Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 45 H Amma skipaði alltaf sérstakan sess í lífi okkar. Hún var alltaf tilbúin til að • hjálpa okkur og veita okkur góð ráð þegar við þurftum á þeim að halda. Hún kenndi okkur margt sem við munum alltaf búa að og sögunum sem hún sagði okkur frá lífinu í gamla daga munum við aldrei gleyma, en með þeim hjálpaði hún okkur að skilja ýmislegt sem annars hefði reynst okkur borgarbörnunum Ierfitt. Hin seinni ár kom hún reglu- lega á Kvisthagann og eldaði fyrir okkur. Þá gafst oft tími til að spjalla saman, segja fréttir af hinu og þessu og skiptast á skoðunum. Amma fylgdist mjög vel með allri fjölskyld- unni og fengum við fréttir af okkar fólki í gegnum hana. Þær stundir sem þá voru hversdagslegar eru nú orðnar ómetanlegar minningar um merka konu. Hún var hafsjór af fróðleik og allh’ Ékepptust um að fá að vera með henni í liði þegar spumingakeppnir voru Iháðar í fjölskylduboðunum, því þá voru fyrstu verðlaun vís. Hún hafði mikinn áhuga á íslenskum kveðskap og kunni ógrynni af kvæðum og vís- um utanbókar. Sá áhugi smitaðist til annarra fjölskyldumeðlima, en við efumst um að nokkur muni komast með tærnar þar sem hún hafði hæl- ana í þeim efnum. Söknuðurinn er mikill og verður Iþað eflaust lengi, því ekkert mun koma í staðinn fyrir þá ást og vænt- umþykju sem hún veitti okkur alla tíð. Við huggum okkur þó við að eiga fjölmargar ljúfar minningar um hana og samverustundir okkar, sem munu hjálpa okkur þegar fram líða stundir. Einar Baldvin Árnason og Hildur Árnadóttir. I i \ 1 i Frænka mín Erla Ámadóttir var fimmta í röð systkinanna frá Vík í Skagafirði, barna Ingibjargar Sig- urðardóttur og Árna J. Hafstað. Þau urðu tíu sem upp komust. Þetta var glaður systkinahópur. Erla var reyndar ekki alla sína bernsku í þessum myndarlega hópi því að fjög- urra ára gömul var hún send suður í Hafnarfjörð til Sigríðar föðursystur sinnar og Péturs Snæland, manns hennar. I Hafnarfirði var hún í all- marga vetur og naut þar besta atlæt- is þó að nærri megi geta að fremur hefði hún kosið að fá að vera með systkinum sínum og foreldrum á þessum mótunartíma. Á vorin kom hún heim í Skagafjörð og flutti með sér nýja strauma að sunnan, meðal annars ný sönglög enda gædd næmri tóngáfu eins og móðir hennar. Erla hefur sagt frá því að eitt vorið hafi það verið eitt fyrsta verk Ingibjarg- ar í Vík að leiða dóttur sína inn í her- bergi og biðja hana að syngja þau lög sem hún hefði lært fyrir sunnan um veturinn. Samverustundir þeirra mæðgna urðu ekki margar eftir þetta því að Ingibjörg lést árið 1932, 39 ára að aldri. Heimili þehra Sigríðar og Péturs Snæland í Hafnarfirði varð síðar annað heimili hinna systkinanna frá Vík því að þar nutu þau skólagöngu hvert af öðru á unglingsárum þegar þau settust í Flensborgarskóla. Þau stóðu þannig í ævinlegri þakkar- skuld við þau hjón og litu á þau sem sína aðra foreldra. Þarna kynntist Erla mörgu góðu fólki sem hún minntist oft síðar. Þar má nefna vin- konur Sigríðar Snæland, þær Ólínu og Herdísi Andrésdætur, og syst- urnar Theodóru Thoroddsen og Ást- hildi Thorsteinsson frá Bfldudal. Mér er sagt allar hafi þær haft mikið dálæti á litlu fallegu stúlkunni norð- an úr Skagafirði. Þegar ég var að alast upp í Aust- urbænum í Reykjavík var mikill frændgarður vestur á Seltjarnarnesi þai- sem föðursystkini mín, þau Erla, Ámi og Sigurður, bjuggu með sínum stóru fjölskyldum. Þangað var litið með lotningu og hver stund hátíðar- stund í návist þessa fólks. Þarna bjuggu semsagt þau Erla og Indriði. Hann var stýrimaður og í augum barnsins bar hann svipmót þess sem tekist hefur á við brotsjói og bjarg- ast naumlega. Aldrei heyrði ég hann þó segja hetjusögur af sjálfum sér. Aftur á móti sagði hann marga sög- una af sérkennilegu fólki