Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Pétur Einarsson í hlutverki Lés konungs. Við eig-um að vera undir smásjá Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld Lé kon- ung eftir William Shakespeare. Súsanna Svavarsdóttir ræðir við leikhússtjórann Guðjón Pedersen, sem jafnframt er leik- stjóri sýningarinnar, um Lé, verkefnaval vetrarins, stefnu og framtíðarsýn. GUÐJÓN Pedersen, hinn nýi leik- hússtjóri Borgarleikhússins, fer glæsilega af stað með sitt fyrsta leik- ár. Fyrsta frumsýning vetrarins er sjálfur Lér konungur, eftir William Shakespeare, einn fegursti harmleik- ur allra tíma. Með frumsýningunni brýtur Guð- jón blað í sögu Borgarleikhússins því þar hefur ekki áður verið sett upp leikrit eftir Shakespeare. Hins vegar er Guð- jón leikstjóri sýningar- innar og má með sanni segja að hann sé á heimavelli, því þetta er sjöunda leikrit Shake- speares sem hann setur á svið frá því 1990 er hann leikstýrði Óþelló í N emendaleikhúsi. Rómeó og Júlía fylgdi í kjölfarið í Þjóðleikhús- inu, síðan Draumur á Jónsmessunótt í Nem- endaleikhúsinu, Ofviðr- ið í Stokkhólmi, Mac- beth hjá Frú Emilíu í Héðinshúsinu og Sem yður þóknast í Þjóðleikhúsinu. En það er ekki bara nýtt leikrit, nýtt leikár hjá Guðjóni, heldur nýtt stai-f í nýju húsi - starf sem hann hafði nokkurt inngrip í þar sem hann stýrði leikhúsinu Frú Emilía um nokkurra ára skeið. Þegar hann er spurður hvernig honum lítist á nýja starfið Borgarleikhúsinu, svarar hann því til að sér lítist „vel“ á það. „Ég er að læra eitthvað nýtt á hveij- um degi og á margt ólært - en mér finnst gaman að mæta í vinnu á morgnana.“ Nú hefurðu haft hálft ár til að læra á húsið og Leikfélag Reykjavíkur. Hvað hefur komið þér mest á óvart? „Það sem er kannski nýjast fyrir mér er að það er miklu fleira sam- starfsfólk hér en var í Frú Emilíu. Þar vorum við oft á tíðum bara tveir við Hafliði Arngrímsson. Við gátum þagað heilu dagana saman og það skildist. Hér er miklu fleira fólk í maskínunni." Ekkert uppvask Hveijir finnst þér vera helstu kost- ir og gallar við skipulagið í húsinu? „Það sem ég stefni að og veit að verður kostur - en er ekki enn orðinn kostur því ég er nýr og ég er að læra á fólkið og það er að læra á mig - er að ég get ein- beitt mér meira að leik- urunum, leikstjórunum og vissri framtíðarsýn. Eg hlakka til þess. Það er mikill munur frá þeim leikhúsum sem ég kem frá þar sem maður var í öllu og endaði á því að sópa gólfið áður en áhorfendur komu inn, vaska upp og gera allt. Helsti kosturinn er sá að Leikfélagi Reykja- víkur hefur tekist að reka þetta með ekki svo mörgum starfsmönnum og við erum í mjög nán- um tengslum hvert við annað. Ef við tökum leikhús með sambærilegar sýningar, til dæmis Deutsche Teater í Hamborg með hundrað þúsund áhorfendur, sem er eins og gott ár hjá okkur, þá eru um 400 starfsmenn þar. Hér eru um sex- tíu manns í föstu starfi. Vegna smæð- arinnar getum við því á hverjum degi tekist á við þau vandamál sem koma upp. Helsti gallinn er sá að það hefur mikið af þekkingu farið út úr húsinu. Ég varð mjög undrandi þegar ég sá hvað var í rauninni lítið til af þekk- ingu hér eftir hundrað ára starfsemi leikfélagsins. Ég varð til dæmis að byrja á því að búa til nýja almanna- tengsladeild. Það var bara fyrirtæki úti í bæ sem sá um almannatengslin en ég vildi fá þennan hluta starfsins inn í húsið. Mér ftnnst það