Morgunblaðið - 23.09.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 5o^
MINNINGAR
+ Jónína Steinunn
Þórisdóttir fædd-
ist á Seyðisfírði 15.
apríl 1931. Hún iést á
Sjúkrahúsinu á Seyð-
isfírði 18. september
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Þórir
Daníelsson sjómaður,
f. 20.7. 1909, d. 7.12.
1964, og Ragnheiður
Jónsdóttir, f. 22.8.
1897, d. 6.7. 1981.
Systkini Jónínu eru
Guðrún Borghildur,
f. 28.11. 1934, og Jón
Dan, f. 15.10. 1937, d.
18.3.1986.
Árið 1952 giftist Jónína Friðriki
Sigmarssyni, f. 7.5. 1929, d. 17.12.
1990. Börn þeirra eru: 1) Sigríður,
f. 13.11. 1951. 2) Svava, f. 18.11.
1952, maður hennar er Magnús
Gehringer, f. 28.4. 1960, börn
þeirra a) íris B. Pétursdóttir, f.
28.7. 1972, sambýlismaður Tom
Elsku mamma mín. Þá ertu loksins
komin til pabba og Valgerðar systur
eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm. En
þú varst svo dugleg í veikindum þín-
um. Ég er búin að búa í Reykjavík í
tæp fimm ár en það var alltaf best að
koma heim á sumrin, þú tókst alltaf
Sól lækkar á lofti, blómin fölna og
falla, það er komið haust, þá kvaddir
þú Jónína mín eftir erfitt vor og sum-
ar. Fyrst höfðum við vonina, en það
var bara von, allt var gert en stundin
var komin og við tók bið eftir lausn.
Þær eru margar minningamar eftir
að hafa átt þig að vin meira en hálfa
ævina og allar góðar. Minningar um
Tychsen, f. 5.10.
1971, barn Sara
Hadoudi, f. 24.5,
1994. b) Heiða Gehr-
inger, f. 25.9. 1983.
c) Elsa Gehringer, f.
5.3. 1986. 3) Þórir
Dan, f. 2.4. 1959,
kona hans er Sigríð-
ur V. Sigurðardóttir,
f. 9.8. 1964, börn
þeirra eru Katrín
Björg Stefánsdóttir,
f. 17.5. 1988, Sigurð-
ur Friðrik, f. 6.4.
1996, og Jónína
Steinunn, f. 15.9.
1999. 4) Valgerður Brynja, f. 20.5.
1961, d. 20.11. 1962.5) HelgaÓsk,
f. 8.4. 1965, sambýlismaður henn-
ar er Guðni Hólmar Kristinsson, f.
16.10. 1969, barn Guðný Ósk, f.
6.5.1997.
Jónína Steinunn verður jarð-
sunginn frá Seyðisfjarðarkirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
konu sem aldrei kvartaði þó hún væri
sárkvalin, konu sem hugsaði um vel-
ferð og líðan annarra, átti alltaf hugg-
unarorð fyrir vini og fjölskylduna
sem hún elskaði svo heitt og lifði fyrir.
Jónína mín þegar ég hitti þig sein-
ast þá k\'addi ég þig, það var erfitt,
við ætluðum að gera svo margt á
næstu árum og eyddum löngum
stundum saman og létum okkur
dreyma. Núna í haust ætlaði ég að
koma til þín og við ætluðum í berja-
mó, en við gerum það seinna á öðrum
stað. Þú áttir þann góða eiginleika að
geta hlakkað til. Þegar við töluðum
saman sagðir þú mér frá einhverju
sem þú hlakkaðir til eða einhverju
sem þú hafðir gert, sem var svo
skemmtilegt. Það þurfti ekki stóra
hluti til að gleðja þig, þú varst ekki
manneskja sem gerðir kröfur fyrir
sjálfa þig heldur varst alltaf að gefa af
þér með hlýju þinni og góðri nærveru.
Fjölskylda þín hefur misst mikið, hún
hefur staðið eins og klettur við hliðina
á þér í'þessum miklu veikindum.
