Morgunblaðið - 23.09.2000, Qupperneq 54
4^4 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
VIGDIS
PÁLSDÓTTIR
+ Vigdís Pálsdótt-
ir var fædd í
Galtaholti á Ran-
gárvöllum 7. sept-
ember 1910. Hún
lést á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi,
Fossvogi 13. sept-
ember sfðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru þau Ingiríður
Einarsdóttir og Páll
av<Pálsson. Vigdfs átti
þrjá bræður, tveir
þeirra dóu ungir en
Isleifur varð 86 ára
þegar hann lést.
Hún átti níu hálfsystkini, sam-
Guðbjörgu
fullorðinsára. Einnig
átti hún tvö uppeldis-
systkini, Guðmund,
sem er látinn, og
Fjólu Aradóttur.
Vigdís giftist
Guðna Gestssyni, f.
17. mars 1909, frá
Mel í Þykkvabæ 11.
júlí 1936. Guðni lést
4. október 1991. Þau
bjuggu í Þykkvabæ í
10 ár en fluttust síð-
an til Keflavíkur
1946. Börn Vigdísar
og Guðna eru: 1)
Sveinn, kvæntur
Sigurjónsdóttur og
feðra en fjögur þeirra komust til eiga þau tvo syni, Guðna og Sig-
urjón. 2) Elín, gift Ellerti Birni
Skúlasyni og eiga þau Qögur
börn, Elínborgu, Vigdísi, Björn
Viðar og Ómar. 3) Ingunn, gift
Bjarna Jónssyni og eiga þau tvö
börn, Jón Má og Berglindi. 4)
Gestur, kvæntur Oddrúnu Guð-
sveinsdóttur og eiga þau þrjú
börn, Guðsvein Ólaf, Helgu og
Lóu Björgu. 5) Pálína í sambúð
með Guðmundi Hólmgeirssyni.
Hún átti fimm börn með eigin-
manni sfnum, Eiríki Ragnarssyni
en hann lést 1995. Þeirra börn
eru: Þórir, Málfríður Ragna,
Guðdís, Inga Pála og Eiríkur
Páll. 6) Kristín, var gift Kristjáni
Ingibergssyni en hann lést 1990.
Þeirra börn eru: Anna María,
Guðný og Ingiberg Þór. Barna-
börn Vigdísar eru 19 og lang-
ömmubörnin 38.
Vigdís verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Móðir okkar:
Ertu horfin? Ertu dáin?
Er nú lokuð glaða bráin?
Angurs horfi ég út í bláinn,
autterrúmogstofanþín,
elskulegamammamín.
Gesturinn með grimma ljáinn
Glöggt hefur unnið verkin sín.
w Ég hef þinni leiðsögn lotið,
líka þinnar ástar notið,
finn, hvað allt er beiskt og brotið,
burtervfkuraðstoðþín
elsku góða mamma mín. -
Allt sem gott ég hefi hlotið,
hefirefltviðráðinþín.
Þóskalekkivílaogvola,
veröld þótt oss brjóti í mola.
Starfa, hjálpa, þjóna, þola,
það var alltaf hugsun þín,
elsku góða mamma mín. -
Og úr rústum kaldra kola
kveiktirðu skærust blysin þín.
Flýg ég heim úr Qarlægðinni,
fylgi þér í hinsta sinni,
krýp með þökk að kistu þinni,
kyssi í anda sporin þín,
elsku góða mamma mín. -
Okkur seinna í eilífðinni
eilíft ljós frá guði skín.
(Ámi Helgason.)
Sveinn, Elín, Ingunn,
Gestur, Pálína og Kristín.
Elsku amma.
Nú er kallið komið. Tíminn þinn á
meðal okkar Uðinn og þú farin þangað
sem við öll endum að lokinni þessari
■^Sirðvist. Mig langar að skrifa nokkr-
ar línur til þín og fá að þakka þér allt
sem þú varst mér og mínum.
Þú varst einstök amma, fasti
punkturinn í stórri fjölskyldu, með
stórt hjarta og opinn faðm. Það er
ljúft að ylja sér við allar minningarn-
ar sem tengjast þér, hvað þú sagðir
skemmtilega frá og þá sérstaklega
þegar þú sagðir frá lífi þínu með afa,
þegar þið bjugguð í Þykkvabænum
og þegar þið fluttuð hingað til Kefla-
víkur með fimm böm og það sjötta,
mömmu mína, á leiðinni. Eg minnist
ferða okkar saman austur á Hellu,
ættarmótanna þar sem þú varst í að-
alhlutverki, að ógleymdum fundar-
morgnunum á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum, fyrst á
Heiðarveginum svo á Kirkjuveginum
þar sem stór hluti fjölskyldunnar
kom saman í kaffi og sykraðar pönnu-
kökur. Þessir fjölskyldufundir voru
einstakir og héldust þangað til þú
veiktist og þurftir að leggjast inn á
sjúkrahús. Þú náðir að halda upp á 90
ára afmælisdaginn þinn áður en þú
kvaddir þetta líf en viku síðar varstu
farin. Eg þakka þér, amma, fyrir að
reynast mér vel á erfiðum tímum, því
gleymi ég aldrei og mun geyma þær
stundir í hjarta mínu alla tíð.
