Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 49
-------------------------y
UMRÆÐAN
Öldrun
í ljós kom, segir Ævar
Jóhannesson, að þetta
lesitín gat snúið við
margs konar öldrunar-
einkennum í heila gam-
als fólks.
því með ensímum úr hvítkáli eða
bakteríum tókst að fá lesitín með
mjög hátt innihald af f-serín. f ljós
kom að þetta lesitín gat snúið við
margs konar öldrunareinkennum í
heila gamals fólks. Sérstaklega er
það talið geta bætt lélegt skamm-
tímaminni og jafnvel ungt fólk er tal-
ið hafa gagn af að nota það, ef
skammtímaminnið er lélegt.
Frumulíffræðingurinn dr. Parris
Kidd sagði í viðtali við læknaritið
Townsend Letter for Doctors and
Patients í janúar 1996 að hann teldi
að yngja mætti upp heilastarfsemina
hjá öldruðu fólki um 10 ár með því að
nota f-serín.
Þetta á þó sennilega ekki við um
fólk með alzheimersjúkdóm, en sé
byrjað að nota efnið áður en óbætan-
legur skaði hefur orðið á heilafrum-
um má þó sennilega seinka hrörnun-
inni umtalsvert. Þá mælir dr. Kidd
með að gamalt fólk noti bætiefni t.d.
C- og E-vitamín, Q-10, musteristré
o.m.fl. til viðbótar við f-serin.
Heimild m.a. gi-ein í Heilsuhringn-
um vor, 1997 og nokkrar tímarits-
greinar.
tSólveig Anna
Leösdóttir fædd-
ist í Reykjavík 2.
október 1946. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands 7. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Selfoss-
kirkju 16. septem-
ber.
Mig langar til að
kveðja með nokkrum
orðum kæra mágkonu,
Sólveigu Önnu Leós-
dóttur sem lést 7. sept-
ember sl. Kynni okkar Sollu hófust
fyrir 30 árum þegar ég kom inn í fjöl-
skylduna, og íljótlega eftir það fór
heimili okkar Arna og bamanna að
verða hennar annað heimili þegar
hún fór í frí frá Sólheimum, þar sem
hún hafði búið síðan 1952. Það tók
ekki langan tíma íyrir Sollu að verða
eins og eitt af börnunum mínum þó
að við værum jafn gamlar.
Það var ekki erfitt að láta sér
þykja vænt um Sollu, því hún var svo
einlæg og glaðvær og gaf svo mikið af
sér að það var ekki hægt að standast
hana. Við vorum ekki alltaf samála en
komust samt alltaf að góðu sam-
komulagi fyrir rest. Fyrir utan fríin
sín sem hún eyddi hjá okkur, var ég
svo heppin að fá að umgangast Sollu
ennþá meira þegar ég fór að vinna á
Sólheimum í nokkur ár. Minningam-
ar frá þessum árum em
óteljandi og dýrmætar.
Sollu fannst gaman að
vera innan um folk,
skemmti sér vel í fjöl-
menni og var mikill
grallaraspói eins og
hún sagði svo oft sjálf.
Og það skemmtilegasta
sem ún gerði var að
fara á ball og gilti þá
einu hvort um væri að
ræða ball á Sólheimum
eða jólaball, Solla kom
helst fyrst og fór síðust
og dansaði hún allan
tímann. Ég komst fljótt
að því að Solla var mjög ákveðin og
tæki hún eitthvað í sig var ekki auð-
velt að snúa henni, hún var líka vana-
föst með afbrigðum og þær em
nokkrar, spaugilegar uppákomurnar
í tengslum við vanafestuna sem em
alveg óborganlegar. Við höfum farið
nokkm sinnum saman í frí til útlanda
og voram við á leiðinni í eina slíkt í
nóvember n.k. Hún naut þess mjög
að vera í sólinni, hún vildi hvorki
heyra minnst á rigningu né snjó. En
Solla mín, ekki gmnaði okkur að sú
ferð yrði aldrei farin né heldur datt
mér í hug að ballið sem við fómm á á
Sólheimum viku áður en þú kvaddir,
yrði okkar síðasta skemmtun saman.
Það var svo gaman að sjá hvemig þú
geislaðir af gleði þetta kvöld, stutt í
hláturinn og þú skemmtir þér svo
konunglega. Nákvæmlega þannig vil
ég minnast þín. Hafðu þökk fyrir allt,
elsku Solla mín, guð blessi minningu
þína og takk fyrir samleiðina
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífs þíns nótt.
Þig umveQi blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
f>ó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
að laus ert úr veikinda viðjum
þínverölderbjörtáný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þáauðnuað hafaþig hér.
Og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfm úr héimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
oglýsirumókomnatíð
(Þórunn Sig.)
