Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ 64 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 KIRKJUSTARF ÍDAG Félagsstarf eldri borgara í Neskirkju Safnaðarstarf FÉLAGSSTARF eldri borgara í Neskirkju hefst nú á laugardaginn með dagskrá sem nefnist „Börn náttúrunnar og við“ en svo verður boðið upp á kaffi og helgistund í lokin eins og venja er. Félagsstarf- ið hefst kl. 14 og lýkur um kl. 16. Kirkjubíllinn ekur um hverfið á undan og eftir eins og venjulega. b Félagsstarf eldri borgara verður sérhvern laugardag í október og nóvember og lýkur svo fyrir ára- mót með „litlu jólunum" laugar- daginn 16. desember. Þess má geta í þessu samhengi að sl. miðvikudag byrjaði „opið hús“ í kirkjunni og trúfræðsla í umsjón sr. Franks M. Halldórs- sonar. Opið hús verður sérhvern miðvikudag kl. 16-18 þar sem fólk í hverfinu getur litið við í kirkjunni og fengið sér kaffisopa, en annan hvern miðvikudag er trúfræðslan kl. 17 þar sem farið er í valda kafla í Biblíunni. Sérhvern miðvikudag kl.18 er síðan bænamessa. y Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.06. Mömmumorgunn kl. 10-12 í umsjá Hrundar Þórarins- dóttur. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Grafarvogskirkja. Al-Anon fundur kl. 20. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðarstund. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11. Á morgun sér Bjarni Sigurðsson um prédikun og Steinþór Þórðar- son um biblíufræðslu. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Súpa og brauð eftir samkomuna. Allir velkomnir. Keflavíkurkirkja. Lofgjörðar- og fyrirbænastundir í kirkjunni kl. 20-21. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11-12 stafkirkjan á Skansinum opin til sýnis. Kl. 13.45 æfing hjá Litlum lærisveinum, yngri hóp, í safnaðarheimilinu. Kl. 20.30 nótt í KFUM&K-húsinu fyrir unglinga í æskulýðsfélagi Landakirkju. Olaf- ur Jóhann. Vídalínskirkja. Torgmessa á Garðatorgi, Nýja torgi, kl. 16 á morgun. Pestarnir. Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju- skólinn í Mýrdal er með samverur á laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Víkurskóla. Frelsið, kristileg miðstöð. Bæna- stund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld fyrir unga fólkið kl. 21. Sjöunda dags aðventistar á Is- landi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón- usta kl. 11.15. Ræðumaður Jón Hj. Jónsson. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu- maður Erie Guðmundsson. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfirði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíufræðsla að guðsþjónustu lok- inni. Ræðumaður Elías Theodórs- son. Safnaðarfélag aðventista, Akur- eyri: Ræðumaður Gavin Anthony. Hannyrðabúðin við klukkuturninn í Garðabæ sími 555 1314 alvara.is/jens Rýmum ffyrir nýjum vörum Ekta síðir pelsar aðeins 99 þús. Handunnin húsgögn 20% afsl. Opið virka daga kl. 11—18 og lau. kl. 11—15 Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545 | Signrstjama VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags * A ekki að opna Álandið aftur? HVAÐA ástæður ráða því þegar götum í Reykjavík er lokað fyrir umferð? I maí sl. var Íokað fyrir umferð í gegnum Áland í Fossvogs- hverfi, ekki bara með venjulegri merkingu held- ur eru lika aukaskilti úti á miðri götu. I a.m.k. fimm- tán ár hefur verið gegnum- akstur um Álandið án nokkurra vandkvæða. Allt í einu núna er þetta orðið vandamál. Hvað hefur breyst? Hver eru rökin fyr- ir lokun Álands