Elsku amma, ég kveð þig með
söknuði, þú skilur eftir tómarúm sem
enginn getur fyllt. Eg veit að þér líð-
ur núna vel með afa, pabba, Eiríki og
fleiri ástvinum sem hafa tekið á móti
þér. Ég bið Almættið að vaka yfir
ykkur og okkur sem söknum þín.
Minning þín verður alltaf ljós í lífi
okkar.
Allt eins og blómstriú eina
uppvexásléttrigrund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
ásnögguaugabragði
af skorið verður fljótt,
litogblöðniðurlagði,
líf mannlegt endar skjótt
Ég lifi í Jesú nafni
íJesúnafiúégdey.
Þó heilsa og líf mér hafni
hræðistégdauðannei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt.
í Kristi krafti ég segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgr.Pét)
Þín dótturdóttir,
Guðný Kristjánsdóttir.
Elsku amma.
Margs er að minnast og margs er
að sakna. Frá því við munum eftir
okkur var heitt á könnunni og pönnu-
kökur jafnt sem annað góðgæti hjá
þér og afa á Heiðarveginum, síðar
Kirkjuvegi 11 á laugardags- og
sunnudagsmorgnum fyrir alla og var
oft glatt á hjalla. Þú varst mjög glæsi-
leg kona, teinrétt í baki og hafði gam-
an af að klæða þig upp. Þú varst alveg
einstök, hafðir gaman af að ferðast og
hafa marga í kringum þig enda mjög
hress og kát. Minnumst við ferðar-
innar til Spánar með þér og afa ásamt
mömmu og pabba og eigum við yndis-
legar minningar þaðan, samanber
hver var með fallegustu tæmar á
Spánarströnd. Einnig vom margar
ferðir austur fyrir fjall og oft var
komið við í tívolínu þar sem þú varðst
bam á ný og naust þú þín best í
klessubílunum með langömmuböm-
um þínum. Það leið aldrei sá afmælis-
dagur að þú hringdir ekkiog óskaðir
okkur eða börnum okkar til hamingju
með daginn og varla er það bama-
barn eða langömmubam sem ekki
hefur fengið prjónaða vettlinga og
sokka eftir þig.
Skrítið verður um þessi áramót að
hafa þig ekki með okkur á Tjarnar-
götunni hjá mömmu og pabba, um
miðnætti þegar allir era úti að skjóta
upp flugeldum stóðst þú alltaf uppi í
herbergi og horfðir á alla dýrðina út
um gluggann en minningin um þig
mun lifa eins og segir í ljóði eftir
Valdimar Briem. Minning þín og afa
lifir.
Sofðu vært hinn síðasta blund
uns hinn dýri dagur ljómar,
Drottins lúður þegar hljómar
Hina miklu morgunstund.
Að leiðarlokum kveðjum við ást-
kæra ömmu með þökkum fyrir allt.
Við vitum núna þú ert búin að hitta
ástina þína aftur, hann afa.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt,
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Margseraðminnast,
margterþéraðþakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna.
Guð þerri tregatárin stíð.
(V. Briem.)
Elínborg, Vigdís,
Björn Viðar, Ómar.
Elsku langamma.
Þú hefur lifað langa og góða ævi,
eignaðist sex böm, 19 barnaböm og
t
Innilegar þakkir fyrir aðsýnda samúð og hlýhug
viö andlát og útför ástkæru móðir minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARÍU ESTERAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Hrafnistu,
áður Skúlagötu 58,
Reykjavík.
Guðrún Árnadóttir, Guðjón Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinar-
hug og hjálpsemi vegna andláts elskulegs
sonar okkar, fóstursonar og bróður,
GUNNARS BIRGISSONAR,
Árlandi 7,
Reykjavík.
Salóme Rannveig Gunnarsdóttir,
Birgir Þór Sigurbjörnsson,
Þorkell Guðmundsson,
Ingunn Kristjana Þorkelsdóttir,
Árni Þór Birgisson,
Berglind Birgisdóttir,
Karen Birgisdóttir.
tæp 40 langömmuböm og er ég stolt
af því að vera eitt af þeim.
Þegar ég sit hér og hugsa til baka
minnist ég þín sem teinréttrar og
virðulegrar konu sem geislaði af lífs-
gleði og reisn. Þú vai-st samt sem áð-
ur ung í anda. Ég man líklegast best
eftir þér í klessubílunum í Tívolíinu í
Hveragerði eða gerandi leikfimisæf-
ingar úti á palh uppi í bústað og þar
slóþér enginn við!
