Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 63
MORGUNB LAÐIÐ
________BRÉF TIL BLAÐSINS__
Langirimi - slysagildra
og illa hönnuð gata
Frá Ingvari Ragnarssyni:
BORGARYFIRVÖLD hafa haft lít-
inn áhuga á að hlusta á íbúa í
Rimahverfi í Grafarvogi. Hafa
samt mætt á hverfisfundi og fengið
að heyra hvað fólk hefur verið að
segja. í meginmáli er gatan illa
hönnuð og er slysagildra. í fyrsta
lagi var settur söluturn á fáránleg-
um stað alveg við götuna, hefði átt
að vera í verslunarmiðstöðinni
sjálfri. í öðru lagi er gatan lokuð á
beina kaflanum og eingöngu stræt-
isvagnar sem er leyft að keyra þar
í gegn. Umferðin er beint til beggja
hliða við götuna þannig að allir sem
fara í gegn keyra annaðhvort beint
upp við verslunarmiðstöðina eða
hinum megin við leikskólann. Petta
er náttúrulega fáránlegt og miklu
hættulegra heldur en að hafa opið í
gegn, því mikið er af börnum og
gangandi fólki þar. Einnig er eitt
mál að það eru þrír leikskólar í göt-
unni. Ef þú býrð vitlausum megin í
götunni þarft þú að fara út úr
hverfinu og koma hinum megin að
til að koma barninu á leikskóla.
A sínum tíma fór fram könnun
meðal íbúa í hverfinu og meirihluti
vildi hafa opið á milli, en ekki hafa
þetta eins og er í dag. En í annan
stað er einnig mikil slysahætta í
götunni, fáar hraðahindranir og í
ljósi þess að þarna er einn fjöl-
mennasti barnaskóli á landinu, þá
er fáránlegt að ekki skuli vera
gangbrautaverðir eða gönguljós
fyrir börn sem eru að fara í skól-
ann. Gatan býður upp á hraða sem
margir greinilega geta ekki hamið.
Því þarf að setja fleiri hindranir,
opna á milli og taka þennan sölu-
turn í burt. Vonandi fara þeir sem
eru núna með völdin í borginni að
hlusta þó ekki væri nema einu sinni
á íbúa í Grafarvogi.
INGVAR RAGNARSSON,
Hrísrima 23, Reykjavík.
Hestamenn og
mótorhj ólamenn
Frá Heimi Barðasyni:
MIG LANGAR að svara grein eftir
Erling Sigurðsson sem birtist í Bréf-
um til blaðsins föstudaginn 1. sept-
ember sl. Þar talar hann um böðul-
gang torfæruhjólamanna á göngu-
stígum og reiðvegum í nágrenni
Rauðavatns.
Vel má vera að Erlingur og aðrir
hesta- og göngumenn hafi lent í
klóm mótorhjólaökumanna „sem
einskist svífast" og er það að sjálf-
sögðu leitt, en í þessu samhengi
langai- mig sem torfæruhjólaöku-
mann og meðlim í Vélhjólaíþrótta-
klúbbnum, skammstafað VIK, að
Frá Árna Gunnari Vigfússsyni:
VARLA þarf að fara mörgum orðum
um þá miklu slysaöldu sem átt hefur
sér stað í umferðinni að undanförnu.
Dauðaslysin í umferðinni eru nú
þegar orðin næstum jafnmörg og í
meðalári. Það er löngu ljóst að helsta
orsök alvarlegra umferðarslysa er of
mikill hraði miðað við aðstæður, oft
vegna ótímabærs framúraksturs eða
dómgreindarskorts sem helgast af
ölvunarakstri eða öðru þaðan af
verra. Önnur ástæða tíðra slysa á
þjóðvegum kann að vera sú að eftir-
lit lögreglu virðist vera minna en áð-
ur og þess vegna komast ökumenn
upp með að aka of hratt - oft með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Margir velta því fyrir sér hvað sé til
ráða í baráttunni við umferðarslysin.
Mig langar til að koma með þá til-
lögu að settar verði upp nokkurs
konar „skuggamyndir" af manneskj-
um utan við veginn þar sem dauða-
slys hafa átt sér stað í umferðinni.
Þessar skuggamyndir mætti búa til
úr járni eða einhverju sterku efni og
staðsetja utan vegar til þess að
minna aðra vegfarendur á hætturn-
ar í umferðinni og þá staðreynd að
einmitt á þessum tiltekna stað hafi
þetta margar manneskjur látið lífið í
umferðinni. Ég er sannfærður um að
þetta hefði áhrif í þá átt að fækka
slysum. Nú hef ég reyndar heyrt þau
rök, að mig minnir frá Umferðarráði
eða Vegagerðinni, að allt sem minni
á dauðaslys á tilteknum stað veki
sárar minningar aðstandenda hinna
látnu. Mér er þó næst að halda að oft
séu aðrir fullviðkvæmir fyrir þeirra
hönd og sjálfur hef ég orðið var við
að margir vilja leggja baráttunni við
umferðarslysin lið með einhveijum
hætti og eru ekki mótfallnir ofan-
greindum aðgerðum - jafnvel þótt
þetta kunni að vekja sárar minning-
ar. í slíkum tilfellum segir fólk
nota þetta tækifæri og velta því und-
an steini hvað sé orsök og hvað af-
leiðing, þegar svona árekstrar eiga
sér stað. Hver er sekur og hver sak-
laus? Ég tel nefnilega ástæðuna fyr-
ir þessum árekstrum milli hesta-
manna og mótorhjólamanna vera
ósköp einfalda; vélhjólaíþróttamenn
fá ekki framtíðarsvæði úthlutað til
að stunda sína íþrótt. Svo einfalt er
það. Og á meðan ekkert svæði er
fyrir hjólamenn er notast við það
sem hendi er næst.
