Morgunblaðið - 06.10.2000, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Frá ráðstefnu um menntamál á Flúðum. Frá vinstri: Menntamálaráðherra Bjöm Bjarnason í ræðustól, Svan-
borg V. Jónasdóttir umræðustjóri, Björg Eiríksdóttir, kennari á Flúðum, Hjálmfríður Sveinsdóttir, skólastjóri
Vestmannaeyjum, og Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri í Holta- og Landsveit.
Fjölmennt kennara-
þing á Flúðum
Hvolsvelli - Kennarar á Suðurlandi
fjölmenntu á árlegt kennaraþing
Kennarafélags Suðurlands og Kenn-
arafélags Vestmannaeyja að Flúðum
í Biskupstungum, en þátttakendur
voru alls á fjórða hundrað. Að þessu
sinni var haldin ráðstefna fyrri dag
þingsins um menntamál og þær
breytingar sem eru að verða vegna
nýrrar aðalnámskrár. Frummælandi
á ráðstefnunni var Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra, en einnig tóku
þátt fulltrúi kennara, Björg Eiríks-
dóttir, fulltrúi skólastjómenda,
Hjálmfríður Sveinsdóttir og fulltrúi
frá sveitarstjómum, Valtýr Valtýs-
son. Umræðustjóri var Svanborg R.
Jónasdóttir.
Menntamálaráðherra sagði m.a.
frá tilurð nýju aðalnámskrárinnar og
þeirri vinnu sem unnin hefur verið í
tengslum við hana og fjallaði hann
einnig vítt og breitt um þróun í
menntamálum. Björg fjallaði m.a. um
vanda smærri skóla vegna breyttra
krafna í nýju námskránni, Hjálmfríð-
ur kom inn á breytt hlutverk skól-
anna og Valtýr fjallaði m.a. um fjár-
hagslega ábyrgð sveitarfélaganna og
þann vanda sem sveitarfélög era
komin í vegna þess hversu málaflokk-
ar eins og rekstur grannskóla taka æ
stærri hlut af ráðstöfunarfé sveitar-
félaganna. Að loknum framsöguer-
indum var boðið upp á fyrirspumir úr
sal og urðu umræður nokkuð líflegar.
Síðari dag þingsins var boðið upp á
fjölbreytt fræðsluerindi þar sem
fjallað var um þætti eins og lífsleikni
kennarans, félagastuðning í starfi,
ýmis þróunarverkefni vora kynnt,
s.s. skriftarkennsla og nemenda-
samningar. Einnig vora kynningar á
nýju námsefni. Boðið var upp á nám-
skeið í tauþrykki og faggreinafundi
sem ávallt era mjög vinsælir, enda
gefst fólki þar tækifæri til að hittast
og spjalla um faglega þætti í hinum
ýmsu námsgreinum.
Að þessu sinni var kennaraþingið á
Flúðum óvenju fjölmennt þar sem
það var haldið í samvinnu við kenn-
arafélag Vestmannaeyja. Vora menn
almennt sammála um að allur viður-
gerningur sem Hótel Flúðir sá um
hefði verði eins og best verður á kos-
ið.
Hvalaskoðunin gekk vel á Skjálfanda
Sextíu prósent aukn-
ing í jaðarferðum
Morgunblaðið/Hafþór
Náttfari við bryggju í Flatey.
Húsavík - Hvalaskoðunarvertíðinni
hjá Norðursiglingu ehf. er nú lokið í
bili og er ekki hægt að segja annað en
að hún hafi komið vel út. Að sögn
Heimis Harðarsonar hjá Norðursigl-
ingu vora farnar tæplega fimm
hundrað ferðir á þremum bátum fyr-
irtækisins þ.e.a.s. Knerrinum, Hauk
og Náttfara sem er þeirra stærstur.
Þetta er um þijátíu ferðum fleiri en
í fyrra en nýtingin er allmiklu betri
eða um fjöratíu og sex prósent fleiri
farþegar en alls vora þeir um tuttugu
þúsund og fimm hundrað talsins í
hvalaskoðun. Þess ber að geta að
Norðursigling ehf. keypti upp rekstur
Sjóferða Arnars ehf. og er nú eina fyr-
irtækið á Húsavík sem býður upp á
þessar ferðir auk þess sem það fækk-
aði um eitt skip í flotanum vegna
þessa. Hlutfall milli innlendra og er-
lendra ferðamanna breyttist lítið í
sumar og eru Islendingar um fimmtán
prósent þeirra sem fara í hvalaskoðun.
