Morgunblaðið - 23.09.2000, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
____________________________
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Freistingarnar, vilja-
styrkurinn o g vaninn
HVILIKUR vilja-
styrkur segja vinkon-
ur Ásu þegar hún af-
þakkar sneið af
súkkulaðimarengs-
rjómatertunni. Hún
baðar sig í hrósinu þar
til á miðnætti þegar
hún laumast í eldhúsið
og sporðrennir síðustu
'ál) Nóa konfektmolun-
um sem urðu afgangs í
matarboðinu í gær-
kvöldi.
Bara 3 kílómetra í
dag sannfærir Bára
sig um um leið og hún
treður sér í jogging-
buxurnar og gerir sig klára í
skokkið í hádeginu en endar í stað-
inn með hamborgara og franskar í
poka - og risavaxið samviskubit
það sem eftir lifir dags.
Síðasta sígarettan tilkynnir
Tómas með stolti og kveikir í henni
úti á afmörkuðu reykingasvæðinu.
Honum er þó ljóst, eftir að hafa út-
skrifast fimm sinnum áður af
-„'Haettu að reykja“ námskeiðum, að
hann getur ekki treyst sínum eigin
orðum.
Það er fátt sem dregur sjálfs-
ímynd okkar meira niður en þegar
okkur bregst viljastyrkurinn og við
stöndum ekki við okkar eigin
markmið. Ef okkur aðeins tækist
að vera nógu ákveðin tækist okkur
að losna við slæma ávanann eða
þessi 10 kfló til að komast loksins í
gott form. Þegar okkur mistekst
fellur sjálfstraustið hratt niður og
okkur finnst við aumingjar sem
ékkert geta.
Því miður er staðreyndin sú að
við höfum sjaldan eða aldrei haft
meiri þörf á viljastyrk. Freistingar
eru alls staðar. Ódýr, fituríkur og
hitaeiningaríkur matur er hvar-
vetna innan seilingar og þjóðin
fitnar, ekki aðeins við fullorðna
fólkið heldur hafa íslensk börn
aldrei verið feitari. Aðeins um 25-
30% þjóðarinnar stundar einhverja
hreyfingu og færri stunda hana
reglulega. Þegar kemur að því að
bæta okkar eigin heilsu virðist
gamli góði viljastyrkurinn duga
skammt.
Að treysta í blindni á að við losn-
um undan slæmum ávana með
'Viljastyrkinn einan að vopni er eins
og að trúa því að peningarnir vaxi
á trjánum. Til að gera varanlegar
breytingar á lífsstíl þurfa breyting-
arnar að verða að vana. Að nota
viljastyrkinn og segja nei er ekki
langtímalausn. Við þurfum að til-
einka okkur smám saman nýjar
venjur sem við erum sátt við, að
öðrum kosti eru þær ekki komnar
til að vera.
Flestir sem hyggjast taka sig á
varðandi heilsuna byrja of geyst.
Svelta sig í heilan dag, hamast á
hlaupabrettinu í fleiri klukkustund-
ir eða taka með trukki nýja „tísku-
kúrinn“. Þetta fólk hefur sannað að
það býr yfir viljastyrk en hvernig
Ágústa Johnson
er staðan eftir 10
daga - líklegt er að þá
hafi þau snúið hratt
og vel aftur til sinna
fyrri venja. Vilja-
styrkur virkar ekki
nógu vel því hann er
of líkur refsingu. Það
er mannlegt eðli að
þrá það sem við ekki
getum fengið.
Ákvörðunin um að
hugsa vel um heilsuna
er ákveðin binding.
Þú hefur skyldum að
gegna gagnvart
sjálfri/um þér, að
standa við ákvörðun
þína. Þegar þú hefur tekið ákvörð-
unina getur þú byrjað að skilgreina
hvað það er sem stendur í vegi fyr-
ir því að þú náir árangri og í fram-
haldi af því unnið að því að yfir-
stíga hindranirnar.
Byrjaðu á þvi að fylgjast með því
sem þú ert að gera nú þegar svo þú
hafir eitthvað til að miða við þegar
þú berð saman við árangur þinn.
