Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 6. OKTOBER 2000 51 FJOLMIÐLUN Pressukvöld Blaðamannafélags fslands um samskipti lögreglunnar og fjölmiðla Lögreglunm ber ekki að ritstýra Með samskiptum lögreglu og einstakra fjölmiðla í opinberri heim- sókn Li Peng vöknuðu aftur upp spurningar um rétt fjölmiðla til aðgangs að fréttaviðburðum. Arna Schram greinir hér frá umræð- um um þessi mál sem fram komu á Pressukvöldi BÍ fyrir skömmu. ÞAÐ VAR ekki í fyrsta sinn sem sló í brýnu milli lögreglu og fjölmiðla þeg- ar Ámi Snævarr fréttamaður á Stöð 2 hugðist í september sl. spyrja Li Peng, forseta kínverska þingsins, hvað hæft væri í þeim ásökunum um að hann bæri ábyrgð á blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Eða þegar hinn sami fréttamaður hugðist greina frá heimsókn Li Peng til íslenskrar fjölskyldu í fjölbýlishúsi í Gyðufelli í Reykjavík. Skammt er að minnast þess þegar Logi Bergmann Eiðsson, fréttamað- ur á Sjónvarpinu, var handtekinn og færður inn í lögreglubíl er hann var við fréttaöflun ásamt kvikmynda- tökumanni á vettvangi bruna í máln- ingarverksmiðju Hörpu í lok janúar árið 1999. Umræða um aðgang fjöl- miðla að fréttaviðburðum er því ekki ný af nálinni. Hún hefur komið upp aftur og aftur í gegnum tíðina, þegar tilefni hefur gefist til, til að mynda þegar aðgangur fjölmiðla að vett- vangi náttúruhamfara eða slysa hefur verið takmarkaður. Samskipti lögreglunnar og fjöl- miðla voru enn á ný til umfjöllunar á Pressukvöldi Blaðamannafélags ís- lands nú fyrir skömmu. Tilefnið voru samskipti Áma Snævairs við lög- regluna í tengslum við heimsókn Li Pengs en markmiðið var ekki síður að ræða aðgengi fjölmiðla að fréttaat- burðum og heimild lögreglunnar til að takmarka slíkan aðgang. Frummæl- endur voru Logi Bergmann Eiðsson fréttamaður á Sjónvarpinu, Atli Gíslason lögmaður Blaðamannafélags Islands og Pétur Gunnarsson blaða- maður á Morgunblaðinu. Logi sýndi m.a. lifandi myndir af nokkrum atburðum þar sem lög- reglan hindrar störf frétta: og myndatökumanna á vettvangi. Á ein- um stað kom ofbeldi af hálfú lög- reglunnar við sögu. Þá sýndi hann myndskeið _sem tengdust heimsókn Li Peng til íslands. A þeim kom fram að sjónvarpsmenn frá kínverska al- þýðulýðveldinu höfðu betri aðgang að fundum Li Peng með íslenskum ráða- mönnum en íslenskir sjónvarpsmenn. Á einu myndskeiðinu sést hvar töku- maður Sjónvarpsins var staddur úti á grasbala töluvert frá aðalinngangi Bessastaða, en tilefnið var heimsókn Li Peng til Ólafs Ragnars Grímsson- ar, forseta íslands. Sagði Logi að ís- lenskum fjölmiðlamönnum hefði verið sagt að vera úti á túni þar til kín- versku gestimir væru komnir inn, en þá mættu þeir taka myndir inni af Ól- afi Ragnari og Li Peng í eina mínútu. Greindi Logi frá því að þegar töku- maður Sjónvarpsins hefði verið inni í um það bil sjö sekúndur hefði honum verið skipað að fara út. „Og af þeim fóru fimm í að stilla fókusinn," sagði Logi Bergmann. Síðan sýndi hann myndskeið sem borist hefðu frá „fjöl- miðlum“ í Kína þar sem sjá mátti greinargóðar myndir af því þegar Li Peng sat inni á Bessastöðum ásamt fylgdarliði á tali við Ólaf Ragnar Grímsson. Það myndskeið hefði auk þess varað lengur en eina mínútu! í máli Atla kom fram að tilburðir lögreglu við að hindra myndatöku og spumingar fjölmiðlamanna fæli að sínu mati í