Ég mun þó alltaf muna mest eftir
laugardags- og sunnudagsmorgnun-
um þar sem öll fjölskyldan kom sam-
an og fékk bestu pönnukökur og
kleinur í heimi. Erfitt er fyrir litla
frændur og frænku að skilja að lang-
amma sé dáin og farin til himna. Þau
spyrja hver eigi nú að baka pönnu-
kökurnar um helgar og hvort amma
sé hjá Guði.
Já, amma, þú varst mikil ævintýra-
manneskja. Éórst meira að segja 88
ára gömul í klukkustundar flugferð, í
lítilli rellu, um fæðingar- og uppeldis-
stað þinn, Rangárvallasýslu, og
stuttu seinna fórst þú um Hvalfjarð-
argöngin. Þetta þótti þér merkilegt,
að fara bæði undir sjóinn og upp í há-
loftin og það sama sumarið. Þú varst
alltaf mikið fyrir farartæki (sbr.
kiessubílana og flugvélamar) þó að
þú hafir aldrei tekið bílpróf eða þið afi
átt bíl.
AJdrei fékkstu tækifæri á að heim-
sækja mig og unnusta minn, Jóhann
Friðrik, í htlu íbúðina okkar í Garð-
húsum en ég veit að þú vakir yfir okk-
ur með henni Hallfríði.
Takk fyrir allt, elsku amma. Minn-
ingamar um þig era sannir dýrgripir,
sem ég mun varðveita að eilífu.
F.h. bamabarna Elínar og Ellerts,
Halla Björg Evans.
Það er nú ekki nema rétt rúmlega
mánuður síðan að hún Vigga amma
var á ferð hér fýrir austan fjall og
dansaði fyrir góða vinkonu sína hana
Önnu í Vesturholtum. Þetta var góð
ferð og gisti amma að vanda hjá mág-
konu sinni á Hellu, en þar vildi hún
alltaf gista ef hún var á ferð, enda
alltaf velkomin til hennar Gunnu. Fá-
einum dögum eftir sveitaferðina tal-
aði amma um að hún væri hreint eins
og „drasla", eða þannig tók hún til
orða. Eftir að hafa svo farið í rann-
sókn kom í Ijós að amma var komin
með bráðahvítblæði. Við gerðum
okkur strax grein fyiir því að amma
blessunin ætti ekki eftir að vera mik-
ið lengur með okkur, enda kom á dag-
inn að eftir rétt fjórar vikur var hún
ÖU.
Það er ótal margt sem kemur upp í
hugann þegar horft er til baka, enda
hefur amma alltaf verið svo nálæg
sínu fólki, verið í góðu sambandi eins
og ættarhöfðingjar eiga að vera, hún
var svo sannarlega góður og mikill
ættarhöfðingi.
Ofarlega í minningunni eru þó
„fundirnir" en það var venjan að sem
flestir af afkomendunum hittust á
laugardags- eða sunnudagsmorgnum
í volgar pönnukökur eða vöfflur sem
amma var búin að baka fyrir allar
aldir, enda alltaf komin snemma á
fætur. Kölluðust þessar samkomur
fundir innan fjölskyldunnar. Það var
oft margt um manninn enda fjöl-
skyldan orðin stór, hafði amma mjög
gaman af því að geta sagt hversu
margir vora mættir þennan eða hinn
daginn. Ef ég og mín fjölskylda átt-
um leið til Keflavíkur, var reynt að
komast á fund, því að þá hittum við
svo marga. Það var stundum gert
grín að því að ef skipta þyrfti um
teppi á stigaganginum á Kirkjuvegi
11, ætti amma að borga mest, því að
þvílíkur var gestagangurinn að eðli-
legt væri að teppið slitnaði mest af
hennar gestum.
Ömmu þótti gaman að dansa og
var hún stundum að sýna dans með
eldri borguram. Henni þótti miður
hvað unga fólkið var óduglegt við
gömlu dansana, og talaði hún þá
stundum um hræðilegan „fótaburð",
ef hún lenti á lélegum dansara.
Ég á ömmu mikið að þakka, hún
vissi nú allt um það, því að fyrir stuttu
áttum við amma notalegt spjall þar
sem við töluðum um hvað okkur þætti
vænt hvorri um aðra. Ég gat líka sagt
henni hvað ég og mín fjölskylda væri
rík, að hafa átt hana fyrir ömmu.