Ferðir til Flateyjar vinsælar
Þá var boðið upp á ferðir sem
nefndust „Whales, fire and ice“ sem
era svokallaðar jaðarferðir og famar í
maí og fyrrihluta júní og svo seinni
hluta ágúst og út september. Þetta
era hópferðir þar sem gist er í þrjár
nætur, eingöngu í Þingeyjarsýslum
og sagði Heimir aukninguna í þessum
ferðum um sextíu prósent. Famar
vora nokkrar ferðir út í Flatey á
Skjálfanda með stóra hópa, m.a. á
vegum fyrirtækja og félagasamtaka
sem þá buðu starfsmönnum sínum og
félagsmönnum í þessar ferðir og
mæltust þær mjög vel fyrir. Farið var
í gönguferðir um eyjuna, gömlu húsin
skoðuð og jafnvel grillað ofan í mann-
skapinn. A heimsiglingunni var jafnan
siglt á hvalaslóðir og eða inn með hin-
um tignarlegu Víknafjöllum öðra
nafni Kinnarfjöllum að Náttfaravík-
um söguslóðum Náttfara, þrælsins
sem hið glæsilega flaggskip, Norður-
siglingar ehf., er nefnt eftir.
Nú er verið að ganga frá minni
bátum fyrirtækisins fyrir veturinn
en Heimir segir að Náttfari verði
gerður út frá Akureyri með sama
sniði og sl. vetur þ.e.a.s. siglingar
með hópa um Eyjafjörð í samvinnu
við Lostæti ehf. sem er veislueldhús
á Akureyri.
Flugi hætt til
Húsavíkur
FLUGFÉLAG fslands er hætt
beinu flugi til Húsavíkur. Reiknað er
með að Flugfélagið bjóði áfram ferð-
ir þangað í gegnum Akureyri í sam-
starfi við SBA og BSH. Ekki hefur
verið ákveðið hvort beint flug til
Húsavíkur verði tekið upp aftur
næsta sumar.
Flugfélag íslands gerði samning
við hagsmunaaðila á Húsavík um
þetta flug í sumar og gerði samning-
urinn ráð fyrir flugi á tímabilinu júní
til september og komu að honum
bæjaryfirvöld á staðnum og aðilar í
ferðaþjónustu á svæðinu. Að sögn
Flugfélagsmanna gekk þetta sam-
starf vel þó að farþegar hafi verið
heldur færri en vonir stóðu til.
Ekki hægt að halda uppi flug-
inu án aðstoðar frá ríkinu
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri
á Húsavík, segir að þegar samningur
við Flugfélag íslands um flug yfir til
Húsavíkur yfir sumarmánuðina var
gerður, hafi verið ljóst að sá samn-
ingur yrði ekki endilega framlengd-
ur. Hann segir að Flugfélag íslands
hafi talið að ekki væri hægt að halda
uppi fluginu án aðstoðar frá ríkinu.
Reinhard segist vilja sjá að ríkis-
valdið setji ramma utan um hvemig
þessi starfsemi geti gengið því ekki
sé hægt að ætlast til þess að hluthaf-
ar einstakra hlutafélaga í landinu
beri uppi samgöngukerfið.
,Áætlunarflug innanlands stendur
mjög höllum fæti og krafa okkar er
sú að stjórnvöld taki afstöðu til þess
hvort þau ætli að láta þennan þátt
eiga sig og vera í höndum markaðar-
ins, eða hvort ríkisvaldið telji sig
hafa skyldu til að koma að þessum
samgönguþætti eins og mörgum öðr-
um samgönguþáttum," segir Rein-
hard.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra var viðstaddur opnunina á Höfn.
Með honum á myndinni er Ágústa Vignisdóttir.
Utanríkisráðu-
neytið kynnir starf-
semi sína á Höfn
Höfn - Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra opnaði sl. miðvikudag
ljósmyndasýningu í Pakkhúsinu á
Höfn. Um er að ræða sýningu sem
utanríkisráðuneytið er að fara með
um landið til að kynna fjölbreytta
starfsemi sína og þá þjónustu sem
ráðuneytið býður fyrirtækjum og
einstaklingum upp á.
Á sýningunni, sem stendur til 22.
október, er rakin saga utanríkis-
mála í máli og myndum frá árinu
1940 eða þegar íslendingar ákváðu
að annast þau mál sjálfir eftir að
Þjóðverjar hertóku Danmörku.
Höfn er fjórði staðurinn á lands-
byggðinni þar sem sýningin er sett
upp en hún var fyrst sett upp í
Þjóðarbókhlöðunni á afmælisdegi
utanríkisþjónustunnar 10. apríl síð-
astliðinn. Síðan þá hefur sýningin
verið sett upp á Akureyri, Isafirði,
Egilsstöðum og nú á Höfn.
Fjöldi manns var við opnun sýn-
ingarinnar en hún er opin almenn-
ingi virka daga frá kl. 16 til 18 og 13
til 18 um helgar. Aðgangur er
ókeypis.
Þorvaldur Viktorsson og Þorbjörg Arnórsdóttir skoðuðu sýninguna.
1 1
Á
Bókaðu í síma 570 3030 og 4781250
ff d 11.230 kf. meft flu$vallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is