Það verður tómlegt að koma á
Seyðisfjörð því hvorki þú eða Frissi
þinn verða þar til að taka á móti mér
með allri ykkar gestrisni og glað-
værð. Nú skiljast leiðir í bili en eitt er
ég viss um að þið verðið í hópnum sem
tekur á móti mér þegar minn tími
kemur. Nú ert þú hjá Frissa þínum
og litlu Valgerði Biynju sem var tekin
svo fljótt frá ykkur og þér líður vel.
Ég bið Guð og góðar vættir að styrkja
böm, bamaböm og aðra sem nú
syrgja þig. Vertu sæl góða vinkona,
þakka þér fyrir vináttu þína.
Dóra Guðmundsdóttir.
svo vel á móti okkur eins og þér
einni er lagið. Ég á eftir að sakna alls
þess sem við gerðum saman. Ég á eft-
ir að segja litlu dóttur minni og
ófædda barninu mínu allt um ömmu
Jónínu. Elsku mamma, ég kveð með
söknuði, vonandi líður þér vel núna.
Takk fyrir allar ýndislegu minning-
arnar sem þú skilur eftir. Kærar
þakkir til starfsfólksins á sjúkrahús-
inu á Seyðisfirði fyrir góða umönnun.
Hér kemur svo bænin sem þér er svo
kær.
Guð gefi mér æðruleysi,
til þess að sætta mig við
það sem ég fæ ekki breytt
Kjark til þess að breyta því
seméggetbreytt
og vit til að gi-eina þar á milli.
Þín dóttir,
Helga Ósk.
JÓNÍNA STEINUNN
ÞÓRISDÓTTIR
SOLVEIG
INDRIÐADÓTTIR
+ Sólveig Indriða-
dóttir fæddist á
Ytra-Fjalli í Aðaldal í
S-Þing. hinn 13. maí
1910. Hún lést á
Sjúkrahúsinu á Húsa-
vík 16. september síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Indriði
Þorkelsson, f. 20.
október 1869, og
Kristín Sigurlaug
Friðlaugsdóttir, f. 16.
júlí 1875.
Sólveig giftist árið
1938 Kristjáni Halldórssyni frá
Syðri-Brekkum á Langanesi, f. 10.
ágúst 1884, d. 21. nóvember 1957.
Böm Sólveigar og Kristjáns em: 1)
Indriði, f. 23. febrúar 1940, maki
Sesselja Þóroddsdóttir, f. 4. júní
1949. Börn þeirra eru Kristján, f.
25. apríl 1968, Sóley, f. 2. desem-
ber 1969, Harpa, f. 12. nóvember
1970, Dagur, f. 28. október 1976,
Brynjar Geir, f. 27. deSember
1985, d. 28. desember 1985, Sól-
veig Brynja, f. 13.
maí 1988. 2) Dýrleif,
f. 20. október 1941,
maki Óli Ægir Þor-
steinsson, f. 1. des-
ember 1941. Börn
þeirra eru: Þor-
steinn, f. 5. júlí 1961,
Sólveig, f. 25. sept-
ember 1962, Heið-
rún, f. 25. júní 1965,
Kristín, f. 28. desem-
ber 1966. 3) Kristín,
f. 29. október 1943,
maki Ulfar Þórðar-
son, f. 30. júní 1947. Börn þeirra
eru Kristín Jóhanna, f. 9. mars
1970, Kristján, f. 19. ágúst 1972,
Þórður, f. 6. janúar 1974. 4) Ey-
mundur, f. 12. október 1945, maki
Lilja Skarphéðinsdóttir, f. 23. júní
1950. Börn þeirra eru: Kristján, f.
1. febrúar 1969, Ásta Eir, f. 18. júlí
1973, Skarphéðinn, f. 6. mars 1979.
Utfór Sólveigar fer fram frá
Neskirkju, Aðaldal, í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Okkur langaði að skrifa nokkur
orð um ömmu Sólveigu sem lést hinn
16. september.
