Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 42
f. 42 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Fj arlægir forsetar I menningarríkjum erframkoma ígarð aldraðra höfð til marks um uppeldi, sið- rœnan proska og mannkosti. ASAMA tíma og aldr- aðir koma saman við Alþingishúsið til að mótmæla bágum kjörum er um það deilt á íslandi hvort stjómmála- stéttin sé í viðunandi tengslum við umhverfi sitt og samtíma. Annáluð alvörumenni hafa verið staðin að því að skella upp úr. Þeir eru þó fleiri, sem sitja á strák sínum af virðingu við aldraða í þessu landi, enda er þeim hinum sömu fullkunnugt um launahækk- anir þær, er íslenskir stjómmála- menn hafa tryggt sér síðustu miss- erin og „kjarabætumar", sem öldruðum hafa verið skammtaðar. Deila þessi vekur sérstaka at- hygli sökum þess hverjir bera hana uppi. Astæða er til að taka fram að það em þeir Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og Ólaf- VIÐHORF Grlm^ifor- seti lýðveldis- ins Islands, sem deila um Eftir Asgelr Sverrisson það hvort íslenskir ráðamenn séu í tengslum við umhverfi sitt og sam- tíma. Þessi skoðanaskipti hófust er Ólafur Ragnar Grímsson vék að því efnislega í svonefndri ,4nnsetn- ingarræðu“ sinni (e. „inaugural address“) að Aiþingi íslendinga hefði fjarlægst þjóðina og endur- speglaði hvorki lengur hana né eigin samtíma. Líkt og vænta mátti vöktu þessar réttmætu ábendingar forseta lýðveldisins litla kátínu hjá þingheimi. Var for- setinn þó einungis að greina frá viðhorfum, sem kallað hafa fram mikla umræðu víða erlendis um framþróun lýðræðis á tímum örra breytínga. Loks kom að þvi að þingmenn gátu launað sendinguna. Þegar AI- þingi kom saman á mánudag svar- aði forseti samkundunnar, Halldór Blöndal, „sameiningartákniþjóð- arinnar" fullum hálsi. Það væri gjörsamlega fráleitt að halda því fram að Alþingi íslendinga hefði fjarlægst eigin samtíma og væri „ekki lengur spegilmynd þjóðar- innar“. Svo vildi tíl að stuttu áður en forsetí Alþingis lét þessi orð falla höfðu aldraðir og öryrkjar komið saman fyrir framan Alþingishúsið tíl að kvarta undan þeim kjörum, sem þeim eru búin á mestu góðær- istímum Islandssögunnar. Skömmu áður höfðu aldraðir ís- lendingar kallað úr fjarlægð til þingmanna og minnt þá á að þeim bæri að „heiðra föður sinn og móð- ur“. Þessi köll kváðu við er þing- menn gengu frá Dómkirkjunni í Alþingishúsið, framhjá almenn- ingi, sem haldið var í hæfilegri fjarlægð frá mikilvægasta fólki þjóðarinnar. Fjarlægðin milli stjómmála- stéttar og þjóðar kom fram með eftirminnilegum hættí þennan mánudag á Austurvelli. Þessi fjarlægð, sem m.a. lýsir sér í því að stjómmálamenn sýna öldruðum ekki tilhlýðilega virð- ingu, er á hinn bóginn í samræmi við vilja þjóðarinnar. Þann vilja opinberar þjóðin með því að sam- þykkja möglunarlaust forgangs- röðun ráðamanna og öldungis úr- eltvaldakerfi. Það valdakerfi þjónar fyrst og fremst hagsmun- um stjómmálastéttarinnar að því marki sem það heimilar náðarsam- legast lýðnum í landinu að láta álit sitt í ljós á fjöguma ára fresti en telur sig