Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
___________________________LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 59
FRÉTTIR
Biskup kynnir
Tölvubiblíu
barnanna
HIÐ íslenska Biblíufélag hefur gefið
út Tölvubiblíu barnanna. Um er að
ræða bók og geisladisk með tölvu-
leikjum og frumsömdum lögum.
Karl Sigurbjömsson, biskup ís-
lands, kynnir Tölvubiblíu barnanna í
verslun BT í Skeifunni í dag, laugar-
daginn 23. september klukkan 14, og
þar mun Anna Pálína Arnadóttir
einnig syngja nokkur lög úr bókinni.
Viðskiptavinum gefst kostur á að-
spreyta sig á tölvuleikjunum og
skoða bókina.
í Tölvubiblíu barnanna em kvæði
við 50 þekktar sögur úr Biblíunni.
Böðvar Guðmundsson skáld hefur
þýtt og endurort kvæðin sem Jó-
hannes Molléhave orti upphaflega á
dönsku. Bókinni fylgir geisladiskur
sem á em 12 tölvuleikir við sögurn-
ar. í þeim þurfa börnin að glíma við
margskonar þrautir, eins og t.d. að
vernda Mósebarnið í sefkörfunni
fyrir krókódílum eða aðstoða vini
lamaða mannsins við að finna Jesú,
segir í fréttatilkynningu. Á geisla-
disknum em einnig tólf fmmsamin
lög eftir Aðalstein Ásberg Sigurðs-
son við texta Böðvars.
Tölvubiblía barnanna er ætluð
bömum á aldrinum 3-9 ára og öðmm
sem enn þykir gaman að leika sér,
segir í tilkynningunni
Námskeið
endurtekið
VEGNA eftirspurnar verður nám-
skeið í Feldenkrais-aðferð endurtek-
ið helgina 23. og 24. september í sal
Tónlistarskólans í Reykjavík Lauga-
vegi 178, 4. hæð (Stekk). Leiðbein-
andi er Sibyl Urbancic. Þrjár
kennslustundir verða hvorn dag: kl.
10:00 - 11:30, kl. 12:00 - 13:30 og kl.
14:30 - 16:00. Verð er kr. 5000 fyrir
allt námskeiðið, kr. 2500 fyrii' einn
dag, kr. 1000 fyrir stakan tíma.
Námskeiðið sem fer fram á ís-
lensku er opið öllum, byrjendum sem
lengra komnum. Upplýsingar og
skráning er á skrifstofu Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna.
Feldenkrais aðferðin er kennslu-
aðferð sem notar kerfi líkams-
hreyfinga til að bæta meðvitund um
beitingu líkamans. Dr. Moshe Feld-
enkrais var verkfræðingur og eðlis-
fræðingur. Árangurslaus leit hans að
lækningu við þrálátum hnjámeiðsl-
um leiddi til þess að hann fór að at-
huga hreyfingar og hreyfimynstur
líkamans og möguleikana á að
breyta þeim. Honum tókst að ráða
bót á hnjámeiðslunum en lét ekki þar
við sitja heldur hélt áfram ævilangt
að þróa þá aðferð sem við hann er
kennd og stunduð er víða um heim,
segir í fréttatilkynningu.
Golf-dagur
hjá Heklu
í DAG, laugardaginn 23. september,
er Golf-dagur hjá Heklu. Fyrir
nokkru var sent út bréf til allra eig-
enda Volkswagen Golf og í framhaldi
af því gafst eigendum Volkswagen
Golf kostur á því að senda inn mynd
af Golfinum sínum og taka þátt í
samkeppni um „flottasta" Golfinn
sumarið 2000.
Keppt var í þremur flokkum og
voru valdir þrír bílar í hverjum flokki
sem keppa um titilinn hver í sínum
flokki og hlýtur sigurvegari í hverj-
um flokki vöruúttekt að upphæð kr.
30.000 hjá Heklu. Jafnframt verður
eigandi eins bíls sem þykir skara
fram úr verðlaunaður með ferð fyrir
tvo til Dublin. Allir þátttakendur í
leiknum fá sendan Volkswagen-bol
frá Heklu, segir í fréttatilkynningu.
í tilefni af Golfdeginum verða
sextán sérbúnir Volkswagen Golf
hlaðnir aukahlutum í boði á sérstöku
kostaverði, segir í tilkynningunni. í
tilefni af Golfdeginum er langur
laugardagur hjá Heklu og er opið frá
klukkan 10 til 17.
Hausthátíð Breiðholtsskóla
HAUSTHÁTÍÐ Breiðholtsskóla
verður haldin laugardaginn 23.
september. Hátíðin er haldin á veg-
um Foreldra- og kennarafélags
skólans.
Þetta er orðinn árlegur viðburð-
ur en hún er hugsuð til að bjóða alla
velkomna í upphafi skólaársins,
segir í fréttatilkynningu.
