi. Síðastlið-
in tvö ár hefur hún verið við nám í
Konunglegu tónlistarakademíunni f
Lundúnum. Til stóð að Inga héldi
útskriftartónleika sína frá Konung-
legu akademíunni í júní
sl. en þar sem hún lenti í
því að fá hnút á radd-
böndin varð hún að
frestaþeim til næsta
vors. „Ég hafði sungið
eins og brjálæðingur
marga klukkutíma á dag
og tekið að mér alltof
mörg verkefni - mitt
vandamál er að ég get
ekki sagt nei,“ segir
Inga. Hún bætir við að
ástæðan fyrir radd-
bandahnútnum hafi ein-
faldlega verið of mikið
álag, hún hafi ekki beitt
röddinni og líkamanum
rétt. Hún er nú farin að
læra Alexander-tækni
hjá Sverri Guðjónssyni
söngvara til þess að koinast hjá því
að lenda í sömu gryfjunni aftur. Ut-
skriftartónleikamir verða í júní
næstkomandi cn Inga heldur að
öðru leyti sínu striki og heldur tón-
leika hér heima til að kynna sig og
hyggst svo syngja fyrir á ýmsum
stöðum, taka þátt í keppnum og
þreifa fyrir sér.
GAGNRYNENDUR eru ekki á einu
máli um ágæti myndar Lars von
Trier „Myrkradansarinn" sem
frumsýnd var í New York í gær-
kveldi, en svo virðist sem flestir
þeirra álíti hana misheppnaða til-
raun til að ögra áhorfendum og
sýndarheimi hefðbundnari kvik-
mynda. AJlir virðast þó ljúka lofsorði
á leik Bjarkar Guðmundsdóttur í
hlutverki Selmu, aðalpersónu mynd-
arinnar.
Jami Bemai’d gagnrýnandi blaðs-
ins Daily News segir að Lars von
Trier „misstígi sig á yfirdrifinn og
ömurlegan máta í dansinum", og að
vera megi að „áhorfendur á
frumsýningu skarti sínu fínasta
pússi en keisarinn sé samt sem áður
allsnakinn". Umsögn hennar um
Björk er þó á öðrum nótum en Bern-
ard segir það líklega ekki alveg úr
lausu lofti gripið að Björk hafi fengið
gullpálmann fyrir að komast vel frá
svo tilfinningalega krefjandi hlut-
verki, án nokkurrar þjálfunar.
A fréttavef New York Post heldur
Jonathan Foreman því fram að hinn
umdeildi tónlistarharmleikur Lars
von Trier sé rusl í dulargervi listar,
og „ef það væri ekki fyrir frábæra
frammistöðu aðalleikkonunnar, ís-
lensku poppsöngkonunnar Bjarkar,
þá væri varla hægt að horfa á
MYNDLISTASKOLINN
THE REYKJAVÍK SCHOOL OF ART
I REYKJAVIK
HRINGBRAUT 121 • 107 REYKJAVÍK « SÍMI 551 1990
Barnadeild í Gerðubergi
Breiðholti
Enn er hægt að koma nokkrum börnum að í
6-10 ára hópi á þriðjudögum kl. 15:15 -17:00
10-12 ára hópi á miðvikudögum kl. 15:00-17:15
Kennarar: ína S. Hallgrímsdóttir og Brynhildur Þorgeirsdóttir
Upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans að
Hringbraut 121, sími 551 1990 og 551 1939