þess umkomið að hafa öll ráð almennings í hendi sér þess í milli. Þetta kerfi er svo augljós- lega tímaskekkja að aðdáun hlýtur að vekja að enn skuli vera til menn, sem halda uppi vömum fyr- ir það. Þar fara hinir réttnefndu „sérvitringar" svo vísað sé til skammaryrðis samtímans í ís- lenskri stjórnmálaumræðu. Athygli vekur að í þeirri fyrir- ferðarmiklu „umræðu“, sem jafn- an fer fram hér á landi um ágæti og algjöra sérstöðu íslenskrar menningar, fer lítið fyrir því að spurt sé á hvaða menningarstigi sú þjóð geti talist, sem neyðir aldr- að fólk til þess að mótmæla opin- berlega skattpíningu, mismunun og tómlæti hinna yngri. I menningarríkjum er fram- koma í garð aldraðra jafnan höfð til marks um uppeldi, siðrænan þroska og mannkosti. Alþingi Islendinga endur- speglar vitanlega ekki þjóðina. Nægir að horfa til búsetu, kynja- skiptingar og aldursdreifingar. Ellilífeyrisþegar, venjulegir aldr- aðir Islendingar, eiga þar t.a.m. enga fulltrúa fremur en ungt fólk. Einsleitur hópur miðaldra at- vinnustjórnmálamanna er ráðandi á Alþingi. Þetta fólk hefur flest varið síðustu áratugum í að feta sig upp valdastiga stjómmála- flokka, hina „sh'mugu stöng" Disraelis, sem skapað hefur sam- eiginlega reynslu hinnar pólitísku stéttar. Forsenda upphafningar- innar er nú sem fyrr hollusta við hefðbundna hugsun og viðtekin viðmið. Fyrsta boðorð valdakerfis hvers tíma er jafnan að viðhalda sjálfu sér líkt og skylduboð stjóm- málamannsins kveður á um að hann skuli ná endurkjöri. Efinn jafngildir pólitísku sjálfs- morði. Þingmenn geta þó huggað sig við að þeir em ekki einir um að hafa fjarlægst umbjóðendur sína. Ef einhver stofnun er í minni tengslum við eigin samtíma og umhverfi en Alþingi er það emb- ætti forseta íslands. Ekkert lát er á þeirri „hirðvæðingu“, sem ein- kennt hefur þetta embætti síðustu 15 árin eða svo. Alþingi íslendinga hefur óhjá- kvæmilega fjarlægst þjóðina á síð- ustu ámm. Þar hefur verið um að ræða viðhorfsbreytingu, sem fylgt hefur örri þróun á mörgum samfé- lagssviðum, og þingmenn hafa al- mennt ekki fengið höndlað. Þar ræður mestu einhæfur bakgmnn- ur og reynsla auk þess sem alltof margir þeirra em fastir í viðjum flokkshyggju og hefðbundinnar hugsunar hinnar pólitísku stéttar. Sameinandi einkenni þeirra við- teknu hugsunar er ótti við breyt- ingar. Þessu er á annan veg farið hvað forseta Islands varðar. Þar hefur skipulega verið unnið að því að auka fjarlægðina á milli almenn- ings og forsetaembættísins með „hirðvæðingu" þess. Af þessum sökum fer þeim ört fjölgandi, sem vilja sem minnst af íslenskum stjómmálum og emb- ætti forseta Islands vita. Til lengri tíma litið mun þessi afstaða birtast í sífellt minni þátttöku í kosning- um á í slandi og vaxandi þunga í þeirri kröfu fólks að ráðamenn láti það einfaldlega í friði. HELGA SÍMONAR- DÓTTIR MELSTEÐ + Helga Símonar- dóttir Melsteð fæddist á Þingvöll- um 22. maí 1914. Hún lést í Hjúkrun- arheimilinu Skóg- arbæ í. nóvember sfðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Jónína Sveinsdóttir, f. 7.12. 