sér ritskoðun sem gengi gegn tjáningafrelsisákvæði 73. gr. stjómarskrárinnar. Sagði hann það ekki vera í verkahring lögreglu að stýra því sem væri myndað eða sagt. Það stæði blaðamönnum næst að bera ábyrgð á því sem þeir sendu frá sér í samræmi við reglur þar að lútandi svo sem reglur um friðhelgi einkalífs. Atli greindi frá því að tjáningar- frelsisákvæði mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994 og 19. gr. alþjóða- samings um borgaraleg og stjóm- málaleg réttindi væra ítarlegri en tjáningarfrelsisákvæði sfjómarskrár- innar. í þeim væri sérstaklega tekið fram að í tjáningarfrelsinu fælist frelsi til þess að leita, taka við og miðla alls konar vitneskju og hug- myndum án tillits til landamæra og eftir leiðum að eigin vali. Þennan rétt mætti aðeins takmarka að vissu marki, til dæmis til að virða réttindi eða mannorð manna. Dró Atli þá ályktun að full ástæða væri til að setja skýrari reglur um samskipti lögreglu og fjölmiðla þar sem fullt tillit væri tekið til mikilvægi starfa blaðamanna og réttindi þeirra samanber mannréttindasáttmála þá sem hér hafa verið nefndir. Reglu- mar geti ekki verið grandvallaðar á einberum lögregluforsendum. í máli Péturs kom m.a. fram að brýn þörf væri á því að íslenskir blaðamenn huguðu að réttarstöðu sinni þegar kæmi að aðgangi þeirra að fréttaviðburðum og að þeir færðu það mál yfir á vettvang formlegrar hagsmunabaráttu sinnar. Sagði hann það reyndar mega undran sæta að blaðamenn hefðu ekki þegar látið taka saman ítarlega lögfræðilega greinargerð málstað sínum til stuðn- ings og benti á að hann hefði í undir- búningi sínum fyrir Pressukvöldið ekki fundið nein merki þess að ís- lenskir lögfræðingar hefðu látið sig. málið varða. Virtist honum því sem'* erindi Atla Gíslasonar fyrr um kvöld- ið hefði verið fyrsta markvissa og op- inbera umfjöllun íslensks lögfræðings um þetta efni. Pétur sagðist hafa fylgst með mál- um af þessu tagi um langt skeið og kvaðst telja að öll saga samskipta lög- reglu og blaðamanna á vettvangi sýndu að lögreglan bryti lögvarinn rétt blaðamanna með því að gæta ekki hófs þegar ákvarðanir væru teknar um að skerða athafnafrelsi blaðamanna á almannafæri. Minnti hann á að í dómum Mannréttinda-^ dómstóls Evrópu mætti sjá það álit* dómstólsins að blaðamenn ættu ekki aðeins rétt heldur bæri skylda til að afla og miðla frétta í þágu almennings og að fjölmiðlar hefðu algjört frelsi um form og framsetningu þeirra frétta sem þeir flyttu. í Ijósi þessa sagði Pétur að það hlyti að vera augljóst að hagsmunir blaðamanna á vettvangi nyti mikillar vemdar að réttum lögum, vemdar sem vörðuðu tjáningafrelsi og barátt- unni gegn ritskoðun. Svo ríka hags- muni gæti lögreglu ekki verið heimilt að skerða nema af ítrastu varúð og að undangengnu vandlegu og málefna- legu mati á þeim hagsmunum sem væra í húfi hverju sinni. Eftir framsögumar urðu nokkrar ll' umræður en þar steig m.a. í pontu Geir Jón Þórisson, aðstoðar yfirlög- regluþjónn. Sagðist hann ekki vilja annað en góð samskipti við fjölmiðla. Einnig urðu nokkrar umræður um þær myndir sem Logi sýndi og sögðu þeir fulltrúar lögreglunnar sem vora á staðnum að sú hegðun sem þar kæmi fram af hálfu lögreglunnar væri ekki til fyrirmyndar. N aflaskoðun í New York Times Bandaríska dagblaðið The New York Times birti tvívegis í sömu vikunni