Hestamenn njóta skilnings og
pólitísks stuðnings til að stunda sína
íþrótt, maður myndi ætla að þessi
sjálfsögðu mannréttindi giltu einnig
gjarnan að missirinn sé staðreynd
en ef dauði ástvinar gæti komið í veg
fyrir önnur dauðaslys eða alvarleg
slys sé tilganginum náð. í því sam-
bandi væri fróðlegt að heyra sjónar-
mið þeirra sem misst hafa ættingja í
umferðarslysum. Ég mæli með því
að þessi hugmynd verði skoðuð í
fullri alvöra - því fátt tel ég áhrifa-
ríkara en slíka áminningu á vegum
úti. Þegar og ef þessar hugmyndir
ná fram að ganga er víst að vegfar-
endur um Reykjanesbraut (Kefla-
víkurveginn) færu ekki langan veg-
arspotta án þess að sjá slíkum
skuggum bregða fyrir - enda hefur
þessi hættulega braut tekið a.m.k. 39
mannslíf frá upphafi. Og því miður
er víst að fáir vegir ef nokkrir
myndu sleppa við þessa vafasömu
„skreytingu".
ÁRNIGUNNAR VIGFÚSSON,
meðlimur í Stanz-hópnum
Trönuhjalla 10, Kópavogi.
Vélhjólaíþróttamenn fá ekki
framtíðarsvæði úthlutað til að
stunda sína íþrótt, segir grein-
arhöfundur.
fyrir vélhjólaíþróttamenn, en svo er
því miður ekki. Velunnarai- klúbbs-
ins hafa bent á að klúbbinn vanti
„vigt“ og „þrýsting" eins og það er
kallað á pólítísku máli. Eiga þessi at-
riði að hafa úrslitaáhrif á hvort fólk
geti stundað sitt áhugamál?
Á meðan þessi skilningur er ekki
fyrir hendi hjá yfirvöldum mun
vandinn einfaldlega vaxa. Því að
sjálfsögðu viljum við fá að nota okk-
ar hjól, eins og hestamenn vilja
skella sér á bak sínum gæðingum.
Vélhjólaíþróttaklúbburinn VÍK,
stofnaður í október 1978, hefur
reynt í 22 ár að fá úthlutað örlitlum
landskika til framtíðar undir íþrótt
félagsmanna sinna en alltaf verið
synjað af þeim sem málið varðar. Við
höfum fengið bráðabirgðasvæði á 14
mismunandi stöðum til æfinga og
keppni á þessum 22 árum og er ég
viss um að jafnvel hestamenn ættu.í
erfiðleikum með að stunda sína
íþrótt, þegar færa þarf alla reiðstíga
og keppnisvelli að ári liðnu af því að
bráðabirgðaleyfið er útrunnið! Sú
aukning sem orðið hefur í ástundun
mótorhjólaíþróttarinnar á sl. árum
knýr orðið á um að VÍK fái fram-
tíðaraðstöðu, þannig að hægt sé að
beina keppnistækjum félagsmanna
á eitt afmarkað svæði. Þannig
myndu árekstrar milli hestamanna/
göngumanna og hjólamanna verða
hverfandi. Allir yrðu syngjandi sælir
og glaðir í sínum hnökkum.
HEIMIR BARÐASON,
Bollagötu 7, Reykjavík.
ÚTSALA
SÍÐASTA VIKA
Verslunin hættir um mánaðamótin
Allt á kostnaðarverði t.d.:
Borðstofusett, buffet-skápar, skenkar,
kóngastólar, barskápur og margt fleira.
ANTIK GALLERY
Vegmúla 2, sími 588 8600.
t fD y §L °P'ð virka daga kl. 12-18,
Euro og Visa raðgreiðslur laugardaga kl. 12-16.
Skuggar látinna
- þörf áminning
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 63
Rrækin
Fræg
ramfíð
fortíð
KeLiretn*
-vinur vina sinna.
.t
Fmbært
tflboð
Tilboð
17.900 kr.
Verð áður "26^333.
Grill á þremur hæðum
Fellanleg hliðarborð
HÚSASMIÐJAN
Sími 525-3000 * www.husa.is
Kanarí-
veisla Heimsferða
í vetur
Hr. 39.255
Heimsferðir kynna nú glæsilega vetraráætlun sína með spennandi
ferðatilboðum í vetur og stórlækkuðu verði frá því í fyrra. Nú lækkar
ferðin um 10-18 þúsund krónur fyrir manninn um leið og við kynnum
frábæra nýja gististaði á ensku ströndinni.
Beint vikulegt flug alla þriðjudaga í allan vetur. Þú getur valið þá
ferðalengd sem þér best hentar, 1, 2, 3, 4 vikur eða lengur, og nýtur
þjónustu okkar reyndu fararstjóra á meðan á dvölinni stendur.
Aldrei lægra verð
Bókaðu strax og tryggðu þér
16-21% verðlækkun frá því
í fyrra.*
v^h,. 39.255
Vikuferð, 9. janúar, hjón með 2 böm.
Verð kr. 44.755
2 vikur, 9. janúar, hjón með 2 böm.
Verðkr. 59.990
2 í íbúð, 2 vikur, Monterey.
• Prósentudæmi er miðað við 3ja vikna
fcrð í janúar árið 2001, m.v. 3ja vikna
ferð, árið 2000.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is