Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBE R 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Endurbótum á Akureyrarflugvelli lýkur senn Morgunblaðið/Kristján Brottfararsalurinn hefur verið lagfærður, veitingaaðstaða færð til í húsinu og byggður glerskáli austan megin við húsið með útsýni yfir flugbrautina. Aðstaða bætt og öryggi farþega aukið Morgunblaðið/Kristj án Halla Björg Reynisdóttir, flugumferðarstjóri á Akureyri, við ratsjár- mynd sem sýnir flugumferð yfir íslandi, en búnaðurinn var nýlega sett- ur upp í flugturninum á Akureyrarflugvelli og eykur mjög öryggi. UMFANGSMIKLAR endurbætur hafa staðið yfir á Akureyrar- flugvelli og í flugstöðvarbygging- unni í sumar og haust og fer þeim senn að Ijúka. Lítið sem ekkert hef- ur verið hróflað við þeim hluta byggingarinnar sem nú hefur gengið í endurnýjun lífdaganna síð- ustu fjóra áratugi. Nýr búnaður í flugtumi og endumýjun brautar- ljósa á flugvellinum auka öryggi vallarins til muna. Sigurður Hermannsson umdæm- isstjóri Flugmálastjórnar á Norður- landi sagði að nokkurt rask hefði fylgt framkvæmdum en farþegar og starfsfólk sýnt mikla þolinmæði. Nú væru allir vonandi ánægðir, enda hefði flugstöðin fengið mikla andlitslyftingu. Brottfararsalur stækkaður og veitingaaðstaða færð Aðstaða starfsmanna var flutt af fyrstu hæð byggingarinnar upp á aðra hæð. Rýmið sem við flutning- inn losnaði á fyrstu hæðinni er nú notað undir fragtafgreiðslu. Mestu breytingamar era á miðhluta flug- stöðvarinnar, í brottfararsal og veitingasal. Byggður var glerskáli til austurs og salurinn þannig stækkaður, veitingasalan var færð til í húsinu og þar sett upp borð og stólar. Nýr glergangur hefur verið reistur fyrir komufarþega og í enda hans verður sett upp vegabréfa- skoðun til að uppfylla megi kröfur vegna Schengen-samkomulagsins. Því verkefni verður lokið á næsta ári. Engar meginbreytingar eða end- urbætur hafa verið gerðar á þess- um hluta flugstöðvarbyggingarinn- ar í 40 ár, en þetta er elsti hluti byggingarinnar. Sigurður sagði því tíma hafa verið kominn á að lag- færa salinn og færa hann til nú- tímalegra horfs. Þá er unnið við það að seija upp ný brautarljós á flugbrautinni og sagði Sigurður það auka öryggi á vellinum. Endurbætur hafa einnig verið gerðar í flugturni og þar sett upp ný og fullkomin tæki sem einn- ig miða að þvf að auka öryggi. End- urnýjun búnaðarins í tuminum fólst m.a. í því að settur var upp skjár, sem er beintengdur við skjá Flugumferðarstjómar í Reykjavík og geta flugumferðarstjórar á Ak- ureyri nú séð alla flugumferð yfir landinu og hefur það aukið öryggi í fór með sér. Nýtt sjálfvirkt veður- kerfi var einnig sett upp í flugturn- inum en þar má fylgjast með öllum breytingum sem verða á veðri. Verkefnum í flugturninum er ekki lokið, eftir er að lagfæra vinnuað- stöðu flugumferðarsfjóra og verður það gert á næsta ári. Á síðasta ári fóm 194 þúsund far- þegar um Akureyrarfiugvöll og hafði þá fjölgað um 13 þúsund frá því árið áður og er aukningin um 8%. Tölur liggja fyrir um fjölda far- þega á fyrstu 6 mánuðum þessa árs, en þá fóm rúmlega 99 þúsund far- þegar um