greinar þar sem fjallað var um fréttaflutning þess af máli kínversk-banda- ríska vísindamannsins Wen Ho Lee. Karl Blöndal fjallar um ásakanir á hendur stórblaðinu. Reuter Dr. Wen Ho Lee gengur út í frelsið í Albuquerque í Nýju Mexikó. Til hægri við hann er Mar Holscher, lögfræðingur hans, en dóttir hans, Alberta Lee, er til vinstri TVÆR óvenjulegar greinar birtust í banda- ríska dagblaðinu The New York Times í lok september. Báðar greinamar fjölluðu um mál, sem dagblaðið hafði slegið upp með lát- um fyrir rúmu ári, og voru nokkurs konar af- sökunarbeiðni þótt ekki væri beinlínis beðist afsökunar á fréttaflutningi blaðsins. The New York Times greindi frá því 6. mars 1999 að bandarísk stjórnvöld teldu að Kínverjar hefðu tekið stökk fram á við í gerð kjamorkuvopna vegna leyndarmála, sem þeir hefðu stolið frá Bandaríkjamönnum. Sagði í greininni að rannsókn málsins beind- ist einkum að bandarískum vísindamanni af kínverskum uppruna, sera starfaði við kjarn- orkurannsóknir í Los Alamos í Nýju Mexikó. Tveimur dögum síðar var maðurinn rekinn og greint frá því að hann héti Wen Ho Lee. Níu mánuðum síðar var Lee ákærður og gefið að sök að hafa flutt gríðarlegar upp- lýsingar, sem takmarkaður aðgangur átti að vera að, frá rannsóknarstofunni á tölvu, sem auðvelt var að nálgast. Hann sat í einangrun í níu mánuði og var ekki sleppt fyrr en í ágúst. I yfirheyrslum var honum hótað öllu illu og mál hans meðal annars borið saman við mál Rosenberg-hjónanna, sem tekin voru af lífi fyrir njósnir í árdaga kalda stríðsins. Bandaríkjamenn af kínverskum uppruna segja að uppruni Lees hafi ráðið miklu um það hvaða stefnu málið tók og frammistaða rannsakenda sé rannsóknarefni. Gagnrýnin hefur einnig beinst að íjölmiðlum og þá sér- staklega The New York Times. Formælendur Lees héldu því fram að blásið hefði verið til nornaveiða með The New York Times í broddi fylkingar og blaðið hefði nánast sak- fellt manninn. Forsetaembættið kenndi meira að segja þrýstingi fjölmiðla um og var sérstaklega tekið til þess að blaðið hefði kynt undir ákafa dómsmálaráðuneytisins. Upprunalega voru ákæruatriðin 59, en þegar Lee var látinn laus stóð eitt eftir. Lee játti því að hafa farið óvarlega með kjarn- orkuleyndarmál og upplýsti hvað varð um þau gögn, sem hann tók, gegn því að vera lát- inn laus og vera laus allra mála. Louis Freeh, yfirmaður bandarísku al- ríkislögreglunnar, FBI, gerði grein fyrir lyktum málsins á Bandaríkjaþingi og hélt því fram að líkast til hefði verið hægt að knýja fram sakfellingu, en í réttarhöldum hefði að öllum líkindum orðið að afhjúpa kjarnorku- leyndarmál og óvíst hvort hægt hefði verið að komast að hvað orðið hefði um þær upp- lýsingar, sem Lee hafði með sér úr rannsókn- arstofunni. Aldrei ákært fyrir slíkt brot áður Þessi niðurstaða hefur verið gagnrýnd. Annars vegar eru þeir, sem segja að ríkis- valdið hefði ekki átt að láta stilla sér upp við vegg með hótunum um að opinbera upp- lýsingar við réttarhöld. í þeim hópi eru margir þingmenn repúblikana. Hins vegar eru þeir, sem segja að stjórnvöld hafi farið offari, meðal annars vegna uppruna Lees. Því til stuðnings hefur verið bent á að þessi sextugi vfsindamaður, sem mestallt sitt líf starfaði að öryggismálum í Bandarfkjunum, hafi verið neyddur til að játa á sig sakir, sem ekki sé vitað til að hafi verið