Því næst geturðu sett þér markmið
en þau verða að vera raunsæ,
skammtímamarkmið sem auðvelt
er að ná. Því fleiri markmiðum sem
þú nærð því ánægðari ertu með
sjálfan þig og ferð að líta á þig sem
einstakiing sem gengur vel og nær
árangri.
Ef markmið þitt er að lækka kól-
esteról í blóði gætirðu byrjað á ein-
Heilsa
Til að gera varanlegar
breytingar á lífsstíl, seg-
ir Ágústa Johnson,
þurfa breytingarnar að
verða að vana.
földum markmiðum svo sem að
sleppa öllu rauðu kjöti tvo daga í
viku. Fylgstu með hvernig það
gengur. Gastu staðist freistingarn-
ar þessa tvo daga? Ef ekki, þá af-
hverju? Gerðir þú e.t.v. þau mistök
að fara á uppáhaldshamborgara-
staðinn og panta þér salat? Lykill-
inn að árangri er að finna leiðir
sem virka fyrir þig. Reyndu að
koma í veg fyrir að freistingarnar
séu beint fyrir framan nefíð á þér.
Árangurinn sem þú nærð veitir þér
svo hvatningu um að ná enn frekari
árangri. Eftir dálítinn tíma þarftu
svo ekki lengur að hugsa um þínar
nýju betri venjur. Þegar þú ert
búin/n að skokka í hádeginu 3 sinn-
um í viku í 3 mánuði hættir þú að
hugsa um hvort þú getir það eða
ekki. Þú gerir það einfaldlega. Þá
hugsa hinir, hvílíkur viljastyrkur.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Má seinka elli-
hrörnun heilans?
ÞEGAR fólk fer að
eldast fara stundum að
koma fram einkenni frá
heila sem einu nafni
eru nefnd elliglöp.
Þetta lýsir sér oft sem
persónuleikabreyting-
ar og minnisleysi, eink-
anlega á nýliðna at-
burði. Á undangengn-
um ámm hefur sú
tegund elliglapa sem
nefnd er alzheimer-
sjúkdómur mikið verið
í sviðsljósinu. Hjá alz-
heimersjúklingum
virðist sem mjög dragi
úr virkni taugaboðs-
efnisins acetyl-kólíns, sem vitað er
að tengist minni, ásamt því að prót-
ein-efni sem nefnt er amyloid sest í
vissa staði í heilanum. Einnig finnst
meira ál í heila látinna alzheimers-
sjúklinga en í heila einstaklinga sem
dáið hafa úr öðrum sjúkdómum.
Af þessum sökum hefur fólk verið
varað við að sjóða súran mat í álpott-
um, en sýra leysir upp ál í matarílát-
um úr áli sem þá blandast matnum
sem soðinn er. Einnig er full ástæða
til að vara við sýrubindandi maga-
lyfjum sem stundum innihalda mikið
af áli í forminu alúmíníum-oxíð eða
hydroxíð.
Ennþá er þó ekki talið fullsannað
að ál eigi þátt í alzheimersjúkdómi,
þó að nýlegar kannanir bendi ein-
dregið til þess.
Það var þó ekki þetta sem ég ætl-
Ævar Jóhannesson
aði aðallega að ræða í
þessum greinarstúfi.
Fyrir nokkru kom _ á
markaðinn hér á ís-
landi efni sem talið er
að seinkað geti öldrun-
areinkennum í heila í
allt að 10 ár, sé það rétt
notað. Þetta efni heitir
fosfatidyl-serin, sem ég
hér eftir nefni f-serin.
F-serin tilheyrir
efnaflokki, sem nefnd-
ur er fosfólípíðar og er
uppistaðan í fituefni
sem nefnt er lesitín.
Venjulegt lesitín t.d. í
eggjarauðum eða í
sojabaunum inniheldur þó sáralítið
af f-serin og aðeins í heila manna og
dýra finnst efnið í nokkru teljandi
magni.