Það fyrsta sem við systkinin mun-
um eftir er sennilega síða svarta hár-
ið og dönsku blöðin sem hún las á
hverjum degi. Amma er fædd og
uppalin á Ytra-Fjalli í Aðaldal en
kom í Syðri-Brekkur sem ráðskona
hjá afa okkar og giftu þau sig 1938.
Afi dó frá henni og fjórum bömum
1957 og var pabbi okkar elstur
þeirra systkina, aðeins 17 ára gam-
all. Amma var mikil áhugamann-
eskja um garðrækt og kom hún upp
stórum blómagarði á Syðri-Brekk-
um sem Rristín dóttir hennar hugsar
nú um. Amma hafði mjög gaman af
spilum og spilaði og lagði kapla eins
lengi og sjónin leyfði. Við vorum búin
að fara ófáar ferðirnar yfir túnið til
að grípa í rommý, lönguvitleysu eða
matador. Eins var hún mikið í
handavinnu og eigum við margar fal-
legar myndir eftir hana. Amma var
mjög ánægð þegar yngsta barna-
barnið fæddist á afmælisdaginn
hennar 13. maí og var skírt í höfuðið
á henni. Amma flutti á dvalarheimil-
ið Hvamm á Húsavík 1985. Hún var
alla tíð mjög heilsuhraust en lést eft-
ir stutt veikindi.
Þú, sem enn átt enga drauma,
ekkert gull í sjó,
hvílir mjúkt á hvítum svæfii
ldnnum fagurrjóð.
Yndi þitt og allur heimur
ermittvögguljóð.
(Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum.)
Hvíl í friði, elsku amma.
Kveðja.
Krislján, Sóley, Harpa,
Dagur og Sólveig Brynja.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minning-
argreinum fylgi á sérblaði
upplýsingar um hvar og hve-
nær sá, sem fjallað er um, er
fæddur, hvar og hvenær dá-
inn, um foreldra hans, systk-
ini, maka og börn, skólagöngu
og störf og loks hvaðan útför
hans fer fram. Ætlast er til
að þessar upplýsingar komi
aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í
greinunum sjálfum.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna
andláts og við útför elskulegs eiginmanns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS SIGVALDASONAR,
Ausu,
Andakílshreppi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkra-
húss Akraness fyrir alúðlega umönnun.
Auður Pétursdóttir,
Pétur Jónsson,
Sigvaldi Jónsson,
Unnsteinn Einar Jónsson, Anna Lilja Sævarsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir, Karl Sigurðsson,
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
og barnabörn.
ÞÓREY DAGBJÖRT
BRYNJÓLFSDÓTTIR <
+ Þórey Dagbjört
Brynjólfsdóttir
fæddist í Reykjavík
23. maí 1913. Hún
lést 10. september
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Brynjólfur Karl
Brynjólfsson vél-
stjóri og Guðrún
Þorvaldsdóttir. Þau
létust bæði úr
Spönsku veikinni 13.
nóvember 1918. Hún
var tekin í fóstur af
Þórði Bjarnasyni frá
Reykhóluni og
Hansínu Linnet og ólst upp hjá
þeim.
Þórey giftist fyrri manni sín-
um, Emil Peter Vilhelm Has-
lund, vélstjóra, 27. apríl 1933 í
Danmörku og átti með honum
tvo syni: Leif Pétursson, f. 21.
mars 1934, maki Elsa Vilhjálms-
dóttir og eiga þau tvö börn, þau
eru Pétur, f. 2. janúar 1966, og
Kristín, f. 1. september 1970,
þau búa í Bandaríkjunum. Otto
Órn Petursson, f. 16. maí 1935,
maki Sigríður Hannesdóttir, þau
eiga fjögur börn; Birgi, f. 17. júlí
1958, Evu, f. 1. des-
ember 1959, Örn, f.
10. nóvember 1963,
og Hannes, f. 1.
desember 1969.
