Morgunblaðið - 06.10.2000, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Útboð og skráning Kaupþings hf.
180 milljóna
króna nýtt
hlutafé á
genginu 10,25
NÝTT hlutafé í Kaupþingi hf., að
nafnvirði allt að 180 milljónir króna,
hefur verið auglýst til sölu í útboði
á genginu 10,25. Heildarhlutafé fé-
lagsins að útboðinu loknu verður
allt að 968,6 milljónir króna að
nafnvirði. Markaðsvirði Kaupþings
miðað við framangreint gengi er
um 9,9 milljarðar króna.
Samtals munu hlutir að nafnvirði
80 milljónir króna verða seldir í al-
mennri áskrift. Þar af er þeim sem
gert hafa fjárvörslusamning við
Kaupþing tryggður forgangur að 30
þúsund krónum hverjum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Kaupþingi
eru um 1.300 slíkir samningar í
gangi hjá félaginu. Ef allir sem gert
hafa siíka samninga notfæra sér
rétt sinn til kaupa á hlutafé fyrir 30
þúsund krónur að nafnvirði munu
liðlega 40 milljónir króna að nafn-
virði koma í almenna áskrift, sam-
tals að söluvirði rúmlega 400 millj-
ónir króna. Hámarkshlutur hvers
áskrifanda í almennri áskrift er 50
þúsund krónur að nafnvirði eða sem
nemur 512.500 krónum að söluvirði.
Askrift hlutafjár í almennri sölu
fer fram á tímabilinu frá 10. til 12.
október næstkomandi. Eingöngu
verður tekið á móti áskriftum sem
sendar verða með rafi'ænum hætti.
Verði um umframáskrift í útboðinu
að ræða skerðist hámarksfjárhæð
hvers áskrifanda þar til heildar-
nafnverð seldra hlutabréfa er kom-
ið niður í 180 milljónir króna.
Skerðing verður því ekki sem hlut-
fall af þeirri fjárhæð sem áskrifend-
■1 ur skrá sig fyrir.
Starfsmönnum Kaupþings boðið
lán fyrir allt að 75% kaupverðs
Hlutafé í almennri áskrift getur
hækkað ef það 100 milljóna króna
hlutafé, sem ekki er gert ráð fyrir
að fari í almenna áskrift, selst ekki
allt. Af þessum 100 milljónum verð-
ur starfsmönnum Kaupþings, dótt-
urfélaga og útibús, veittur forgang-
ur að kaupum á hlutafé fyrir
samtals 40 milljónir króna að nafn-
virði á útboðsgengi. Kaupþing mun
bjóða þessum aðilum lán fyrir hluta
af kaupverðinu sem nemur allt að
75% af því. Stjórnarmönnum og
starfsmönnum sparisjóðanna og til-
tekinna dótturfélaga þeirra verður
veittur forgangur að 20 milljónum
króna að nafnverði á» útboðsgengi.
J Þá verður Sparisjóði Færeyja veitt-
j ur forgangur að 40 milljónum króna
að nafnvirði á útboðsgengi. Hægt
er að fylla út og senda áskriftarblöð
rafrænt til Kaupþings í gegnum
heimasíðu félagsins, www.kaup-
thing.is, en þar er jafnframt hægt
að nálgast útboðs- og skráningar-
lýsingu. Síðasti greiðsludagur
vegna kaupanna verður 10. nóvem-
ber 2000.
Væntanlegir áskrifendur eru
hvattir til þess í auglýsingu Kaup-
þings um útboðið að kynna sér um-
fjöllun um áhættuþætti í starfsemi
félagsins og áhættu sem tengist
kaupum á hlut í útboðs- og skrán-
ingarlýsingunni.
Verðbréfaþing íslands hefur
samþykkt að skrá öll hlutabréf
Kaupþings hf., sem þegar hafa ver-
ið gefin út og sem verða gefin út að
loknu útboðinu, samtals allt að
968,8 milljónir króna að nafnvirði.
Skilyi'ði er að Kaupþing hf. uppfylli
öll skilyrði um dreifingu eignar-
halds á a.m.k. 25% hlutabréfanna,
en félaginu hefur verið veitt undan-
þága frá því ákvæði til 1. nóvember
2001.
Verðlagningin ekki ósanngjörn
„Ef tekið er mið af útboðsgeng-
inu er virði Kaupþings eftir útboðið
9,9 milljarðar króna,“ segir Edda
Rós Karlsdóttir hjá rannsóknum og
greiningu Búnaðarbankans Verð-
bréfa. „Á síðasta ári var V/H gildi
félagsins tæplega 14, sem þýðir að
miðað við hagnað árisns 1999 er fé-
lagið 14 ár að greiða upp markaðs-
virði sitt. Þetta hlutfall er í ágætu
samræmi við V/H hlutföll sambæri-
legra félaga á Norðurlöndunum."