Það er svo ótal margt sem kemur
upp í hugann þessa dagana þegar ég
rifja upp minningamar um ömmu. Þá
virðist svo stutt síðan ég var lítil ríð-
andi á honum Stjama að skoða æsku-
stöðvamar hennar ömmu og ég réð
ekkert við hestinn en amma skipti við
mig um hest og Stjami blessaður
varð að lúta vilja ömmu sem var reist
og glæsileg reiðkona. Þarna var ég
stolt af ömmu minni en það var ekki í
eina skiptið, því það var auðvelt að
vera stoltur af henni. Hvar sem hún
kom bar hún með sér svo mikinn
þokka að eftir henni var tekið, hún
var ætíð bein í baki og bar höfuðið
hátt. Það hækkar mann um minnst
tíu sentimetra að vera svo reistur, var
amma vön að segja, og þar sem hún
var ekki hávaxin virkaði þetta vel.
Fyrir þremur áram var amma hér í
heimsókn með yngstu dóttur sinni,
móður minni, og kom þá til tals hvað
gera ætti henni til gamans á níræðis-
afmælinu, helst ætla ég nú ekki að
verða níræð en ef svo verður vil ég
helst fá að fljúga hér yfir Rangárvell-
ina, sagði amma. En þar sem ágætt
var veðrið þennan daginn fengum við
góðan flugmann hér á Hellu til að
fara í loftið með gömlu konuna. Er
skemmst frá því að segja að hún Ijóm-
aði eins og sól þegar vélin lenti eftir
að hafa verið að skoða sveitirnar hér í
kring undir leiðsögn flugmannsins í
góðan klukkutíma, hoppaði sú gamla
niður úr vélinni hðug sem köttur og
þakkaði vel fyrir sig.
Agæta fjölskylda, vinir og sam-
ferðamenn Viggu ömmu, gleðjumst
nú með henni, hún er nú komin til afa
sem öragglega tók vel á móti henni.
Tengdasynimir hafa ekki verið langt
undan frekar en allir ættingjarnir og
vinir hennar sem famir era. Þökkum
fyrir að hafa fengið að hafa hana
svona lengi með okkur og verndum
minningu hennar. Blessuð sé minn-
ing Viggu ömmu, hafi hún bestu
þakkir fyrir allt sem hún gaf af sér til
okkar allra.
Anna María
Kristjánsdóttir, Helluvaði.
Það er sama hversu sumarið er
gott, það kemur alltaf haust á eftir og
síðan vetur. Einn bjartan sumardag
veiktist Vigdís og banalega hennar
gekk yfir á aðeins fimm vikum. Hún
náði því þó að verða 90 ára eins og ég
hafði oft sagt við hana. Ég fór oft með
henni og tengdó að versla í Samkaup
á fostudögum en Ella hugsaði iðulega
vel um móður sína og sá um að fara
með hana í búð á hverjum föstudegi.
Vigdís vildi náttúralega eiga nóg með
kaffinu fýrir fólkið sitt sem kom alltaf
til hennar á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum. Þá passaði hún vel
upp á að allir fengju nú öragglega
nóg með kaffinu og átti hún alltaf nóg
handa öllum, sama hversu margir
mættu.
Vigdís var mjög heilsuhraust og
giæsileg kona sem bar sig alltaf vel.
Hún átti ansi marga kjóla og fín föt
sem hún hafði mjög gaman af að
klæða sig í. Mikið af þessum fötum
höfðu bömin hennar keypt á hana
þegar þau fóra utan. Þegar ég var að
hjálpa henni að flytja á Kirkjuveginn
átti hún næstum öll fótin sem fóra í
fataskápinn. Þá spurði ég hana hvort
Guðni fengi ekkert undir sín föt og þá
sagði hún að hann fengi nú bara
helminginn af einum skápnum, það
væri alveg nóg fyrir hann.
Þú varst alltaf svo þakklát ef að
einhver gerði eitthvað fyrir þig og er
mér minnisstæðust bílferðin sem við
Ómar fóram með þig í um páskana.
Þá fóram við Reykjaneshringinn og
enduðum í kaffi í Bláa lóninu. Þú
varst svo ánægð að við skyldum bjóða
þér með og þér fannst Bláa lónið al-
veg yndisleg náttúraperla. Við rædd-
um þá um að þú gætir haldið upp á 90
ára afmælið þitt þar í haust og fannst
þér það frábær hugmynd. Ekki varð
nú úr hugmynd þeirri en afmælis
þíns var minnst með tertum og kaffi á
Landspítalanum og þú minntir alla
þá sem komu til þín á að fá sér kaffi
ogtertu.
Elsku Vigga amma, þó að þú sért
ekki blóðamma mín leit ég ailtaf á þig
sem ömmu mína þau 16 ár semég
þekkti þig. Að lokum langar mig að
þakka þér fyrir allt og allt. Ég kveð
þig með söknuði. Megi guð geyma þig
og minningu um yndislega ömmu
geymi ég í hjarta mér.
Guðbjörg Jónsdóttir.