nú? Hvað um öll mótmælin frá íbúum í vesturhluta Fossvogs- hverfis? Ég man ekki betur en lokunin væri sögð til bráðabirgða. Hún er þó enn þá lokuð. Umferð um Foss- vogsveg hefur aukist að mun. Hann er þó bæði þröngur og mörg börn þar á ferð. Á kannski að loka honum líka? Efsti hlutí Eyrarlands er brattur. Á veturna gengur oft erfið- lega að komast þar um vegna hálku og snjóa. Er ekki ráð að opna Álandið aftur fyrir veturinn? H.B. Kaffisetrið á Hlemmi ÉG fer oft á kaffihús, bæði á daginn og eins á kvöldin. Ég kem oft á Kaffisetrið á Hlemmi og finnst það alveg frábært. Þarna er afskap- lega hlýlegt og þægilegt andrúmsloft og gott starfs- fólk. Ég mæli með þessum stað. E.A. Verð ágeisla- diskaumslögum ÞAÐ er undarleg verðlagn- ingin á geisladiskaumslög- um. Hjá pósthúsum kostar stykkið 76 kr., hjá Griffli í Skeifunni kostar stykkið 39 kr og í bókabúðinni á Garðatorgi kostar stykkið 50 kr. Pósthúsin selja geisladiskaumslögin tölu- vert dýrari en aðrir. Hvern- ig stendur á þessum verð- mun? Guðrún Jóhannesdóttir, Túngötu 20, Bessast.hr. Hvað skyldi það hafa verið? FYRIR nokkru horfði ég og hlustaði á fjármálaráð- herrann okkar í Kastljós- þætti og mig minnir að hann hafi talað um, að hann hafi gert eitthvað fyrir ör- yrkja og aldraða. Hvað skyldi það nú hafa verið? Var það þegar hann skammtaði okkur öldruð- um hækkun l.apríl á grunnlífeyri og tekjutrygg- ingu 0,7% eða 411 kr., í stað 4,5% eða 2.133 kr., eða jafn- vel 8,9%, sömu prósentu- hækkun og lægstu launin sem hefði gert um 4.220 kr.? Og var það þegar hann hækkaði verulega þátttöku okkar í lyfjakostnaði í júní sl. og það hlutfallslega hærra en annarra? Spyr sá sem ekki veit. Ellilífeyrisþegi, kt. 090519-3799. Frábær þjónusta HULDA hafði samband við Velvakanda og vildi koma á framfæri að hún hefur fengið frábæra þjónustu hjá Margréti Marteinsdótt- ur í Fínum línum. Valá kjúklingabitum ÉG fór á kjúklingastaðinn í Suðurveri fyrir stuttu og ætlaði að kaupa einn bita af kjúkling. Ef maður fær að velja bitann sjálfur kostar hann 210 kr. stykkið en annars kostar bitinn 185 kr. stykkið. Það munar 25 kr. á bitanum hvort maður velur hann sjálfur eða ekki. Ég bjó lengi í Bandaríkjunum og þar þættí þetta algjör dónaskapur að bjóða við- skiptavinum upp á þetta. Mér finnst þetta ekki hægt. kt. 171150-5589. Munkur í fullum skrúða VALDIMAR hafði sam- band við Velvakanda og honum datt í hug hvort ekki hefði mátt hafa munk í full- um skrúða á kristnitökuhá- tíðinni á Þingvöllum í sum- ar. Það hefði verið vel við hæfi. Tapað/fundid Gul leikjatölva og peysa töpuðust GUL Gameboy leikjatölva tapaðist við Isaksskóla við Stakkahlíð íyrir um það bil tveimur vikum. Foreldrar eru beðnir að athuga hvort hún gæti leynst einhvers staðar. Einnig tapaðist í haust drapplituð, rennd hettupeysa frá Polarn O. Pyret af sjö ára barni. Skil- vís finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hafa samband við Höllu í síma 551-0049 eða 697-5999. Frábært brúðkaup, tengdapabbi. Ég ætti að gifta Nú var ég að sýna hvernig EKKI á að geraþetta. Nú mig oftar. skal ég sýna ykkur réttu aðferðina. NÝJAR VÖRUR • Leðurjakkar (rauðir & svartir) • Leðurkápur (þrjár síddir) • Regnkápur • Ullarkápur • Úlpur • Stuttkápur • Alpahúfur (2 stærðir) • Hattar 20% aukaafsláttur af útsoluvörum \oý?HW5IÐ Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið laugardaga frá kl. 10-16 Tölvur og tækni á Netinu 0mbl.is Víkverji skrifar... AÐ þessu sinni ætlar Víkverji dagsins að vera svolítið