Edda Rós segir Kaupþing stunda
fjárfestingarbankastarfsemi og að
sá rekstur sé í eðli sínu áhættusam-
ari en rekstur viðskiptabanka. Við-
skiptabankarnir hafi tiltölulega
stöðugt bakland í reglulegri út- og
innlánsstarfsemi en tekjur fjárfest-
ingabanka séu fyrst og fremst í
formi þóknana og eigin stöðutöku.
„Kaupþing hefur teflt djarft á
síðustu árum, á sama tíma og um-
hverfið hefur verið mjög hagstætt.
Reksturinn hefur því gengið gríðar-
lega vel og verðlagningin nú er í
samræmi við það.
Að sögn Eddu Rósar er ástæða
til að hrósa Kaupþingi fyrir áhættu-
kafla útboðslýsingarinnar, en þar
séu sýnd dæmi um tapáhættu fé-
lagsins við óhagstæðar markaðsað-
stæður.
Morgunblaðið/ ÁSDÍS
I umsögnum fjármálafyrirtækja um hlutafjárútboð í Kaupþingi hf. kemur fram að gengið sé ekki ósanngjarnt.
Ekki verður af
sameiningu EMI
og Time Warner
Ósló. Morgunblaðið.
„Möguleikar til frekari vaxtar
Kaupþings eru klárlega fyrir hendi
og miðað við árangur síðustu ára
teljum við verðlagninguna ekki
ósanngjarna. Rétt er að benda á að
mjög lítill hluti af heildarhlutafé
Kaupþings fer í raun á markað og
því er líklegt að mikil umframeftir-
spurn myndist eftir bréfunum sem
verði til þess að verð bréfanna
hækki fyrst eftir útboðið," segir
Edda Rós.
Útboðsgengið eðlilegt
Arnbjörn Ingimundarson hjá
greiningu og útgáfu Islandsbanka-
FBA segir að miðað við rekstur og
efnahag Kaupþings sé útboðsgeng-
ið 10,25 eðlilegt og jafnvel frekar
hagstætt miðað við aðrar fjármála-
stofnanir á Islandi. Utboðið muni
styrkja eiginfjárstöðu Kaupþings
verulega og að útboði loknu verður
markaðsvirði fyrirtækisins sem
hlutfall af eigin fé lægra en hjá við-
skiptabönkunum. Rekstur Kaup-
þings hafi einnig gengið vel undan-
farin ár og vöxturinn hafi verið
mjög mikill. Reksturinn sé reyndar
miklum sveiflum háður og Kaup-
þing hafi notið góðs af efnahagsþró-
un síðustu ára. Niðursveifla gæti
komið illa niður á fyrirtækinu. „Það
skyggir nokkuð á útboðið hversu
lítill eignarhluti er seldur til al-
mennra fjárfesta, en einungis rúm
8% af hlutafé Kaupþings fara til al-
mennra fjárfesta. I ljósi hluthafa-
samkomulags Sparisjóðanna, sem
takmarkar möguleika utanaðkom-
andi aðila til kaupa á hlutum ein-
stakra sparisjóða þangað til í júlí á
næsta ári, er því ekki að vænta mik-
illa viðskipta með hlutabréf Kaup-
þings á næstunni. Fyrir þá sem
fjárfesta til lengri tíma teljum við
útboðsgengið þó hagstætt,“ segir
Arnbjörn.
HÆTT hefur verið við samruna
bresku plötuútgáfunnar EMI og
útgáfuhluta Time Warner í Banda-
ríkjunum vegna athugasemda sam-
keppnisyfirvalda í Evrópu, að því
er m.a. kemur fram á fréttavef
BBC.
Framkvæmdastjórn ESB hefur
gert athugasemdir við að 80% af
tónlistarútgáfu í Evrópu yrði í
höndum aðeins fjögurra alþjóðlegra
risafyrirtækja eftir samrunann, þ.e.
auk sameinaða fyrirtækisins; Bert-
elsmann, Sony og Universal Music.
Framkvæmdastjórnin hafði enn
FINNSKA málmiðnaðarfyrirtækið
Outokumpu hefur tilkynnt um fyrir-
huguð kaup á norska sinkvinnslu-
fyrirtækinu Norzink fyrir sem
samsvarar 15 milljörðum íslenskra
króna.
Forstjóri Outokumpu segir í sam-
tali við ft.com að miklir möguleikar
séu á útþenslu Norzink í framtíð-
ekki skilað niðurstöðu sinni þegar
EMI og Time Warner tilkynntu í
gær að ekki yi'ði af samrunanum.