afar mikil- vægt vegna þess að það er verið að taka ákvarðanir á hveijum degi um sýningar og fleira. Við erum að semja við fyrirtæki, tala við hina og þessa hópa og almannatengsladeildin verð- ur að vera mjög lifandi og fylgjast mjög náið með því sem er að gerast til þess að hún viti hvað hún er að bjóða áhorfendum okkar. Þetta kemur líka inn á útlit. Hvernig vill leikhúsið kynna sig útlitslega? Og ég held að al- mannatengsladeildin eigi að vera inn- an um listamennina sem eru að búa til sýningamar vegna þess að það eru einstaklingamir sem geta hjálpað okkur.“ Framtíðarsýn Þú talar um framtíðarsýn sem fel- ur í sér mikla kosti. Hver er hún? „Hún er sú að við getum hér verið með leikhús fyrir breiðan hóp en um leið og ég segi það verðum við að geta geta farið inn í sérþarfir. Við þurfum að geta hlúð að minnihlutahópum sem eru mjög margir í dag. Við verð- um að geta hlúð að börnunum okkar, eldra fólkinu, nýjum íslenskum leikr- itum og nýjum erlendum leikritum. Mig langar til þess að við getum stofnað hér inni hóp til þess að sinna því sem ekki má tala um - rannsókn- arvinnu. Þegar maður segir „rann- sóknar..." er orðið sjálft svo leiðin- legt. En það sem ég á við er að getum við verið djarfari með uppsetningar. Við eigum að geta verið með hóp héma innandyra sem getur tekið visst tímabil og sýnt fjögur verk. Hann ræður hvað hann eyðir miklum tíma í það. Hann getur til dæmis ákveðið að fullæfa verk á þremur vik- um. Átta vikna æfingatími er orðinn einhver regla hjá okkur. En þurfum við svo langan æfingatíma? Ég held ekki.“ Símennt og tengsl við erlend leikhús „Inni í þessari framtíðarsýn er líka eitt sem ég tel afar mikilvægt og það er að gefa leikurum, leikstjórum og tækniliði tækifæri á símennt. í leik- húsinu finnst okkur oft eins og þessi náðargáfa, leiklistin, komi að ofan - bara þegar okkur hentar. En ég held að við verðum að vera miklu meira vakandi fyrir því að endumýja okkur. Það er vissulega dýrt að fara á námskeið og við emm í basli með að hafa í okkur vegna þess að í íslensku leikhúsi era léleg laun en ég held að í granninn snúist málið ekki um það.“ Heldur hvað? „Ég held að það snúist um skort á fullvissu um það hvert sé handverk okkar leikhúsmanna. Þess vegna eig- um við erfitt með að víkka það út. Mér finnst við í leikhúsinu vera sú Guðjón Pedersen Krislján Franklín Magnúss í hlutverki Játmundar. stétt sem er lötust við að endumýja sig.“ Hvers vegna heldurðu að það sé? „Sumpart er þetta sjálfumgleði sem verður til af því að fólk kemur að sjá okkur. Aðsókn að leikhúsi er ekki þannig að við þurfum að spyrja okkur hvað sé að hjá okkur. Sumpart er þetta líka vegna þess að við eram á sama hraða í þessu gæðakapphlaupi og aðrir. Én ég held að ástæðan sé ekki sú að við viljum ekki endumýja okkur. Að minnsta kosti er það alltaf svo að þegar koma erlendir listamenn til okkar og kenna okkur eitthvað nýtt, segjum við: Æðislegt - þetta var gaman.