Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBE R 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Framkvæmdir eru hafnar við 15.000 fermetra hús íslenskrar erfðagreiningar Tveggja milljarða króna hús reist í V atnsmýrinni FRAMKVÆMDIR við nýja byggingu íslenskrar erfða- greiningar í Vatnsmýrinni hófust í gær, en þá tók Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans - háskóla- sjúkrahúss fyrstu skóflu- stunguna. Að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra ÍE, verður byggingin um 15.000 fermetrar og er áætlaður heildarskostnaður um 2 milljarðar króna. „Það er mikill áfangi að þetta hús skuli nú vera að rísa hér í nágrenni við há- skólann og sjúkrahúsið," sagði Kári. „Þegar við vor- um að leita að lóð fyrir húsið kom fljótlega í ljós að Vatns- mýrin væri spennandi kost- ur vegna nálægðarinnar við þessar stofnanir, en þær eru á meðal okkar helstu sam- starfsaðila." Framkvæmdum lýkur eftir ár Kári sagði að stefnt væri að því að ljúka framkvæmd- unum eftir eitt ár og mun starfsemin þá flytja í nýja Morgunblaðið/ Ásdís Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans - háskóla- sjúkrahúss, tekur fyrstu skóflustunguna að nýju húsi ís- lenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, fýlgist með. húsnæðið, sem mun standa sunnan við nýtt Náttúru- fræðihús Háskóla Islands, sem er í byggingu. Hann sagði að um 400 manns ynnu hjá fyrirtækinu í dag í fimm byggingum á tveimur stöð- um á höfuðborgarsvæðinu, í Árbæ og Kópavogi. Eins og komið hefur fram verður byggingin um 15.000 fermetrar, þar af verða um 4.000 fermetrar neðanjarð- ar. Að sögn arkitekta húss- ins verður möguleiki á að stækka húsið bæði til aust- urs og vesturs. Varðandi kjallarabygginguna þá fékk Nátturuvemd ríkisins málið til umsagnar og veitti hún Vatnsmýrin Líkan af fyrirhugaðri byggingu Islenskrar erfðagreiningar en síki umlykur húsið og kjallarinn er 4.000 fermetrar. samþykki sitt, en ítrekaði að hönnun kjallarans yrði þannig að vatnabúskapur svæðisins bæri ekki skaða af og að vöktunarkerfi yrði komið á laggirnar til þess að fylgjast með áhrifum fram- kvæmda á grunnvatn. Til samanburðar við stærð húss ÍE má geta þess að Nátt- úrufræðihúsið verður um 8.000 fermetrar. Reynt að raska sem minnst lifríkinu Byggingin er hönnuð af arkitektunum Ingimundi Sveinssyni, Ólafi Óskari Ax- elssyni og Jóhanni Einars- syni, en þeir áttu sigurtillög- una í samkeppni þriggja tillagna. Vatnsmýrin hefur nokkra sérstöðu á höfuð- borgarsvæðinu vegna fjöl- breytts lífríkis, mýrlendis og mikils fuglavarps. Ólafur Óskar sagði að við hönnun hússins hefði verið reynt að raska sem minnst lífríki Vatnsmýrarinnar og eru undirstöður hússins m.a. sérstaklega hannaðar með það í huga. Byggingin verður umlukin grunnu síki sem á að draga fram sérkenni byggingar- landsins. Aðkoma bíla verð- ur frá Sturlugötu og bíla- stæði verða við Sturlugötu og Njarðargötu. Byggingin er mynduð af þremur meg- inhlutum, skrifstofuhúsnæði og rannsóknarbyggingu, sem tengjast um miðrými með glerþaki. Göngugata undir glerþakinu er eftir endilangri rannsóknarbygg- ingunni og skiptir henni í tvo meginhluta. Að sögn arkitektanna var rík áhersla lögð á sveigjanleika í inn- réttingum rannsóknarstofa svo og í lagnaleiðum. Jarðvinnu lýkur í desember Kári sagði að vegna ná- lægðar og samstarfs við Há- skóla íslands yrði nemend- um skólans, sem væru í framhaldsnámi, gert kleift að stunda rannsóknarvinnu tengda náminu í nýju bygg- ingunni. Framkvæmdir við jarð- vinnu hófust um leið og fyrsta skóflustungan hafði verið tekin og er gert ráð fyrir því að þeim ljúki í des- ember en þá verður næsti áfangi, sem er uppsteypa, boðin út. íslenski hesturinn kynntur reykvískum skólabörnum Morgunblaðið/Kristinn Þær Ásdis Bjamadóttir og Sólveig Ásta Friðriksdóttir voru n\jög ánægðar með heimsóknina. Ásdís hefur oft far- ið á hestbak enda á afí hennar hesta. Morgunblaðið/Kristinn Albinóahesturinn Svavar Iét sér það vel líka þegar Tara Halldórsdóttir og Ingvar Ásgeirsson kembdu honum. NEMENDUR í 5. bekk S í Laugamesskóla báru sig fag- mannlega að við umhirðu hestanna í hestamiðstöð ís- hesta í Hafnarfirði I