Ákvörðun EMI og Time Warner
nú gæti orðið til þess að samkeppn-
isyfirvöld verði mildari þegar kem-
ur að samruna Time Warner við
netfyrirtækið America Online. Af-
leiðing þess samruna yrði stærsta
net- og fjölmiðlafyrirtæki heims.
Framkvæmdastjórn ESB og sam-
keppnisyfirvöld í Bandaríkjunum
eiga enn eftir að leggja blessun
sína yfir samruna Time Warner og
AOL.
inni. Norzink er skuldlaust fyrirtæki
og skilaði um 1.500 milljóna króna
hagnaði á fyrri hluta þessa árs.
I síðustu viku var tilkynnt um
samruna stálframleiðsluhluta Out-
okumpu og ensk-sænska fyrirtækis-
ins Avesta Sheffield í næststærsta
fyrirtæki heims á sviði framleiðslu á
ryðfríu stáli.
Finnar kaupa í
norskum málmiðnaði
Ósló. Morgunblaðið.
Heldur fyrirlestur
áAGORA
MEÐAL fyrirlesara á málþingi
AGORA, Sýnir morgundagsins -
Bringing Visions of the Future to
the Present, verður Udayan Gupta,
en hann er höfundur bókarinnar
„Done Deals: Venture Capitalists
Tell Their Stories“, sem Harvard
Business School Press hefur ný-
lega gefið út.
Udayan Gupta mun taka þátt í
pallborðsumræðum fimmtudaginn
12. október um sjónarhorn fram-
taksfjárfesta ásamt Alex Gove hjá
WaldenVC, Skúla Mogensen hjá
OZ og Bjarna Kr. Þorvarðarsyni
hjá Talentu. Á föstudeginum mun
hann halda fyrirlestur á málþingi
um líftækniiðnaðinn sem ber heitið
„Functional Genomics - The Vent-
ure Capital Pitch“.
Udayan Gupta starfaði á árunum
1985-1996 hjá Wall Street Journal
þar sem hann hafði umsjón með
skrifum um framtaksfjárfesta og
frumkvöðla. Hann er reglulegur
dálkahöfundur hjá Harvard Busin-
ess Review og hyggst hann nýta
ferð sína til Islands til að kynna
sér íslenskan þekkingariðnað og
fjalla um hann í tímaritsgrein. Þá
er hann einn eigenda biztrail.com,
sem veitir meðal annars frum-
kvöðlum aðstoð við að finna rétta
fjárfesta.
Framtíðin liggur
í líftækniiðnaði
Ósló. Morgunblaóið.
ÞRÁTT fyrir að í norska fjárlaga-
frumvarpinu sé gert ráð fyrir
auknum framlögum til vísinda-
rannsókna, finnst sumum ekki
nóg að gert, að því er Dagens
næringsliv bendir á. Preben Lex-
ow, forstjóri norska líftæknifyrir-
tækisins Complete Genomics,
segir að ríkisstjórnin verði að
veita meira fjármagn til rann-
sókna og auk þess rýmka reglur
um atvinnuleyfi fyrir erlent
starfsfólk. Mikill skortur er á sér-
menntuðu vinnuafli í Noregi, sér-
staklega á sviði upplýsingatækni.
Lexow segir að innan fárra ára
verði 70% af heimshagkerfinu
vegna líftækni og að hans mati
hafa norsk stjórnvöld ekki skiln-
ing á því. Hjá Complete Genomics
starfa sjö manns við rannsóknir
en Lexow segir nauðsynlegt að
fyrirtækið vaxi og geti kynnt nið-
urstöður sínar á markaði eins
fljótt og mögulegt er.
Líftæknifyrirtæki ásamt upp-
lýsingatæknifyiirtækjum eru
einnig á meðal þeirra fyrirtækja
sem samkvæmt nýju fjárlaga-
frumvarpi þuifa að greiða 1,5%
viðbótarskatt sökum þenslu í
norsku efnahagslífi. Forsvars-
menn atvinnulífsins hafa gagn-
rýnt skattlagninguna harðlega og
segja m.a. að ríkisstjórnin leiki
tveimur skjöldum þar sem hún
hefur lýst yfir mikilvægi upplýs-
ingatækni og líftækni fyrir fram-
tíðina en leggi á sama tíma skatt á
fyrirtæki í þessum gi'einum.
Hagsmunasamtök upplýsinga-
tæknifyrirtækja munu nú mælast
til þess að líftækni- og upplýs-
ingatæknifyrirtæki fái undanþágu
frá skattlagningunni.