frá bernskuslóðum sínum á Sauðár- króki. Sjálf var Erla óvenjulega minnug og bókelsk og kunni vel að miðla af sínum mikla reynslu- og þekkingarbrunni. I stofunni hjá þeim hjónum var alveg sérstakur andi; gamli sófinn úr búi Sigríðar og Péturs Snæland var á sínum stað eins og til að minna á þátt íyrri eig- enda í uppeldi húsfreyjunnar. Yfir- leitt var straumur af fólki í kringum Erlu og Indriða en þó var enginn asi á neinum og allir nutu ómældrar gestrisni. Frænka mín var m.a. sér- stök að því leyti að hún sinnti börn- um jafnt sem fullorðnum, ræddi við þau eins og jafningja. Það var ekki lítil upphefð að fá athygli hennar. Og síðar fylgdist hún af einlægum áhuga með yngstu kynslóð ættingja sinna og það er dágóður hópur. Eg held hún hafi átt myndir af öllu þessu fólki. Erla hafði þá hæfileika að geta lagað sig að aðstæðum hverju sinni og gera það besta úr öllu. Meðan börnin voru lítil og Indriði á sjónum var hún á sumrin norður í Skagafirði hjá Hauki bróður sínum og Áslaugu mágkonu sinni sem rak barnaheimili í Vík. Þarna var Erla með börn sín og aðstoðaði Áslaugu og var jafn- framt í návist föður síns og Halldórs bróður síns sem þá var enn í Vík. Þannig bundust börn hennar Víkur- fólkinu traustum böndum. Síðar man ég eftir Erlu í fiskvinnu í Isbirninum. Og fyrr en varði var hún farin að vinna á lögfræðiskrifstofu hjá móð- urbróður mínum, Sigurði Baldurs- syni. Þá naut hún reynslu sinnar af skrifstofustörfum hjá Búnaðarfélagi Islands á yngi-i árum. Síðustu starfs- ár sín vann Erla á Borgarbókasafni Reykjavíkur og var þar hvers manns hugljúfi sem endranær. Á þessum árum lærði hún bókband, batt inn marga fallega bók og innsiglaði þannig þá miklu tryggð sem hún hafði ævinlega sýnt menningu og bókum. Þau Erla og Indriði fóru að mörgu leyti ótroðnar slóðir. Þau tóku sér góð sumarfrí þegar farið var að hægjast um og Indriði hættur á sjón- um. Þá leituðu þau til bernskuslóð- anna og hjóluðu þá gjarnan norður Kjöl, löngu áður en slíkt varð ferða- mannamáti. Noi’ðan heiða biðu vinh’ í varpa. Þau eignuðust síðar lítinn bústað á Sauðá og nutu þar margra ánægjustunda. Þau voru samhent í gleði og sorg og tóku af miklu jafnaðargeði þeim harmi sem fylgdi veikindum sonar- ins Hrafns. Hann var tíu ára þegar hann lést haustið 1964. Indriði lést fyrir fjórtán árum. Þá færði Erla sig um set og fluttist í litla íbúð í næsta nágrenni við fyrra heim- ili á Seltjarnarnesi. Undanfarin misseri mátti hún búa við heilsuleysi en andlegu þreki og glaðlyndi hélt hún þar til yfir lauk. Með þakklæti kveð ég mína góðu frænku. Baldur Hafstað. Þegar Erla frænka er kvödd koma margar minningar frá löngum tíma upp í hugann, góðar minningar um óvenjuvel gerða og góða manneskju. Það þyrfti að skrifa langan texta um Erlu, ef gera ætti kostum hennar nokkur skil, en það er þó einn eigin- leiki í skapgerð hennar, sem mér er efst í huga og langar til þess að minnast á sérstaklega. Það er hvað hún var ævinlega skemmtileg. Mér finnst einhvern veginn eins og hún hafi alltaf verið í góðu skapi, alltaf tilbúin til þess að segja frá einhveiju skemmtilegu. Og það var alltaf eins og hún væri sjálf að lenda í einhverj- um skemmtilegum uppákomum. Hún gat séð það fyndna í öllu. Það var sama hversu lítilfjörleg atvikin virtust vera, alltaf kom hún auga á eitthvað skemmtilegt í samskiptum eða tilsvörum fólks. Hvort sem það voru máttarstólparnir eða smá- krakkarnir, nági’annarnir eða ætt- ingjarnir, ef það var eitthvað kátlegt við atvikið eða uppákomuna sá Erla það strax. En það sem ef til vill var mest um vert var það, að sögumar voru aldrei meiðandi eða sagðar til þess að slá sjálfum sér upp á þeim, eins og vill brenna við hjá svo möi’g- um. Það gerði Erla aldrei, þannig var hún ekki. Þetta voru alltaf græskulausar