Halldóra.
Elsku Solla, kveðjustundin kom
miklu fyrr en okkur hafði gmnað, þú
varst svo mikilvægur hluti af lífi okk-
ar í mörg ár. En við áttuðum okkur
ekki á því fyrr en okkur barst fregnin
um lát þitt hversu stór hluti þetta í
rauninni var. Ekkert okkar getur ím-
yndað sér t.d. jól eða páska án þín.
Og hér eftir verður það sérkennilega
autt plássið þitt við hliðina á Arna
bróður við hátíðaborðið. Við emm
svo heppin að hafa fengið að kynnast
þér og þeirri gleði sem þú bjóst yfir
og smitaðir út frá þér. Þú gerðir það
að verkum að maður týndi aldrei
baminu í sjálfum sér og dansaði t.d. í
kringum jólatréð af miklum móð
fram á fullorðinsár og meira að segja
líka þegar við voram unglingar og
SOLVEIG ANNA
LEÓSDÓTTIR
þótti slík iðja frekar hallærisleg. Þú
tókst bara ekki annað í mál og þegar
Solla var búin að bíta eitthvað í sig
var ekki aftur snúið. Og þú virtist
hafa endalaust þrek til að dansa þnj.V
fyrir helti og veikan fót, svo mikið
þrek reyndar að við systkinin gáf-
umst upp. Það þóttu því mikil tíðindi
einu sinni þegar Ami bróðir fann það
upp að vefja jólaseríu á súlu í stof-
unni og hengja á hana nokkrar grein-
ar. Súlan var það mjó að það nægði
að eirin dansaði við þig í einu svo við
gátum haft vaktaskipti. Lítil kók og
prins póló koma alltaf til með að
minna okkur á þig enda í miklu upp-
áhaldi; þetta er svo gott fyrir hálsinn
var viðkvæði hjá þér því þú varst
sannfærð um ágæti þess fyrir heils-
una. Þú varst svo mikið sólskinsbyj^
að þú brást illa við ef þú heyrðir veð-
urfréttamenn spá rigningu og lintir
ekki látum fyrr en við samþykktum
að sennilega væri spáin bara vitlaus.
Og vei þeim sem vogaði sér að taka
sætið þitt! Minningamar era margar
og góðar en upp úr stendur að það
vom forréttindi að fá að alast upp
með þig í lífi sínu og þau börn okkar
sem hafa aldur til sakna þín sárt. Það
gemm við líka, hvíldu í friði, elsku
Solla.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mínverivömínótt.
Æ, virst mig að þér taka,
méryfirláttuvaka
þinnengiþsvoégsofirótt •*.'
(Þýð. S. Egilsson.)
Þorbjörg, Guðbjörg, Auður,
Leó og fjölskyldur.
Höfundur er starfsmaður
Raunvisindastofnunar Háskólans.
smávirkjunum fari í t.d. 20 MW á
næstu 5 ámm liti dæmið út svona:
Heildarfjárþörf:
(16.000 kWx 120.000) 1920 mkr.
Lánsfé (65%) 1248 mkr.
Styrkir (15%) 288 mkr.
Eigin fjármögnun (20%)384 mkr.
Fjármagn til styrkja og lánveit-
inga þyrfti því að vera um 1536
mkr. á tímabilinu eða um 307 mkr.
á ári að meðaltali. Viðbótarkostn-
aður vegna lækkunar vaxta yrði
rúmlega 41 mkr. á ári.
Mikill kostnaður
vegna tengingar
Gert er ráð fyrir að raforku-
bændur beri töluverðan kostnað
vegna tengingar við dreifikerfið,
m.a. við samfösunarbúnað, spenna,
háspennulagnir og fleira. Verði
þetta niðurstaðan er hætt við að sú
„nýrafvæðing" til sveita sem menn
hafa verið með væntingar um renni
að einhverju leyti út í sandinn
vegna þess að þröskuldarnir eru
einfaldlega of háir.
Að lokum
Framundan eru mjög áhuga-
verðir tímar í orkumálum þjóðar-
innar, bæði hvað varðar raforku-
málin sem og með aðra orkugjafa
eins og vetni ofl. Miklir möguleikar
liggja í orkuauðlindum landsins
sem mikilvægt er að nýta
skynsamlega og í sátt við umhverf-
ið. Eins og fram hefur komið liggja
þessir möguleikar m.a. í „bæjar-
lækjum" í dreifbýlinu. Ljóst er að
með væntanlegum breytingum á
orkulögum sem miða að því að
fleiri aðilum verði heimilað að selja
inn á landsnetið skapast ný sóknar-
færi fyrir bændur og smærri sveit-
arfélög til að nýta betur þá auðlind
sem felst í vatnsaflinu. Slíkt gæti
víða styrkt byggð í dreifbýlinu.
