Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Víkingaskipið fslendingur komið í höfn í New York eftir tæplega fiögurra mánaða siglingu
*
Víkingaskipið Islend-
ingur kom til New York
á hádegi í gær og var
það lokaáfangi skipsins í
siglingunni frá íslandi
til Ameríku sem Gunnar
Marel Eggertsson og
áhöfn hans lögðu upp í
17. júní sl. Margrét
S veinbj örnsdóttir
blaðamaður og Einar
Falur Ingóifsson ljós-
myndari fylgdust með
þegar nútímavíkingarn-
ir íslensku stigu á land í
South Street Seaport og
var vel fagnað.
AUSTANKALDINN á oss blés,
söng Egill Ólafsson á hafnarbakkan-
um í South Street Seaport þegar ís-
lendingur lagði að landi kl. 12 á há-
degi í gær. Reyndar blés gjólu-
strengur af norðri og það var
alskýjað en 17 stiga hiti. Fremst á
hafnarbakkanum biðu eftirvænting-
arfullar eiginkonur skipverja - og
eiginmaður einu konunnar í leið-
angrinum - og tóku hlýlega á móti
mökum sínum eftir langan aðskilnað.
Aðrir viðstaddir hylltu þá einnig með
áköfu lófataki um leið og Egill kynnti
áhafnarmenn einn af öðrum þar sem
þeir gengu á land.
„Takmarkinu er náð,“ sagði Gunn-
ar Marel Eggertsson, skipstjóri ís-
lendings, þegar hann hafði siglt skipi
sínu heilu í höfn. Að baki eru 4.000
sjómílur og hálfs fjórða mánaðar
sigling í kjölfar Leifs Eiríkssonar, en
ferðin var farin til að minnast þess að
þúsund ár eru liðin frá því að nor-
rænir menn settust að í vesturheimi.
„Mér líður vel og ég er mjög ánægð-
ur með að hafa klárað þetta og kom-
ist hingað. Það var aldrei alveg gefíð
að við myndum komast alla leið án
þess að hálfsökkva skipinu eða jafn-
vel sökkva því alveg,“ sagði hann,
þreyttur en ánægður. Aðspurður um
hvað nú tæki við kvaðst hann fyrst
ætla að byija á því að taka sér frí
með fjölskyldunni í einn til tvo mán-
uði. „Ég hef ekki tekið frí síðan 1994
þegar ég byrjaði að smíða skipið.“
Erum orðin eins og systkini
Jón Baldvin Hannibalsson, sendi-
herra íslands í Bandaríkjunum,
bauð hina íslensku nútímavíkinga
velkomna og minntist þeirra sem á
undan þeim komu, Leifs Eiríkssonar
og Guðríðar Þorbjarnardóttur.
Guðmundur Ámi Stefánsson,
fyrsti forseti Alþingis, lýsti stolti ís-
lensku þjóðarinnar yfir hugrekki
Gunnai's Marels og félaga og sagði
skipið hafa sýnt sig að vera stórkost-
legur farkostur og leiðangurinn allan
verðuga Islandskynningu, sem hefði
styrkt mjög þau góðu bönd sem eru
milli íslands annars vegar og Græn-
lands, Kanada og Bandaríkjanna
hins vegar. Guðmundur Árni afhenti
fulltrúa borgarstjóra New York,
Henry Stern, yfímanni garða New
York-borgar, nýja heildarútgáfu ís-
lendingasagnanna í enskri þýðingu.
Stern þakkaði höfðinglega gjöf og
sagði að hún myndi skipa virðingar-
sess í bókasafni borgarinnar. Hann
rifjaði upp að hann hefði komið til Is-
lands ungur maður árið 1968 og
keypt þar fallega lopapeysu sem
hann hefði notað lengi en með ár-
unum hefði mölur grandað henni.
Hann varð því afar glaður þegar Jón
Baldvin færði honum nýja íslenska
peysu. „Hún fer ekki á bókasafnið,"
sagði Stern.
Blaðamaður hitti Ellen Ingvadótt-
ur, skipverja á íslendingi, sæla á
svip með eiginmann sinn, Þorstein
Inga Kragh, sér við hlið að móttöku-
athöfninni lokinni. Aðspurð um hvað
henni væri efst í huga við komuna í
Morgunblaðið/Einar Falur
5. október 2000. Víkingaskipið Islendingur kemur til New York og iýkur ferðinni sem hófst á íslandi 17. júní.
Gunnar Marel fagnar er hann gengur á land í New York að ferðalokum.
höfn sagði hún: „Það er stoltið yfir
því að vera í áhöfninni. Okkur hefur
tekist að ná því marki sem við sett-
um okkur og sem kona er ég afskap-
lega ánægð með það að við í áhöfn-
inni erum orðin nánast eins og
systkini. Ég hef eignast átta bræður
sem hafa virkilega látið mig vinna
fyrir brauði mínu og ég hef lært gíf-
urlega mikið á þessum tíma,“ segir
Ellen og bætir við að hún verði
marga mánuði að vinna úr þeirri
reynslu. „Ég held að þetta hafi í raun
og veru verið miklu meira ævintýri
en þau gerðu sér nokkum tíma í hug-
arlund,“ segir Þorsteinn.