frum- legur og nöldra. Hann getur ekki stillt sig um að segja frá því hvernig borgarfyrirtæki, sem annast þjón- ustu við alla íbúana og hefur gert áratugum saman, virðist gleyma mannasiðum. Hann býr í fjölbýlishúsi í Hlíðun- um, húsið er rúmlega hálfrar aldar gamalt. Ekki veit hann hvenær hita- veita var lögð í húsið, en vafalaust var kominn tími til að endurnýja heita- vatnslagnirnar að húsinu. Byrjað var á því fyrir nokkru, fyrst grafið hraustlega við eitt stigahúsið, síðan virtist koma nokkurra daga hlé. Þá var haldið áfram, einn morguninn var borað af kappi í útveggi, skurður- inn var orðinn lengri og komin bráð- abirgðabrú yfir hann til að íbúarnir kæmust út á bílastæðið. Og hvað er að þessu? Ekki nema eitt. Ekki er vitað til þess að nokkur íbúanna hafi fengið skilaboð um að þessar framkvæmdir stæðu fyrir dyrum. Hvergi var hengdur upp miði, ekki var haft samband við stjórn húsfélags eða yfirleitt haft fyr- ir því að gera viðvart. Var það virki- lega of mikil fyrirhöfn? XXX TÓNLISTARMAÐUR og kunn- ingi Víkverja hafði samband og sagðist langa til að benda á afar þarft og skemmtilegt framtak sem Evrópusamband píanókennara, EPTÁ, stendur fyrir síðari hluta í nó- vembermánaðar. Þá verður haldin í Salnum í Kópavogi samkeppni píanó- nemenda. Keppnin verður á þrem stigum, í fyrsta lagi fyrir nemendur undir 16 ára aldri, í öðru lagi fyrir framhaldsstigið og loks fyrir nem- endur á háskólastigi. „Ég er sannfærður um að það er gott fyrir nemendur í hinum ýmsu tónlistarskólum að ýtt sé undir heil- brigða samkeppni og metnað með þessum hætti. Einnig er þetta for- vitnilegt fyrir kennarana sem líka þurfa að fá samanburð," sagði hann og bætti því við að miklar framfarir væru að hans mati að verða í píanó- námi hérlendis. Vonandi yrði sam- keppni af þessu tagi fastur liður í tónlistarlífinu á íslandi. Víkverji tekur undir og segir fyrir sína hönd að fátt finnst honum jafnt ánægjulegt og blómstrandi tónlistar- kennslan hérlendis. Fyrir utan ánægjuna er gagnið ómetanlegt sem börn og unglingar hafa af því að læra fæmi sem ekki verður til án mikils aga og vinnusemi. Kunnáttan getur ryðgað síðar á ævinni ef henni er ekki haldið við og gerir það hjá flestum. En mikið situr eftir, ekki síst þjálfun- in í að hlusta og hafa fengið innsýn í auðugan heim sem þar að auki stækkar stöðugt og endurskapast. XXX EINN af viðmælendum Víkverja þurfti nýlega að láta endumýja vegabréfið sitt og hafði viku til stefnu. Ekki reyndist það samt nógu langur undirbúningstími fyrir emb- ætti lögreglustjóra í Reykjavík, sem annast útgáfuna. Hann gat þó fengið svonefnda flýtimeðferð. Munurinn er nokkuð augljós af orðinu sjálfu, en böggull fýlgir skammrifi. Venjuleg vegabréfsendurnýjun kostar 5.000 krónur en flýtimeðferð 10.000. Ríkið er stundum í einhverri fjárþröng en er ekki plokk af þessu tagi einum of ófyrirleitið? Kunninginn áðurnefndi var ósátt- ur. Hann var kurteis en „ákaflega ýt- inn og loks leiðinlegur" að eigin sögn. Fór svo að stúlkan í afgreiðslunni benti honum á að ef ákveðin skilyrði væra í lagi, einkum að ekki væri of langur tími síðan vegabréfið rann út, væri hægt að sækja um framleng- ingu sem hann gerði og fékk hana. Þá heyrðist hljóð úr horni og að þessu sinni frá þrem öðram við- skiptavinum á staðnum. „Það var ekki verið að segja okkur frá þessu!“ sögðu þeir. í ljós kom að einn þeirra uppfyllti skilyrðin. En svona eiga op- inberar stofnanir ekki að haga sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.