Líta verður á framlag stjórn-
valda til smávirkjana sem framlag
til byggðamála, umhverfismála og
til sjálfbærrar nýtingar landsins og
í takt við þær skuldbindingar sem
stjórnvöld hafa tekið á sig m.a.
með undirritun Kyoto-bókunarinn-
ar. Fjármunum til þessara mála er
því vel varið.
Höfundur er rekstrarfræðingur og
starfar sem utvimwráðgjafí hjá
Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands.
SIGURÐUR
EYJÓLFSSON
+ Sigurður Eyj-
ólfsson fæddist á
Suður-Hvoli íMýrdal
21. janúar 1915.
Hann lést á dvalar-
heimilinu Hjallatúni,
Vfk í Mýrdal, 8. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Skeiðflata-
kirkju 16. septem-
ber.
Án þess að fara að
draga of víðtæka sam-
lfkingu af því þegar
Snorri fóstraðist í Odda eða Ari hjá
Teiti í Haukadal, þá skildi maður
betur slíka vist ef maður var svo
heppinn að fá að fóstrast nokkur
sumur á Hvoli hjá Eyjólfi Guðmun-
dssyni og hans börnum. Fyrir nú ut-
an að kynnast heilbrigðum sveita-
störfum - fara á milli, vera hlöðukarl,
fara með mjólkina í veg fyrir bílinn
eldsnemma á morgnana, sækja hest-
ana og kýrnar - þá var þetta heimili á
Hvoli alveg einstakt fyrir margra
annarra hluta sakir. í fyrsta lagi var
manni kennt að vinna sín störf með
gleði. í öðru lagi bar allt af um
snyrtimennsku - þar vora ekki
margar kynslóðir úreltra og ryð-
gaðra búvinnutækja eins og drauga:
kirkjugarður um hlað og haga. í
þriðja lagi andaði allt af menningu og
fróðleik. Eyjólfur sjálfur var þegar
hér var komið sögu orðinn roskinn
og gekk sjaldan til venjulegra starfa,
nema þegar var brakandi þerrir, þá
sá maður hann arka út í flekk með
fislétta álhrífuna sína sem blikaði af
um alla sveitina. Aftur á móti var
hann iðinn við skriftirnar og þegar
svo háttaði sem reyndar kemur nú
stundum fyrir í Mýrdalnum, að hann
var á landsunnan með úrhelli, þá
settist hann inn í baðstofuna og las
okkur strákastóðinu það sem enn var
blautt úr pennanum.
Hvílíkir dýrðardagar þama í rign-
ingunni! Frú Arnþrúður átti líka sinn
þátt í þessu menningarandrúmi. Hún
var sigld og hafði ung verið hjá fjöl-
skyldu Garðars Gíslasonar í Edin-
borg, kunni vel til hannyrða og hafði
bæði matjurtagarð og blóma- og
trjágarð sem þá var nú ekki á hverju
íslensku sveitaheimili.
Og svo voru það
bömin. Ingveldur var
þá gift Daníel Guð-
brandssyni og bjuggu
fyrst á Loftsölum, síð-
an í Kerlingardal og
stundum fóram við að
heimsækja þau. Og svo,
eftir að Steinunn giftist
Sigurjóni í Pétursey,
urðu ferðirnar þangað
býsna margar og flest-
ar ríðandi; að fá að
sækja hestana vom
auðvitað forréttindi en
að fara í útreiðartúr út í
Pétursey yfir Miðeyjar
og Hvolseyjar upp með Klifandi -
það var auðvitað hámark sælunnar.
Heima vora þau þrjú systkinin.
Anna bjó og vann hjá foreldmm sín-
um allt árið, Sigurður var oft til sjó-
róðra í Eyjum á vetrin en kom eins
og farfuglarnir heim að Hvoli á vorin
og loks bættist Guðmundur í hópinn
en hafði verið við störf á Selfossi. Ég
varð hændur að þeim öllum. Anna
var mikil bókmenntakona en ég elsk-
ur að kúm og því áttum við margar
unaðsstundir í fjósinu þegar hún var
að mjólka. Ekki vil ég segja að það
hafi ég eitt lært af Guðmundi að taka
í nefið strákhvolpurinn, þó að það sé
satt að það kenndi hann mér og
fannst mér harla gott. En Guðmund-
ur kunni frá mörgu að segja og
margt af því situr í mér enn þann dag
í dag. Og enn stend ég að því að leita
til hans um fróðleik og kippti hann og
þau öll þar í kynið. Þá var Siggi
nefnilega ekki síðri í frásögnunum,
sjóðfróður og kunni að gera
hvunndaginn að ævintýri.