Seinni maður
Þóreyjar var Helgi
M.S Bergmann,
málarameistari, þau
giftust 11. desem-
ber 1942. Þeirra
börn cru Guðrún
Bergmann, f. 4.
febrúar 1944, maki
Árni B. Guðmunds-
son og eiga þau
eina dóttur, Þór-
eyju Ósk Árnadóttur, f. 16. jan-
úar 1980. Þórður Helgi Berg-
mann, f. 4. nóvember 1945, maki
Sigríður Eggertsdóttir, þau eiga
einn son, Helga Bergmann, f. 1.
nóvember 1983. Fóstursynir
Þórðar og synir Sigríðar eru
Eggert Snorrason, f. 31. mars
1968, og Þór Snorrason, f. 28.
ágúst 1971.
Þórey vann við föndurkennslu,
baðvörslu, í Nóa-Síríusi og end-
aði starfsferil sinn f Gliti hf.
títför Þóreyjar fór fram í
kyrrþey 18. september.
Elsku langamma, þú varst alltaf
svo góð og skemmtileg. Mér er
það minnisstætt að þegar við hitt-
umst sagðir þú sögur frá því í
gamla daga og settir upp þitt fal-
lega bros og alltaf var eitthvert
nammi í skál. Þegar þú varst veik
söng ég fyrir þig og næsta dag
varstu dáin. Ég elska þig mikið og
vona að þér líði vel hjá Guði.
Þá mæða sálar hverfur hver.
Svo hvílst þú getur rótt,
og sjálfur Drottinn sendir þér,
er sefur, góða nótt.
(Ingem. J. Helgason.)
Þín
Sandra.
Elsku amma mín, nú hefur þú
loksins fengið hvíldina, og ég er
Guði þakklát að hafa tekið þig til
sín þar sem þú varst orðin gömul
og þreytt. En amma mín, þú varst
mér mjög kær, falleg, einlæg og
hreinskilin. Við áttum á fjörutíu
árum margar góðar stundir, sér-
staklega er mér minnisstæð ferðin
tii Ameríku, þegar við heimsóttum
Leif frænda 73 og öll jólaboðin. Og
svo kynntist ég þér betur þegar ég
byrjaði að búa, þá bjuggum við
sama húsi og alltaf gat ég leitað til
þín með allt. En amma, það var
alltaf gott að heimsækja þig, fara
með þig í bíltúra og margt annað
sem við gerðum alltaf var gaman
með þér. Elsku góða amma mín,
ég finn fyrir söknuði og sorg, en
það er vegna þess að ég elska þig.
Amma Eyja, takk fyrir öll góðu ár-
in.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn
og allt er orðið rótt,
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Þín sonardóttir,
Eva.
+
Hjartans þakklæti færum við öllum, er veittu
stuðning og samúð vegna veikinda, andláts og
útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og bróður,
GUÐMUNDAR RÚNARS BJARNLEIFSSONAR,
Raufarseli 9.
Við minnumst starfsfólks heimahlynningar
Krabbameinsfélagsins og líknardeildar Land-
spítalans með innilegu þakklæti.
Ása Sólveig Þorsteinsdóttir,
María Guðmundsdóttir, Guðmundur Valur Sævarsson,
Áslaug Guðmundsdóttir, Sveinn Hjörtur Guðfinnsson,
Guðlaugur Guðmundsson, Þórey Birgisdóttir,
barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur.
+
Hjartans þakklæti færum við starfsfólki á Skjóli
fyrir umönnun og öllum þeim, er sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður, uppeldissystur,
ömmu og langömmu,
MARÍU GUÐBJARGAR JÓHANNESDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður til heimílis í Gnoðarvogi 34.
Útförin fór fram í kyrrþey 13. september að ósk hinnar látnu.
Erla Strand, Einar Strand,
Ása Sólveig Þorsteinsdóttir,
Soffía H. Bjarnleifsdóttir, Snorri S. Konráðsson,
Bjarnleifur Á. Bjarnleifsson, Lilja Gunnarsdóttir,
Ólafía K. Bjarnleifsdóttir, Magnús L. Sigurðsson,
Guðiaugur Guðmundsson,
ömmu- og langömmubörn.