Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 65 ÍDAG BRIDS Umsjón Guómunilur l’áll Arnarson LÍTUM á vanda suðurs. Hann opnar á gi'andi (15-17 HP) og makker hans sýnir spaða með yfirfærslu, en býður síðan upp á þrjú grönd: Suður gefur; allir á hættu. Norður « DG874 v K10 ♦ KG96 + 85 Vestur Austur * Á32 + 95 y D9643 v 852 ♦ 3 ♦ Á8752 * K1063 * G92 Suður + K106 v ÁG7 ♦ D104 + ÁD74 Vestur Norður Austur Suður - - - lgrand Pass 2 hjörtu * Pass 2 spaðar Pass 3grönd Pass 4spaðar Pass Pass Pass *yfirfærsla Allir spilarar sem nota yf- irfærslur þekkja þetta vandamál. Norður sýnir fimmlit í spaða og tiltölulega jafna skiptingu til hliðar með þremur gröndum í kjölfar yfii'færslunnar. Hvað á suð- ur að gera? Á hann að sitja í þremur gröndum eða breyta í fjóra spaða? Þetta er al- geng staða, en samt veit eng- inn hvað rétt er að gera. Þrí- litur i spaða mælir með fjórum spöðum, en skipting- in til hliðar mælir með þrem- ur gröndum. Hér hefði suður betur passað þrjú grönd, því gegn fjórum spöðum kemur vestur út með einspilið í tígli og trompar tígul í öðrum siag. Spilar síðan spaðaás og meiri spaða. Vörnin hefur fengið þrjá slagi og suður stendur frammi fyrir lauf- sviningu eða hjartasvíningu á annan hvorn veginn. Hvað á suður að gera? Hann á í fyrsta lagi ekki að naga sig í handarbökin fyrir að passa ekki þrjú grönd, því þar var um heina getspeki að ræða. Nú er suð- ur í aðstöðu til að beita rök- réttri hugsun. Hann hugsar sem svo: Hverju spilaði aust- ur til baka í öðrum slag? Var það lægsti tígullinn til að biðja um lauf? Nei, það var raunar óræð sjöa. Þetta er vísbending, en varla meira en það. Þá er að grípa til lík- indalögmálsins. Þegar sagn- hafi hefur tekið trompin veit hann að austur á tvö og áður er vitað af fimm tíglum. Samtals 7 spil í þessum tveimur litum. Vestur byrj- aði með þrjá spaða og einn tígul - samtals 4 spil. Austur á því 6 óþekkt spil, en vestur 9. Eitt tiltekið spil er líklegra til að vera í hópi 9 spila en 6, og þvi er best að spila hjarta að blindum og svína tíunni. Sviningin heppnast og þá má henda laufi niður í hjartaás- inn heima. Vel spilað, en illa meldað - eða hvað? morgunblaðið birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkjmning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja áfmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað hcilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Arnað heilla ÁRA afmæli. Sjötug- ur er í dag, föstudag- inn 6. október, Guðmundur Bjarnason, læknir, Garð- stöðum 35 í Reykjavík. Eig- inkona hans er Bergdís Kristjánsdóttir. Þau ætla að taka á móti gestum í Kirkju- hvoli, safnaðarheimili Vída- línskirkju í Garðabæ, kl. 18 í dag. ÁRA afmæli. Á morgun, laugardag- inn 7. október, verður sex- tugur Konráð E. Guðbjarts- son, sjómaður, Hjallavegi 7, Flateyri. Eiginkona hans er Elínóra K. Guðmundsdótt- ir. Þau taka á móti ættingj- um og vinum á heimili sínu á morgun, laugardag, frá kl. 20. Með morgunkaffinu Já, hann hefur setið þarna og beðið síðan ég lenti í óhappinu með eyrað hans van Goghs. Ó, nei, og hvað gerði ég nú af mér í nótt. haldið var á Netinu fyrir skömmu. Svart hafði Janne Mertanen (2169) gegn Davíð Ólafssyni (2275). 26...Rg3+! 