frásagnir, eingöngu til þess fallnar að koma öðrum í gott skap. Þegar öllu er á botninn hvolft er ekkert annað í þessu jarðlífi okkar sem skiptir meira máli en það að fá að umgangast skemmtilegt fólk, fólk sem hefur upplífgandi og bætandi áhrif á aðra í kringum sig. Það hafði Erla frænka sannarlega svo um munaði. Fyrir það mun ég ávallt minnast hennar. Kolbeinn. • Fleiri minningargreinar um Erlu Árnadóttur bíða birtingar og munu birtast íblaðinu næstu daga. VILHJÁLMUR HÓLMAR BÖÐ VARSSON + Vilhjálmur Hólmar Böðvars- son fæddist 6. september 2000. Hann lést 8. september síð- astliðinn. Foreldrar hans eru Hel- ena Guðmundsdóttir, f. 31.10. 1960, og Böðvar Sigurðsson, f. 19.9. 1958. Systkini Vilhjálms; Guðmundur Freyr, f. 31.10. 1991, ogÞóra Regína, f. 1.11.1994. Útför Vilhjálms fór fram frá Garðakirkju 19. september. Þú Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum fóðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu fóðurhjarta. Æ, tak nú, Drottinn, fóður og móður mína í mildiríka náðarverndan þína, og ættlið mitt og ættjörð virztu geyma og engu þínu minnsta bami gleyma. Ó sólarfaðir, signdu nú hvert auga, en sér í lagi þau sem tárin lauga, og sýndu miskunn öllu því sem andar, en einkum því, sem böl og voði grandar. Þín hknarásján lýsi dimmum heimi, þitt ljósið blessað, gef í nótt mig dreymi. í Jesú nafni vil ég væran sofa og vakna snemma þína dýrð að lofa. (M.Joch.) Guð geymi þig litli vinur, og alla þína. Amma og afi, Grenilundi. t Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, GUNNARS SVEINSSONAR mag. art, Bogahlíð 22, Reykjavík. Kristjana Ó. Sveinsdóttir, Grímur Sveinsson, Kristveig Sveinsdóttir. Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug við fráfall og útför HÓLMFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, Ölduslóð 3, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 3B, Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar. Þorbjörg Þóroddsdóttir, Bjarni Hannesson, Guðrún Þóroddsdóttir, Ragnheiður I. Bjarnadóttir, Sveinn Yngvi Egilsson, Þóroddur Bjarnason, Hólmfríður Bjarnadóttir, Björn Persson, - Tryggve Persson, AnnaKarin Persson og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA SÍMONARDÓTTIR MELSTEÐ fré Vatnskoti í Þingvallasveit, áður til heimilis á Rauðarárstíg 3, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í dag, föstudaginn 6. október, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna. Sigursteinn G. Melsteð, Hanna ingólfsdóttir, Pétur G. Melsteð, Jónína G. Melsteð, Gunnar H. Gunnarsson, Laufey Erla Kristjánsdóttir, Hrefna Þorbjarnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, systir og mágkona, INGIBJÖRG SOFFÍA GUTTORMSDÓTTIR, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 4. október, verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 11. október, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag vangefinna. Vilhjálmur Grfmsson, Vigdís Pálsdóttir, Elísabet Grímsdóttir, William F. Pittman, Regin Grímsson, Ellen Björnsdóttir, Grímur Grímsson, Julie Ingham, Ingibjörg Grímsdóttir, Ragnar Páll Haraldsson, Lilian Guðlaugsson, Sæmundur Guðlaugsson, ömmu- og langömmubörn. t Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og lang- afi, ÓSKAR JÓHANNSSON málarameistari, áður til heimilis í Meðalholti 7, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðju- daginn 10. október kl. 13.30. Gréta Óskarsdóttir, Sveinn Ingvarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður, mágs og frænda, JÓNS ÞÓRS JÓNSSONAR, Svíþjóð. Maria Hedin Jonsson, David Alexander Jonsson, Jakob Árni Jonsson, Borghildur Guðmundsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Árni Stefán Jónsson, Helga Ingibergsdóttir, Jakobína Jónsdóttir og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.