Það var alltaf svolítill gustur sem
fylgdi því þegar Siggi kom. Hann var
hár og knár og afskaplega rauðhærð-
ur og hafði augu sem vom svo blá að
maður hélt að svoleiðis væri ekki til.
Og svo var það eitt sumarið að komin
var kaupakona sem hafði svo afskap-
lega brún augu að maður vissi heldur
ekki að svoleiðis væri til. Þegar þau
Sigurbjörg Guðnadóttir svo rugluðu
saman reitum sínum og fóm að búa,
var mikil spenna í lofti, hvernig eygð
börnin yrðu. Og það vita þeir sem til
þekkja. Líka það, að þar steig Sig-
urður Eyjólfsson gæfuspor og þau
Bogga bæði.
Það var sem sagt svolítill ljómi yfir
þessum frásagnaglaða unga manni
þegar hann kom heim á vorin. Hann
var auðvitað dugnaðarforkur en
hann átti ekki síst þátt í því að kenna
manni að hafa ánægju af vinnu sinni,
hvort sem við vomm að slétta tún,
moka út á vorin, slá eða raka.
Oft urðu miklar umræður um
þjóðmál og eðlilega ekki síst um
landbúnaðinn og stöðu hans. Stund-
um vom menn uggandi, stundum
glaðbeittir. Einhvem tíma ekki alls
fyrir löngu kom ég í heimsókn og þá
sagði Siggi: „Ég held það sé ekkert
starf eins gott og það að vera bóndi“.
Hvort stundum kvað við annan tón
kann ég ekki að segja en hvað mig
sjálfan snertir em fá störf sem hafa
veitt mér annan eins unað og sveit-
astörf. Ég hefði vel getað orðið bóndi
ef ég hefði ekki verið þessi dauðans
skussi við vélar og nú dugir ekki ann-
að.
Við strákamir, Árni Edwins, Dói,
Óli prests og ég litum þó nokkuð
mikið upp til Sigga. Sérstaklega þótti
okkur til um hvað hann var hispurs-
laus í skoðunum; við vomm sjálfir á
þeim aldri þegar menn em satt að
segja að leita sér að skoðunum. Það
var ekki bara hans andlega atgervi
sem við bámm virðingu fyrir, heldur
og hans líkamsburðir - við vissum að
hann hafði verið í íþróttasskólanum
hjá sjálfum Sigurði Greipssyni í
Haukadal. Svo átti Siggi náttúmlega
Grána. Enginn fékk að fara á bak
Grána, engum var trúandi til þess
nema Sigga sjálfum því Gráni var
svo viljugur að hann átti sér engan
líka þar um slóðir enda undan Þokka
frá Brún, frægasta gæðingi Suður-
lands ef mig misminnir ekki þeim
mun illilegar. Sagan segir reyndar,
að Jón Kristjánsson í Norðurbænum
hafi einhvern tímann fengið leyfi til
að koma á bak. Gráni var jafnvand-
fýsinn og eigandinn og líkaði ekki,
hljóp fyrst með Jón til fjalls og síðan
sömu leið aftur heim í bæ og nam
ekki staðar fyrr en inni í hesthúsi en
Jón hékk á dyrakarminum. Sel þessa
sögu ekki dýrara en ég keypti.
Svo liðu árin og eftir lát Eyjólfs á
Hvoli bjuggu þau systkinin félagsbúi
á þessum höfðingsbæ uns í dag, að
Guðný, yngsta dóttir Sigurðar og
Sigurbjargar, stýrir þar verkum með
sterkri hendi og miklum dugnaði.
Ævinlega var hátíð að koma aust-
ur og fá að fylgjast með hvemig bú-
skapurinn gekk, fara fram í fjöm eða
á bak eða jafnvel bregða sér í fjósið
upp á gamlan vana. Og nýjar kyn-
slóðir nuti góðs af því að fóstrast þar
á sumrin, þeirra á meðal mín eigin
dóttir sem þar dvaldist sex af sínum
bestu summm á 9. áratugnum.
Margir hafa því um árin staðið í
þakkarskuld við það rausnarheimili.
Sigurður Eyjólfsson var heils-
uhraustur lengst af en hin síðustu ár
vom honum erfið, eins og mörgum,
enda orðinn vel fullorðinn, 85 ára,
þegar hann lést 8. september síðast-
liðinn. Hann hafði átt farsæla ævi,
góða konu og borið gæfu til að koma
bömum sínum vel á legg og til góðra
mennta.
Sjálfur var hann af því tagi að þeir
sem kynntust honum fannst þeir rík-
ari fyrir vikið.
Blessuð sé minning hans.
Sveinn Einarsson.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afrnælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein afíj-
hæfílegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við'
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa
skfrnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar em birtar afrnælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
--------------------------------------------