1885, á Torfastöðum í Grafningi, d. 29.4. 1957, og Sfmon Daníel Pétursson, f. 2.2. 1882 á Þingvöll- um, d. 27.4. 1966, bóndi og þúsundþjalasmiður í Vatnskoti í Þingvallasveit. Systk- ini Helgu voru fjögur; Karl Pétur, f. 4.8. 1911, d. 11.11. 1997; Katrín Silvía, f. 27.9. 1912; Sveinborg, f. 9.8. 1915, og Aðalsteinn, f. 9.11. 1917, d. 8.3. 1993. Helga giftist árið 1939 Gunn- laugi Bjarnasyni Melsteð, húsa- smfðameistara, f. 5.5. 1908, d. 21.1. 1963, frá Framnesi á Skeið- um. Foreldrar hans voru Bjarni Melsteð og kona hans Þórunn Guðmundsdóttir. Börn Helgu og Gunnlaugs: 1) Sigursteinn, framkvæmdastjóri, f. 22.8. 1938, kvæntur Hönnu Ing- ólfsdóttur. Börn þeirra eru: a) Hrafn, véliðnfræðingfur, f. 15.10. 1959, sambýliskona hans er Odd- ný Þóra Sigurðardóttir og eiga þau synina Sigurð Má og Sigurs- tein Orra. b)Helga Hrönn, renni- smiður og tækniteiknari, f. 8.10. 1965, gift Ingólfi Finnssyni og Mig langar til að minnast í nokkr- um orðum tengdamóður minnar Helgu Melsteð. Ég kom fyrst inn á heimili hennar á aðfangadagskvöld árið 1957. Þar tók hún á móti mér með sínu hlýja viðmóti og færði mér jólapakka og mér leið eins og ég væri að hitta vin- konu sem ég hafði alltaf þekkt. Ég og Símon, næstelsti sonur Helgu, gengum í hjónaband og eignaðist ég þar Helgu fyrir tengdamóður og varð hún mér hin besta vinkona. Við hófum búskap undir verndarvæng hennar á Rauðarárstíg 3 og urðum við mjög nánar. Helga var sterkur persónuleiki, ákveðin en tillitssöm og afskaplega hjálpfús við alla og ekki síst við barnabörnin. Hún lék sér við þau, passaði þau alltaf þegar á þurfti að halda og hjálpaði þeim við heimalærdóminn. Var þá gott að hafa ömmu í sama húsi. Ekki brást hún okkur heldur þeg- ar sonur hennar féll frá því þá var hún sterki hlekkurinn sem alltaf var til staðar. Þess naut yngsta dóttir mín, fjögurra ára, er hún missti pabba sinn. Við Helga áttum margar ánægju- legar stundir saman, sérstaklega í Þingvallasveitinni. Þar var hún með okkur fjölskyldunni oft og naut þess út í ystu æsar. Síðast vorum við þar saman í júlí síðastliðnum og var hún þá mjög farin heilsu en sem fyrr var hún til í að fara á Þingvöll. Helga var einstök kona; framsýn og úrræðagóð og sá alltaf jákvæðu hliðarnar á lífinu. Hún var minn sál- og félagsfræðingur. Afkomendur, vinir hennar og vandamenn munu minnast hennar með þakklæti og hlýhug. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér, þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymisteigi og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- astþér. (Ingibj. Sig.) Laufey Erla Kristjánsdóttir. Deyrfé, deyjafrændur, deyrsjálfuriðsama, en orðstír deyr aldregi, hveimsérgóðangetur. Þessi orð úr Hávamálum koma eiga þau tvö börn, Hrefnu og Eyþór. c) Ómar Ingi, bifvéla- virki, f. 6.9. 1968, sambýliskona hans er Sigríður Árnadóttir, fósturdóttir hans er Silvía Rut. 2) Símon, rafvélavirki, f. 25.9. 1939, d. 4.10. 1983. Kona hans var Laufey Erla Kristjánsdóttir. Þeirra börn eru a) Helga, kennari, f. 30.9. 