Hátíðin stendur frá kl. 11 til kl.
14. Eins og áður hefur verið gert er
leikskólabörnum hverfisins ásamt
foreldram þeirra boðið að koma.
Þetta er gert vegna þess að flest
þessara bama eiga eftir að verða
nemendur í Breiðholtsskóla þó síð-
ar verði. Lúðrasveit Árbæjar- og
Breiðholtsskóla leikur fyrir gesti. Á
þessari hátíð verður veltibíllinn og
mun Sjóvá sjá til þess. Slökkvilið og
lögregla munu mæta með bíla og
eitthvað af sínum tækjabúnaði til að
sýna bömum og fullorðnum í hverju
þeirra starf er fólgið. Mikið verður
af leiktækjum, bæði sem fengin era
frá ÍTR og Sprell. Börn verða mál-
uð í framan af eldri nemendum
skólans. Trúðar gera fígúrar úr
blöðram. Júdókappar sýna fimi sína
en meðan á hátíðinni stendur verð-
ur íþróttahúsið opið fyrir bömin að
leika sér í. Seldar verða veitingar á
vægu verði en þar verða pitsur frá
Pitsahöllinni, kleinur frá bakaríinu
Amarbakka, HI-CI drykkur frá
Vífilfelli, frostpinnar frá Kjörís og
kaffi fyrir þá eldri. Eldri nemendur
skólans era hvattir tO að láta sjá sig
og jafnframt verðandi nemendur,
segir í fréttatilkynningu.
Tekjur sem skapast af sölu veit-
inga era hugsaðar til áð styrkja
stöðu félagsins sem stendur að há-
tíðinni. Það er von allra seni að
þessari hátíð standa að komandi
vetm- verði ekki vetur verkfalla
heldur jákvæðs og uppbyggjandi
skólastarfs.
larus
s
Iþrpttadag-
ur Iþrótta- -
félagsins
Aspar
LAUGARDAGINN 23. september
milli klukkan 13,30 og 16,30 heldur
Iþrðttafélagið Osp íþróttakynningu
í íþróttahúsi ÍFR að Hátúni 14.
Þjálfarar hinna ýmsu íþrótta-
greina verða á staðnum og tilbúnir
að svara spurningum um starf og
æfingar hjá félaginu. Boðið verður
upp á léttar veitingar á vægu verði.
Ösp hvetur fólk til að koma á kynn-
inguna.
á sérstöku afmælistilboði
töfiu...
alvarlega!
ÞegarKIA Clarus Wagon erborinn saman við aðra station-bíla sem eru í boði á íslenskum
markaði kemur f Ijós að þú færð meira fyrir peningana hjá KIA. Það er sama hvar borið
er niður f samanburðartöfluna hér að neðan - hvergi er snöggan blett að finna hjá KIA
Clarus. Það er okkur þvi sérstök ánægja að geta boðið þennan bíl á afmælisverði sem
enginn leikur eftir - Það er jú heilt ár síðan KIA Clarus var kynntur fyrir fslendingum...
* Samanburðartafía sem margborgar sig að skoða vel!
KIA Clarus Wagon Toyota Avensls Wagon Opel Vectra Wagon Nissan Prímera Wagon Peugeot 406 Wagon VW Passat Wagon
Verð 1.490.000 1.739.000 2.015.000 1.960.000 1.799.000 1.925.000
Vélarstærð 2,0 1,6 2,0 2,0 2,0 1,8
Hestöfl 133 110 136 140 135 125
Heildarlengd (mm) 4750 4570 4490 4579 4736 4669
Heildarbreidd (mm) 1785 1710 1840 1715 1765 1740
Heildarhæð (mm) 1440 1500 1490 1450 1460 1498
Lægsti punktur (mm) 177 155 160 137 110
Farangursrými (lítrar) 560 530 460 430 430 495
Eigin þyngd (kg) 1298 1240 1335 1375 1404 1325
Heildarþyngd (kg) 1864 1730 1890 1815 2070 1920
Eldsneytistankur (lítrar) 60 60 60 60 70 62
ABS Já Já Já Já Já Já
Spólvöm (TCS) Já Nei Já Nei Nei Nei
Rafdrifnar rúður Já Já Að framan Já Að framan Já
óeislaspllari (CD) Já Nei Já Nei Nei Nei
Loftpúðar Já Já Já Já Já Já
Fjarstýrðar samlæsingar Já Já Já Já Já Nei
KIA Clarus Wagon
á sérstöku afmælistilboði aðeins
1490000
Sjálfskiptur 1.550.000
Komdu við
hjá okkur í
KIA ÍSLANDI
að Flatahrauni 31
og mátaðu KIA
Clarus Wagon
við þig og fjölskylduna.
KIA ÍSLAND
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI SS5 6025
y.
www.kia.is