gær. Bekkurinn var þar í heimsókn í boði Félags hrossabænda sem hefur komið þar á fót heimsóknarmiðstöð og býður nú þangað skólabömum úr Reykjavík. Umhyggja og ábyrgð Heimsókn 5. bekkjar S var liður í tilraunaverkefninu „Umhyggja og ábyrgð sem er ætlað að kynna grunnskóla- bömum í 5. og 9. bekk ís- lenska hestinn. Fyrri hluti heimsóknarinnar er helgaður almennri fræðslu um íslenska hestinn og fá bömin í hend- urnar fræðsluefni þar sem m.a. er gert grein íyrir mis- munandi gangtegundum og litum hestsins. Bömin fræð- ast einnig um reiðtygi og um- hirðu hesta. I seinni hluta heimsóknarinnar komast bömin í návígi við hross, þau fá að kemba þeim og setja á þau hnakk og beisli og að lok- um gefa þeim fóður. Albinóahesturinn Svavar Nemendumir í 5. S í Laug- amesskóla lýstu allir yfir mik- illi ánægju með heimsóknina við blaðamann Morgunblaðs- ins í gær. Ingvar Ásgeirsson og Viktoría Halldórsdóttir fengu að kemba hestinum Svavari sem þau sögðu vera „albinóahest.“ Ingvar sagði aðalatriðin í góðri umhirðu hrossa vera að kemba vel áður en hnakkurinn væri settur á. Hestamaður yrði líka að vera góður við hestinn. Viktoría tók undir þetta og sagði rosa- lega gaman að kemba Svav- ari. Bæði höfðu þau farið á reiðnámskeið og haft gaman af. Linda Ahn Tuy og Eva Thu Huong kunnu góð skil á ís- lenska hestinum enda höfðu þær báðar farið á hestbak. Eva sagði að íslenski hestur- inn væri mjög fallegur og ekk- ert of lítill. Það væri bara kostur að hestar væra ekki of stórir því „annars gæti ég ekki sett hnakkinn á,“ sagði Eva. Sigríður Sigurðardóttir og Tara Róbertsdóttir höfðu báðar farið á reiðnámskeið. Tara hafði sjálf farið mörgum sinnum á hestbak en reyndar dottið af baki þegar hnakkur- inn losnaði í einum útreiðar- túmum. Sigríður sagðist ekk- ert hafa á móti því að eiga hest en það væri þó talsvert langt í að henni tækist að safna fyrir góðum hesti. Hestamennska þroskandi og gefandi Þær Hulda Geirsdóttir og Bryndís Einarsdóttir sem eru umsjónarmenn verkefnisins segja bömin hafa sýnt hest- unum mikinn áhuga og hafi greinilega mjög gott af því að komast í snertingu við þá. Þær segja verkefninu m.a. vera ætlað að gefa börnum sem búa í þéttbýli tækifæri til að komast í snertingu við dýr og finna lyktina af þeim. Með því að umgangast hestana fái krakkarnir e.t.v. á tilfinning- una hversu gefandi og þrosk- andi það sé að stunda hesta- mennsku. Þau læri að bera ábyrgð á öðram, taka tillit til hestsins og hemja skap sitt þegar illa gengur. Bömin læri líka að treysta reiðskjótanum og finna að hesturinn treystir þeim. Verkefnið er styrkt af framleiðnisjóði landbúnaðar- ins og er unnið í samvinnu við Ishesta og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Alls munu sjö skólar í Reykjavík taka þátt í verkefninu að þessu sinni. Hulda og Bryndís segja fleiri skóla og sveitarfélög hafa sýnt því áhuga en framhaldið ráðist af fjárveitingu. Morgunblaðið/Golli Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri skoðar sögusafnið, sem sett hefur verið upp í Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti í tilefni af 25 ára afmæli skólans. Fjölbrautaskól- inn í Breið- holti 25 ára Breiðholt FJÖLBRAUTASKÓLINN í Brciðholti, FB, er 25 ára um þessar mundir en skól- inn tók til starfa 4. októ- ber 1975. Starfsmenn skólans, núverandi og fyrrverandi nemendur og aðrir velunnarar standa af því lilefni fyrir afmælis- hátið sem hófst í fyrradag. Meðal dagskráratriða er sögusýning og mynd- listarsýning fyrrverandi nemenda FB í Gerðubergi. Á dagverður haldin íþróttahátíð í íþróttaluisi skólans og boðið upp á skemmtidagskrá í göngu- götunni Mjódd. í kvöld kl. 20.30 standa fyrrverandi nemendur fyrir menning- arkvöldi í Gerðubergi. Á morguri verður opið hús í FB og afmælishátíðinni lýkur á um kvöldið með viðhafnardansleik í íþróttahúsinu við Austur- berg frá kl. 21 til 1. FB er fyrsti fjölbrauta- skóli landsins og á sfðustu 25 árum hafa 8000 nem- endur útskrifast frá skól- anum. FB er fjölmennasti framhaldsskóli Iandsins en 1300 nemendur stunda nám við dagskóla og um 800 í kvöldskóla. Kennar- ar og starfslið eru um 150.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.