1958, gift Þor- leiki Jóhannessyni, þeirra börn eru Jó- hannes, Helgi og Þórhildur. b) Jó- hann Auðunn, vélaverkfræðingur, f. 28.3. 1961. Kona hans er Ineka Lawford, þau eiga dæturnar Kaylenah Jóhanna, Annleah Eva og Deveny Laufey, fyrir átti hann soninn Eyjólf. c) Gunnlaugur, bú- fræðingur, f. 11.4. 1963, kvæntur Hlín Guðjónsdóttur. Hann á dæt- urnar Birtu Sif og Ölmu Ósk og fósturdótturina Söndru. d) Anna Sigríður, framkvæmdastjóri, f. 23.12.1965. Hennar maður er Sig- urður Bjarnason og eiga þau son- inn Símon Karl. e) Elva Dögg, fyr- irsæta, f. 14.2. 1979. Sambýlis- maður hennar er Magnús Þór Gylfason. 3) Pétur, framkvæmda- stjóri Hárs og fegurðar, f. 27.1. 1941. Börn hans hans eru a) Grét- ar rafvirki, f. 30.11. 1960, kvænt- ur Cilje Alexandersen, þeirra börn eru Iselin og Christoffer. b) Ragnheiður, f. 6.5. 1971. Hennar maður er Magnús Scheving, þau mér í hug, eina tengdasyni hennar Helgu, nú að henni látinni. Helga var ein af þessum íslensku hvunndagshetjum, sem gert hafa mannlífið á Islandi betra en ella, vegna þess að þær voru tilbúnar að gefa af sjálfum sér, þeim sem voru í vanda staddir og hjálpar þurfi, hvort sem það var skyldfólk, tengdafólk eða fólk alls óskylt. Helga átti ekki langt að sækja þetta hugarfar, því einmitt svona var það hjá foreldrum hennar Símoni og Jónínu í Vatnskoti í Þingvallasveit. Helga bjó lengst af, ásamt manni sínum, Gunnlaugi, og fimm börnum á Rauðarárstíg 3 og átti hún þar mörg góð ár. Má segja að heimili þeirra Gunnlaugs hafi einna mest líkst stóru sveitaheimili, því þar var mjög gestkvæmt, enda vel tekið á móti gestum og ættbogi beggja hjónanna stór og einnig var þarna um vini þeirra beggja að ræða, bæði af höfuðborgarsvæðinu og austan úr sveitum. Annað gerði heimilisreksturinn á Rauðarárstíg 3 sérstakan, en það var nálægð barnanna og tengda- bamanna við heimili móður sinnar og tengdamóður á 3. hæð til vinstri, sem byggðist m.a. á því að Gunn- laugur tengdafaðir minn byggði stigahúsið á Rauðarárstíg 3 og not- aði þar af eina íbúð fyrir sig og sína fjölskyldu, leigði síðan börnum sín- um og tengdabömum tvær íbúðir, en seldi síðan afganginn óskyldu fólki. Segja má að börnin þeirra Helgu og Gunnlaugs hafi flogið úr hreiðrinu í áföngum, því öll fimm vom þau í þessum leiguíbúðum um lengri eða skemmri tíma. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra tengdabarna Helgu, þegar ég segi, að hjálpsemi hennar við t.d. uppeldi barnabamanna var alveg einstök, hvort sem það var barna- gæsla, aðstoð við nám, eða uppeldi í víðasta skilningi. Segja má að Helga hafi fengið sinn skammt af mótlæti í lífinu. Hún missti mann sinn Gunnlaug þegar hún var 47 ára og tvo af sonum sín- um, Símon og Gunnlaug, missti hún, þegar þeir vom í blóma lífsins. Einn- ig átti hún oft við ýmiss konar veik- indi að stríða síðustu þrjá áratugi ævi sinnar. En þetta mótlæti lét hún hvorki buga sig né smækka, hún hélt áfram að gefa af sjálfri sér. Hún hjálpaði til dæmis bróður sínum Pétri mikið með Fríðu eiginkonu eiga tvö böm, Silvíu Erlu og Kristófer. Einnig á Pétur dóttur- ina c) Sigríði og á hún tvö böm. 4) Jónína, hjúkrunarfræðingur, f. 8.8. 