Augljóst er að það gegnir veiga-
miklu hlutverki í frumuhimnum
heilafrumnanna en fosfólípíðar eru
meginefni allra frumuhimna. Þess
vegna fóru vísindamenn að gera til-
raunir með f-serin, unnu úr heila
nautgripa, á fólki með ýmiskonar
heilabilun.
Árangurinn varð fljótlega mjög at-
hyglisverður, en skömmu síðar kom
kúariðan upp í Englandi og allar til-
raunir með vörur unnar úr heila
nautgripa lögðust niður.
Þá var farið að huga að hvort ekki
mætti vinna f-serin úr soja-lesitíni.
Lítið sem ekkert er af því í soja-lesi-
tíni óbreyttu en með því að umbreyta
Fjármögnun smávirkjana
TOLUVERÐ um-
ræða hefur verið að
undanförnu um litlar
vatnsaflsvirkjanir og
hugsanlega tengingu
þeirra inn á dreifikerfi
RARIKS. Varhuga-
vert er að byggja upp
of miklar væntingar
hjá mönnum því enn
eru margir þættir
málsins ófrágengnir
eins og t.d. fjármögn-
unin, kostnaður við
flutning og tengingu
raforkunnar við dreifi-
kerfið o.fl. Ýmsar
hindranir eru því í
veginum sem stjórnvöld geta beitt
sér fyrir að lagfæra. Sem innlegg í
þá umræðu eru eftirfarandi hug-
leiðingar settar fram:
Fjármögnun
í dag er enginn einn ákveðinn
aðili sem fjármagnar stofnkostnað
vegna smávirkjana og engar sér-
reglur eru í gildi vegna þeirra hjá
þeim aðilum sem hægt er að leita
eftir fjármagni hjá. Það er ljóst að
hér er um langtímafjárfestingu að
ræða sem kallar á langtímafjár-
Einar Pálsson
Kópalind 4 - Opið hús
4ra herb. 122 fm gullfalleg
íbúð á 1. hæð í þessu glæsi-
lega húsi. íbúðin er með sér-
inng. og skiptist i stofu, 3 góð
svefnherb., eldhús, baðherb.,
þvottaherb. og forstofu. Allar
innréttingar mjög vandaðar og
fallegar (kirsuberjaviður).
Parket og flísar á gólfum. Af-
girtur ca 50 fm sólpallur. Ný
fullgerð glæsieign fyrir vandláta kaupendur. Góð lán.
Margrét og Hörður taka vel á móti áhugasömum kaupend-
um frá kl. 14.00—18.00 í dag og á morgun.
FASTEIGNASALAN GARfiUR, S. 562-1200, 862-3311 ..
*
mögnun. Jafnframt
má ekki eingöngu
miða fyrirgreiðslu við
þá sem hyggjast selja
raforku inn á lands-
netið heldur þarf einn-
ig að líta til annarra
atriða eins og virðis-
aukningar heima fyrir
með nýjum atvinnu-
tækifærum, kostnað-
arlækkunar vegna eig-
in raforkuframleiðslu
og þrífösunar raf-
magns á ákveðnum
svæðum sem ekki
hefðu að öðrum kosti
aðgang að slíku. At-
vinnuþróunarsjóður Suðurlands
hefur litið á málið sem mikilvægt
byggðamál sem styrkt getur bú-
setu víða í dreifbýlinu og bætt upp
að einhverju leyti tekjuskerðingu
sem bændur hafa orðið fyrir vegna
samdráttar í hefðbundnum búskap.
Til að þessum markmiðum verði
náð er mjög mikilvægt að það tak-
ist að skapa viðunandi lagalega og
rekstrarlega umgjörð um málið.
Það er ljóst að ef nánast allar
tekjur slíkra smávirkjana fyrstu
10-15 árin fara til greiðslu vaxta og
afborgana lána yrði slíkt ekki til að
auka ráðstöfunartekjur viðkomandi
aðila á því tímabili.