völlinn og sagði Sigurður að stefndi í að farþegamir yrðu um 200 þúsund á þessu ári. Kostnaður við breytingar á flug- stöðinni nemur um 66 milljónum króna, endurnýjun brautarjjósanna 27 milljónir og þá var kostnaður við breytingar í flugturni um 12 milij- ónir króna. Þá er áætlað að kostn- aður við vegabréfaskoðun og fleira vegna Schengen kosti um 6 milljón- ir króna. Alls nemur því kostnaður við þessar breytingar um 111 miljj- ónum króna. Framkvæmdastj óri SVÞ um breyt- ingar á tollafgreiðslu Islandspósts Fullur skilning- ur á að leysa þurfí SAMTÖK verslunar og þjónustu, SVÞ, hafa átt í viðræðum við Is- landspóst vegna fyrirhugaðra breytinga á tollafgreiðslu fyrirtæk- isins til landsins. Breytingamar fela það m.a. í sér að framvegis þarf að skila tollskýrslum til Toll- stjórans í Reykjavík en ekki tál pósthúsa eins og áður var hægt. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær eru kaupmenn á Akur- eyri mjög óhressir með þessar breytingar og telja að vöruaf- greiðslu muni seinka í kjölfarið. Sigurður Jónsson, framkvæmda- stjóri SVÞ, sagði að fjölmargir verslunarmenn úti á landi hefðu haft samband við samtökin vegna þessa máls. Hann sagði að innan Islandspósts væri fullur skilningur á því að leysa þyrfti málið, þannig að báðir aðilar hefðu hag af. Sigurður sagði að fulltrúar ís- landspósts myndu mæta á aðal- fund Kaupmannafélags Akureyrar nk. mánudag, til að gera grein fyrir þessu máli. A þriðjudag eða mið- málið vikudag er svo stefnt að fundi íslandspósts með verslunarmönn- um á Selfossi. Um næstu áramót verður öll tollafgreiðsla fyrirtælqa að fara fram með rafrænni SMT-toll- skýrslu. Sigurður sagði að SVÞ hefði átt viðræður við ríkistoll- stjóra á árinu vegna þessa. „Við höfum lagt á það mikla áherslu að þessi ríkisstofnun verði aðgengileg fyrir litlu fyrirtækin. Þau geti kom- ist inn á vefsíðu tollstjóra og lokið við sínar tollskýrslur þar. Ef þau hins vegar kjósa að kaupa þessa þjónustu af millilið geta þau það líka,“ sagði Sigurður. Hann sagði að tollstjóraembætt- ið myndi á næstu dögum tilkynna hvemig þessum málum verður háttað frá og með næstu áramót- um. „Það er tíminn fram til ára- móta sem er vandamál en Póstur- inn telur sig þurfa þriggja mánaða aðlögun að þessu nýja kerfi og því er nauðsynlegt að menn ræði sam- an.“ Dixielandsveit í Deiglunni ÞAÐ ER ekki oft að heil Dixieland- hljómsveit frá höfuðborgarsvæðinu leggur land undir fót út á lands- byggðina og má því teljast til tíð- inda að níu manna Dixielandhljóm- sveit Árna ísleifssonar heldur norður í land um næstu helgi. Hljómsveitin heldur tónleika í Deiglunni á Akureyri á föstudags- kvöld 6. október kl. 22 og á Hótel Húsavík laugardag 7. október, en þar verður jafnframt haldinn dans- leikur á eftir, þar sem tækifæri gefst til að dansa eftir hvers konar tónlist allt frá Charleston upp í sveiflurokk. Þessi hljómsveit var stofnuð fyr- ir tveimur árum og hefur leikið víða í Reykjavík og nágrenni en einnig á Jazzhátíð Egilsstaða sl. sumar. Meðlimir sveitarinnar eru: Arni Isleifsson píanóleikari, stjórnandi og útsetjari, Björn Björnsson ten- órsax, Friðrik Theodórsson