27. Dxg3 Dxg3 28. hxg3 Hxel+ Svartur hefur unnið skiptamun og þó að hvítur hafi peð upp í hann eru peð hans á drottningarvæng dauðadæmd. Hann hélt þó baráttunni engu að síður ótrauður áfram en það dugði ekki til: 29. Kh2 Hal 30. g4 Hxa4 31. Kg3 Hc4 32. Bd2 Re6 33. Rb3 b6 34. Kf2 a5 35. Ke3 a4 36. Rcl b5 37. Ra2 Rf4 38. g3 Rd5+ 39. Kd3 f6 40. Bcl Kf7 41. Ba3 Ke6 42. f4 g5 43. f5+ Kd7 44. Bf8 Hxg4 45. Bg7 Ke7 46. Bh6 Kf7 og hvítur gafst upp. UOÐABROT JÓNAS HALLGRÍMSSON Döggfall á vorgrænum víðum veglausum heiðum, sólroð í svölum og góðum suðrænublæ. Stjarnan við bergtindinn bliknar, brosir og slokknar, óttuljós víðáttan vaknar vonfrjó og ný. SKAK Umsjón llelgi Áss Grétarsson i a m. ■ mm í Afi, rjSl S Svartur á leik. Staðan kom upp á Norður- landamóti taflfélaga sem Snorii Hjartarson. STJORNUSPA eftir Franees Drake *EIh VOG Sjálfsstjórn þín ogút- sjónarsemi dregur fólk að þér, en þú þarft að læra bet- ur á tilfinningar þínar. Hrútur (21. mars -19. apríl) Óvæntir atburðir munu hafa áhrif á starf þitt og ef þú tekur þá réttum tökum munt þú græða á því. I einkamálunum er bezt að láta hlutina hafa sinn gang. Naut (20. apríl - 20. maí) Það hefur legið eitthvert slen í þér, en nú mætir þú tvíelfdur til leiks. Láttu einskis ófreisU að til þess að komast til botns í hlutunum. Tvíburar . (21. maí - 20. júní) Aa Það er góðra gjalda vert að rétta ókunnugum hjálpar- hönd. En mundu að þínar skyldur eru fyrst og fremst við þig sjálfan og þína nánustu. Krobbi (21.júní-22.júlí) Metnaðarfullir samstarfs- menn geta sett strik í reikn- inginn. En þú heldur bara ró þinni og leyfir látunum að ganga yfir. Þá stendur þú jafnréttur eftir. Ljón (23.júM-22. ágúst) m Hafir þú áhyggjur af því hvemig samstarfsmenn þínir taki hugmyndum þínum, skaltu reyna þá einn í einu. Þú getur þá breytt til ef þér sýn- istsvo. MeyJa j* (23. ágúst - 22. sept.) ©5L Það er í hæsta máta eðlilegt að þú viljir fara þér hægt í að trúa öðrum fyrir þínum innstu hugrenningum. Það hefur ekkert með vináttu að gera. Vog rrx (23.sept.-22.okt.) Gamall vinur eða ættingi bera upp við þig mál, sem mun koma þér verulega á óvart. Hlustaðu gaumgæfilega á málavöxtu og vertu opinn fyr- ir öllu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Það getur skapast eitthvert tómarúm á vinnustað þínum, sem eðlilegt er að þú fyllir upp í. En mundu að þú verður þá að taka tillit til allra. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) nkv Til þess að koma hlutunum á hreyfingu þarft þú að leggja þig allan fram. Og dugi það ekki máttu ekki hika við að leita þér aðstoðar hvar sem er. Steingeit (22. des. -19. janúar) iMU Það reynir á trúnaðinn og ákveðnina, þegar taka þarf ákvarðanir í viðkvæmum mál- um. Þegar hún er komin þarf að hrinda henni hiklaust í framkvæmd. Vatnsberi , . (20. jan. -18. febr.) CsK Það er um að gera að setja sér raunhæf takmörk, því fátt er verra en springa á limminu. Hafðu þetta í huga þegar þú velur þér verkefnin. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er ekki við þig að sakast þótt hlutirnir séu þannig vaxn- ir að þú þurfir hjálp. En ef þú verður þér ekki úti um hana má skrifa málin á þinn reikn- ing. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Líföndun Guðrún Arnalds verður með námskeið í Reykjavík helgina 21. - 22. okt., Húsavík 14. -15. okt. og á Akureyri 28. - 29. Okt. Djupöndun hreinsar likama og sál, eykur bjartsýni og lífsorku% Ný sending Jakkar, vesti, buxur síðar og stuttar, pils og peysur Hi* Svönu Opið mán.-fös. ffá kl. 10-18 & lau. frá kl. 10-14. Átaverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996, NYTT Ný glæsileg lína Prima Donna Skálastærðir frá B Laugavegi 4, simi 551 4473. Ijinfpr teiirprílRnnt Barnakuldaskór STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN D0MUS MEDlCfl við Snorrabraut - Reykjavík ^— I Sími 551 8519 SENDUM I' PÓSTKRÖFU SAMDÆGURS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.