Eg tel að skilvirkasta leiðin til að
standa að fjármögnun smávirkjana
sé sú að hún verði á einni hendi
með svipuðum hætti og gert var
með raforkulögum sem sett voru
árið 1946. í kjölfar þeirra laga var
Orkumál
Líta verður á framlag
stjórnvalda til smá-
virkjana, segir Einar
Pálsson, sem framlag til
byggðamála og
umhverfismála.
stofnaður „Raforkusjóður“ sem síð-
ar var breytt í Orkusjóð. í fyrstu
kæmu tveir kostir til skoðunar,
annars vegar að breyta aftur lög-
um um Orkusjóð eða þá að setja
sérstök lög um „Smávirkjanasjóð“.
Markmiðið væri að veita þeim aðil-
um sem hyggjast reisa og reka
vatnsaflsstöðvar upp að ákveðinni
stærð, til eigin nota og/eða til raf-
orkusölu inn á dreifikerfið (lands-
netið), hagstæð 30-40 ára langtíma-
lán með 3-4% vöxtum og jafnframt
að veita sömu aðilum styrki. Með
þessu móti sætu allir við sama borð
hvað varðar fjármögnun hvort sem
virkjunaraðilinn væri bóndi, sveit-
arfélag eða landeigandi sem ekki
er á lögbýli. Miðað yrði við að láns-
hlutfall yrði 65-70% af heildar-
stofnkostnaði og styrkir um 10-
15%. Fjármögnun slíks sjóðs gæti
verið með eftirfarandi hætti:
a) Nýtt fjármagn af fjárlögum
(Byggða- og umhverfismál).
b) Tilfærsla á fjármagni frá þeim
aðilum sem veita fjármagn til þess-
m
Afsláttur í september
af barnamyndatökum
B*»)l»^FjðLSKVLDIl
Núpalind 1 Sfmi 564 6440
www.ljosmyndir.net
ara verkefna s.s. Lánasjóðs land-
búnaðarins, Framleiðnisjóðs og
Byggðastofnunar.
c)Tilfærsla á hluta þess fjár-
magns sem ætlað er til niður-
greiðslu á rafmagni fyrir fólk í
dreifbýli til húshitunar og al-
mennra nota.
Eðli málsins samkvæmt heyra
málefni smávirkjana undir iðnaðar-
ráðuneytið og því eðlilegt að fjár-
mögnunarþátturinn geri það líka.
Þriðji kosturinn væri að Byggða-
stofnun sæi um lán- og styrkveit-
ingar til smávirkjana enda heyrir
stofnunin undir iðnaðarráðherra
eins og Orkusjóður. Náist ekki
samstaða um neinn af þessum
þremur kostum þarf að skoða það
að færa fjármögnunina undir
Lánasjóð landbúnaðarins eða
Framleiðnisjóð. Aðalatriðið er að
fjármögnunin sé á einni hendi.
Á árinu 1998 voru 196 einka-
reknar vatnsaflsrafstöðvar hér á
landi og var heildaraflið um 4MW.
Talið er að hægt sé að framleiða
a.m.k. 50-60 MW með smávirkjun-
um eða sem nemur stærð Nesja-
vallavirkjunar eða % Sultartanga-
virkjun. Takist að ná samstöðu um
þá stefnumörkun að á næstu 5 ár-
um (2001-2005) aukist
raforkuframleiðsla smávirkjana úr
4 MW í 10 MW þarf að tryggja
nægjanlegt fjármagn til að slíkt sé
raunhæft. Hugsanleg fjárþörf
slíkrar aukningar er eftirfarandi ef
miðað er við að stofnkostnaður
verði 120 þús.kr/kW.:
Hcildarljárþörf:
(6.000 kW x 120.000) 720 mkr.
Lánsfé (65%) 468 mkr.
Styrkir (15%) 108 mkr.
Eigin fjármögnun ( 20%)144
mkr.
Fjármagn til styrkja og lánveit-
inga þyrfti því að vera um 576 mkr.
á tímabilinu eða um 115 mkr. á ári
að meðaltali. Ef gengið er út frá
því að vextir af lánunum verði 3,5%
í stað 6,8% sem nú bjóðast hjá
Lánasjóði landbúnaðarins verður
viðbótarkostnaður 15,5 mkr. á ári.
Setji menn markið hærra og
miði við að raforka framleidd í