takka- básúna, söngur og kynningar, Guð- mundur Norðdahl klarinett og altsax, Guðmundur Steinsson trommur, Leifur Benediktsson bassi, Sverrir Sveinsson kornett, Þórarinn Óskarsson sleðabásúna og Örn Egilsson banjó og gítar. Hagyrðinga- og sönghátíð í kvöld LIONSKLÚBBUR Akureyrar og Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi standa fyrir hagyrðinga- og söng- hátíð í Iþróttahúsinu við Hrafna- gilsskóla í kvöld, föstudaginn 6. október kl. 20.30, undir yfirskrift- inni „Er hláturtaugin í lagi?“ Fimm landsþekktir hagyrðingar, Björn Ingólfsson, Ósk Þorkelsdótt- ir, Friðrik Steingrímsson, Hjálmar Freysteinsson og Pétur Pétursson munu leiða saman hesta sína á skemmtuninni en kynnir er Birgir Sveinbjörnsson. Að auki munu tveir af þekktustu söngvurum þjóð- arinnar stíga á svið, þau Oskar Pétursson og Sigrún Hjálmtýsdótt- ir. Miðaverð er 1.500 krónur en ágóðanum verður varið til kaupa og þjálfunar á fíkniefnaleitarhundi fyrir lögregluna á Akureyri. For- sala aðgöngumiða fer fram í Bóka- búð Jónasar á Akureyri. Nett ehf. sér um rekst- ur netkerfis bæjarins AKUREYRARBÆR hefur samið við Nett ehf. um rekstur netkerfis bæjarins, fjarskiptatenginga stofn- ana bæjarins, netþjónustu og um notendaþjónustu við starfsmenn bæjarins. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs á vegum Ríkis- kaupa og bárust tilboð frá öllum stærstu tölvufyrirtækjum á Akur- eyri auk Islandssíma hf. og Áiits hf. í Reykjavík. Samningurinn, sem er sá stærsti sem Nett hefur gert til þessa, fel- ur í sér að Nett mun annast marg- víslega þjónustu við starfsmenn og stofnanir bæjarins. Sem dæmi má nefna rekstur og hýsingu á net- þjónum, tengingu á öllum grunn- skólum við Netið hjá Nett með 2 mb gagnalínum og tengingu á öll- um leikskólum og ýmsum stofnun- um sem hingað til hafa ekki verið með fastlínutengingu, alls 23 að tölu. Þessu til viðbótar hefur Ak- ureyrarbær falið Nett að annast notendaþjónustu við starfsmenn bæjarins, sem var ekki innan út- boðsins. Jón Ellert Lárusson, framkvæmdastjóri Nett, sagði að Akureyrarbær sýndi fyrirtækinu og starfsmönnum þess mikið traust, samningurinn væri stór og mikilvægur áfangi í framtíðarupp- byggingu Nett. Hann sagði að Ak- ureyrarbær væri þarna að fara nýjar leiðir við rekstur upplýs- ingakerfis sveitarfélagsins, vinna ákveðið brautryðjendastarf og að mörg önnur sveitarfélög muni fylgjast með hvernig til tekst. Starfsfólki fjölgað Jón Ellert sagðist þess fullviss að fleiri sveitarfélag myndu fylgja fordæmi Akureyrarbæjar og bjóða þennan þátt í rekstri sínum út. Hann sagði ekkert því til fyrir- stöðu að Nett geti tekið að sér sambærileg verkefni fyrir önnur sveitarfélög og þá muni sú reynsla sem starfsmenn fyrirtækisins hafi aflað sér af starfinu fyrir Akureyr- arbæ koma að góðum notkum. Yfirmaður netverkefnisins hjá Nett er Ásmundur Agnarsson og Jóhann Eiríksson stýrir notenda- þjónustunni. Fyrir liggur að samn- ingurinn kallar á fjölgun starfs- fólks hjá Nett og þegar hafa verið ráðnir tveir nýir starfsmenn vegna verkefnisins sem munu hefja störf á næstu dögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.