“ Musteri eða grafhvelfing tungunnar „Við þurfum líka að tengjast út fyr- ir landið, koma okkur í samstarf við erlend leikhús og leikhópa. Ég sæi ekkert að því að hingað kæmu fimm erlendir leikarar sem lékju með fimm íslenskum leikuram og við lékjum á ensku, dönsku eða einhverju öðra tungumáli. Það er alltaf verið að tala um að tungumálið bindi okkur við ís- land en ég held að það eigi ekki við lengur." Hvers vegna hefur tungumálið bundið okkur fremur en aðrar þjóðir? „Það er vegna þess að hjá okkur er tungumálið svo heilagt. Við þýðum allt, meira að segja það sem er ekki hægt að þýða - orðatiltæki og hend- ingar sem komast ekki til skila í þýð- ingu. Það er alveg rétt að leikhúsið er að mörgu leyti musteri tungunnar. En það má ekki vera dautt. Þá er það orðið grafhvelfing tungunnar." Vil afsanna að klassíkin sé þung Á efnisskrá vetrarins eru nokkur stórvirki úr leikbókmenntunum, sum hver sem leikhúsáhugafólk hefur ár- um, jafnvel áratugum, saman beðið eftir að verði færð á svið hér, eins og Lér konungur og Beðið eftir Godot. Frá fyrra ári verða fjórar sýningar teknar upp; Einhver í dyranum sem framsýnt var í Listahátíð í vor, Skáldanótt, Kysstu mig Kata og Sex í sveit. Þau verk sem Guðjón hefur val- ið á efnisskrána í vetur era, auk Lés konungs og Beðið eftir Godot, Abigail heldur partí eftir Mike Leigh, Þjóð- níðingur eftir Henrik Ibsen, Öndveg- iskonur eftir Wener Schwab, Kontra- bassinn eftir Patrick Súskind, Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring og bamasýningin verður Móglí eftir Rudyard Kipling. Þær gagnrýnisraddir hafa heyrst að verkefnavalið hjá þér sé nokkuð þung þar sem hún inniheldur nokkuð mikil stórvirki úr leikbókmenntasög- unni. Hverju svarar þú því? „Ætli ég sé ekki að afsanna það að klassíkin þurfi að vera þung og leiðin- leg. Shakespeare þarf til dæmis ekki að vera þungur og leiðinlegur eins og fólk hefur séð bæði hér í uppfærslum síðustu ára og í kvikmyndum. Hvað Þjóðníðingana eftir Ibsen varðar þá held ég að það sé eitt af þeim verkum Ibsens sem hefur hvað best staðið af sér tímann og það gæti næstum því verið að gerast á íslandi í dag.“ Og víst er það vegna þess að Þjóð- níðingurinn fjallar um lækninn Tóm- as Stockmann sem stendur einn gegn samfélaginu þegar hann gerir upp- götvun sem setur væntanlegar stór- framkvæmdir bæjarins í uppnám. Þá vakna spurningar eins og: Hvers virði er sannleikurinn gegn auðsóttum gróða? Hversu langt eram við tilbúin að ganga í baráttunni fyrir réttlæti? Hvenær era hagsmunir samfélagsins mikilvægari en tjáningarfrelsið? Tví- mælalaust eitt besta verk Ibsens. „Beðið eftir Godot er verk sem margir leikhúsáhugamenn hafa beðið lengi eftir en hinn almenni áhorfandi myndi líklega segja að það væri leið- inlegt," segir Guðjón en engu að síður er þetta eitt merkasta leikverk sem skrifað var á 20. öldinni og fjallar um þá Vladimir og Estragon sem bíða eftir Godot, einhverju tákni frá hon- um eða skilaboðum. Þeir gera sér ekki grein yfir því hvers vegna þeir bíða, hafa orð á því að hengja sig en spottaleysi hrjáir. Þetta er áleitin lýs- ing á hlutskipti og getuleysi mann- anna á tímum tækni og framfara, guðleysis og trúarþarfar. Það lýsir þiðinni eftir frelsun, björgun, leið- sögn - stærsti kosturinn er húmor- inn. Kontrabassann setti Guðjón upp á Laugavegi 32 á sínum tíma og vai- hann annað vei'kefnið hjá Frú Emilíu. Guðjón segist setja það upp núna vegna þess að svo fáir hafi átt þess kost að sjá það í litla húsnæðinu á Laugaveginum. „Verkið fjallar um svo skemmtilegt efni sem mér finnst að fleiri ættu að sjá það,“ segir hann. Lér er maður sem á margt dlært En hvers vegna Lér konungur af öilum verkum Shakespeares? „Það era í rauninni margar ástæð- ur fyrir því. Fyrst er að nefna að ég hafði val á nokkram leikurum hér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.