1944, gift Gunnari H. Gunn- arssyni. Börn þeirra eru a) Gunn- laugur, rafeindavirki, f. 9.9. 1963, sambýliskona hans er Margrét Baldursdóttir, og eiga þau dóttur- ina Jóninu. Hann á soninn Hrafn- kel Gri'm úr fyrri sambúð. b) Ingi- björg kennari, f. 18.3. 1966, sambýlismaður er Pétur Daníels- son, þau eiga soninn Daníel. c) María Sigrún, kennari, f. 26.8. 1968, er í sambúð með Gísla Héð- inssyni, þeirra börn eru Ágústa Mjöll og Hjörtur Snær. d) Svein- borg Hlíf, háskólanemi, f. 8.8. 1979. 5) Gunnlaugur Bjarni, ldjómlistarmaður, f. 12.4. 1949, d. 6.8. 1979. Hans kona var Hrefna Þorbjarnardóttir. Börn a) Helga Dröfn, snyrtifræðingur, f. 1.8. 1967, maður hennar er Fred Van Aalst og eiga þau synina Daníel og Davíð Gunnlaug. b) Marinó Bóas, háskólanemi, f. 9.10. 1977. Harpa, sjúkraþjálfari, f. 21.1.1975. Helga ólst upp í Vatnskoti við hefðbundin sveitastörf. Hún fór að vinna fyrir sér fljótlega eftir að barnaskóla lauk og var þá oft við þjónustustörf í konungshúsinu og víðar. Eftir að hún kom til Reykja- víkur fór hún að læra herrafata- saum hjá Óskari klæðskera og setti eftir það á stofn saumastofu og hafði nokkrar stúlkur í vinnu. Helga starfaði mikið að félags- málum, mest þó fyrir Blindrafé- lagið um margra ára skeið. Hún vann einnig lengi við mötuneyti Lindargötuskólans og Ármúla- skólans. Utfor Helgu verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14.30. hans, sem átti í mjög erfiðum veik- indum í mörg ár. Helga hafði mikið yndi af ferða- lögum og ferðaðist allmikið, einkum innnanlands, oft með börnum sínum og tengdabörnum, en einkum þó síð- ustu árin, meðan þau höfðu bæði heilsu til, með Pétri bróður sínum, sem var mikill, jeppakarl". Helga Símonardóttir Melsteð, hvíl þú í friði og haf þú þökk fyrir allt. Gunnar H. Gunnarsson. Nú er komið að kveðjustund. Elskuleg tengdamóðir mín, Helga S. Melsteð, hefur kvatt þennan heim. Ég þakka þessari einstöku konu fyr- ir samíylgdina, fyrir að vera mín stoð og stytta gegnum árin, fyrir að vera yndisleg amma fyrir börnin mín og barnabörn. Eg sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífs þins nótt. Þig umvelji blessun og bænir, égbiðaðþúsofirrótt. Þótt svíði nú sorg mitt hjarta þásæiteraðvitaafþví að laus ert úr veikinda viðjum þínveröld erbjörtáný. Ég þakka þau ár sem ég áttí þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þakka þér allt sem þú varst mér. Hrefna. Ástkær amma mín er látin 86 ára að aldri. Hennar tími var kominn og er ekki annað hægt en að vera þakk- látur fyrir öll þau ár sem hennar naut við. Amma á Rauð eins og hún var oft- ast kölluð meðal okkar barnabam- anna var ofurkona hin mesta og var mjög afgerandi í skoðunum og hátt- um. Líf hennar var ekki beint dans á rósum og mótaði það persónuleika hennar mjög sterkt. Þrátt fyrir erfiðleika og brattar brekkur í lífinu var alltaf hægt að sækja til ömmu því dyr hennar voru okkur alltaf opnar. Amma hafði líka ráð undir rifi hveiju og var ákaflega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.