kæruefni í sam- bærilegum málum. Besta dæmið sé John Deutch, forveri Freehs í FBI, sem setti leyni- legar upplýsingar inn á tölvu, þar sem tölvu- þrjótar hefðu átt greiðan aðgang, án þess nokkru sinni að vera ákærður. í The New York Times birtist sfðan rit- stjórnargrein 26. september þar sem segir að reglan sé að sú blaðamennska, sem þar sé stunduð, tali sínu máli. Niðurstöður þessa máls og þær sakir, sem blaðið hafi verið bor- ið, geri hins vegar að verkum að gera verði lesendum grein fyrir málinu auk þess sem í húfi hafi verið frelsi manns og orðstír. „Á þeim dögum, sem liðnir eru frá því að sókn málsins Iauk, hefur blaðið horft til baka yfir fréttaflutninginn,“ segir þar. „f heildina erum við stoltir af fréttaflutningi, sem dró fram í dagsljósið alvarlegt vandamál í þjóðar- ^ öryggismálum, sem embættismenn höfðu vit- að af svo mánuðum og jafnvel árum skipti.“ í greininni segir að farið hafi verið með gát í gagnaöflun, staðreyndir rækilega staðfest- ar og sömuleiðis upplýsingar úr viðtölum. „En við þessa endurskoðun höfum við einn- ig komist að því að suma hluti vildum við óska að við hefðum gert með öðrum hætti þannig að doktor Lee fengi að fullu notið vaf- ans,“ segir í greininni. „Á þessum mánuðum hefðum við getað knúið fastar á til að fletta ofan af veikleikum í máli FBI gegn dr. Lee. Það hefði styrkt fréttaflutning okkar ef við hefðum unnið hraðar að þvf að meta vísinda- legar, tæknilegar og rannsóknarlegar tilgát- ur, sem leiddu til þess að FBI og orkumála- ráðuneytið tengdu dr. Lee þessu máli, sem enn er af mörgum viðurkennt að varði al- varlegt brot á öryggisreglum." í greininni í The New York Times er því haldið fram að blaðið hafi ekki átt þátt í því hvernig gengið var fram gegn Lee. Rann- sóknin hafi verið komin í þennan farveg löngu áður en fréttaflutningur blaðsins af málinu hófst. Síðan segir hins vegar að á upphaflegu greininni hafi verið gallar, sem séu mun aug- Ijósari nú þegar veikleikarnir í málatilbúnaði FBI gegn Lee séu komnir í ljós. Ekki hafi ver- ið kannað hvort mögulegt væri að upp- lýsingar hefðu borist Kínverjum án þess að Lee hefði leikið þar stórt hlutverk eða yfir- höfuð verið viðriðinn málið. Óviðeigandi áherslur Blaðið gengst einnig við því að hafa oft skrifað með áherslum, sem ekki voru viðeig- andi. f grein, sem birtist í júní 1999 sagði að verið gæti að Lee „bæri ábyrgð á skaðlegustu njósnum eftir lok kalda stríðsins“. Reyndar hafi þetta verið haft eftir embættismönnum og þingmönnum, flestum úr röðum repúblik- ana, en slíkar athugasemdir hefði átt að tempra með skoðunum þeirra, sem efuðust um réttmæti ásakananna gegn Lee. Blaðið gengst við því að hafa ekki staðist þær kröfur, sem það gerir til sjálfs sín og skellir skuldinni á þá, sem stjórnuðu frétta- flutningnum. Þeir hafi ekki spurt spurninga, sem ekki hvörfluðu að þeim fyrr en síðar. „Þessi reynsla dregur hins vegar ekki á nokkurn hátt úr trausti okkar til blaðamanna okkar,“ segir í greininni í The New York Times. „Þeir voru fylgnir og sanngjarnir í fréttaöflun sinni þrátt fyrir harðar árásir.“ The New York Times er ekki þekkt fyrir að skrifa um innanhússmál. Það að blaðið hafi gert það tvisvar í sömu vikunni ber því vitni að það hafi verið farið að hitna í kolun- um á ritstjórninni. ^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.