Hefur haft gríðarlega þýðingu
fyrir alla kynningu á Islandi
Magnús Bjarnason, viðskiptafull-
trúi utanríkisráðuneytisins í New
York, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sigling víkingaskipsins Is-
lendings hefði haft gríðarlega þýð-
ingu fyrir alla kynningu á Islandi
vestanhafs. „Það segir dálítið mikið
að ísland er búið að vera meira í
fjölmiðlum hér í landi en nokkurt
hinna Norðurlandanna. Það hefur
verið fjallað um ísland í öllum meiri
háttar fjölmiðlum sem ná til landsins
alls og í öllum svæðisfjölmiðlum á
þeim stöðum þar sem skipið hefur
komið. Og þá erum við ekki bara að
tala um víkingana og söguna, heldur
einnig íslenska menningu; tónlist,
leiklist, myndlist, mat, hestar, skák,
allt mögulegt - allt undir kjörorðinu
„Iceland naturally“. Við erum að
kynna Island og selja íslenska fram-
leiðslu, við erum byggja upp ímynd
hreinleika landsins og ég held að sú
ímynd eigi eftir að gagnast okkur um
ókomna framtíð. Og það er engin
spurning að við höfum náð að koma
skilaboðunum frá okkur og við erum
ekki í nokkrum vafa um að við erum
að senda rétt skilaboð. Við erum
heldur ekki í vafa um að við munum
uppskera - og uppskeran verður í
formi meiri eftirspumar og þar með
hærra verðs,“ segir Magnús.
Fólk farið að halda að viking-
arnir hafi verið hið besta fólk
„Kannski er okkar vandamál orðið
það að þessi ótrúlega landkynning,
þeim stöðum sem skipið hefur komið
er ótrúlegt - og það sannar bara eitt:
þetta ævintýri; örfáir einstaklingar á
opnum bát, gagnvart þessu víðáttu-
mikla úthafi, hefur kveikt í hug-
myndaflugi fólks, þetta vekur ósvik-
inn áhuga og aðdáun, og frammi-
staða Gunnars skipstjóra hefur verið
landi og þjóð til sóma. Maðurinn er
svo gegnekta - það finna það allir,"
segir hann.
Hvað er skipstjóri
án áhafnar?
„Hvað er skipstjóri án áhafnar?"
spurði Gunnar Marel í ávarpi sínu og
bað félaga sína í áhöfninni að stíga
fram, við mikið lófatak viðstaddra.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að nú væri komið að því að
reyna að slaka aðeins á og létta á
huganum. „Nú hef klárað það sem ég
ætlaði mér í upphafi. Mínu hlutverki
í sambandi við skipið er eiginlega
lokið.“ Aðspurður um hvað verði um
íslending segir hann það allt enn
óljóst. „Ég veit satt að segja ekki
hvað verður með hann. Það eru alls
konai' tilboð og hugmyndir á lofti um
áframhaldið. Það hefur jafnvel kom-
ið til tals að sigla honum eitthvað
meira um Bandaríkin á næsta ári -
en skipið er til sölu og ég vona að
hver sem það verður sem kaupir það
þá muni hann hugsa um skipið þann-
ig að það geti gegnt sínu hlutverki
áfram sem íslenskt víkingaskip og
breiði út okkar orðstír eftir sem áð-
ur. Ég held að það þurfi ekkert að
vera verra að skipið verði hér í
Bandaríkjunum."
Að móttökuathöfninni við South
Street Seaport lokinni var siglt út að
Frelsisstyttunni og í gærkvöld bauð
svo Jón Baldvin Hannibalsson
áhöfninni og öðrum gestum til mót-
töku. I gærkvöld voru einnig íslensk-
ir rokktónleikar á höfninni, þar sem
hljómsveitirnar Ensími og Jagúar
tróðu upp ásamt Páli Óskari Hjálm-
týssyni. Þá munu Tríó Björns Thor-
oddsen og Egill Ólafsson einnig
skemmta um helgina, m.a. með dag-
skránni Heimsreisa Höllu. Skipið
verður opið almenningi og skóla-
börnum til skoðunar fram til 22.
október.
5. október 2000. Víkingaskipið íslendingur kemur til New York og lýk-
ur ferðinni sem hófst á íslandi 17. júní. Eiginkonur Jóels Gunnarssonar
og Gunnars Marels fagna þeim þegar þeir ganga á land að ferðalokum.
5. október 2000. Víkingaskipið fslendingur kemur til New York og lýk-
ur ferðinni seni hófst á íslandi 17. júní. Skipverjar sigla fslendingi fram-
hjá frelsisstyttunni í hafnarmynni New York-borgar.
sem er langt umfram nokkuð sem
mönnum datt í hug fyrirfram og
langt umfram þá kynningu sem
nokkru sinni hefur verið á Islandi,
fer að skila sér í öllum ferðalöngun-
um sem vilja sækja heim þetta tísku-
land, þá getum við ekki tekið við
þeim. Við verðum að fjárfesta miklu
meira í því sem þarf til að taka á móti
gestum af öllu tagi því að ísland er í
tísku og víkingar eru í tísku - menn
eru farnir að halda að þetta hafi ver-
ið hið besta fólk,“ segir Jón Baldvin.
„Úrklippusafnið úr blöðum frá öllum
Áhöfnin hyllt með lófa-
taki er hiín gekk á land