Morgunblaðið - 06.10.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 06.10.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 23 VIÐSKIPTI VIS kynnir trygg ingu fyrir skakka föllum í viðskipt- um á Netinu Ný olíu- lind í Bar- entshafí OLÍUFÉLAGIÐ Agip í Noregi hef- ur fundið stóra olíulind í Barents- hafl. Um er að ræða meðalstóra lind á norskan mælikvarða en stóra á al- þjóðlegan mælikvarða, að því er fram kemur í Dagens næringsliv. Olían er á svæði 85 km norður af Hammerfest í Finnmörku og talið er að þar finnist 25-40 milljarðar rúm- metra af olíu en boranir standa enn yfir. Góðir möguleikar eru taldir á að meiri olia finnist á þessu svæði. Petta er fyrsta olíulindin sem finnst í Barentshafi og lítur út fyrir að Hammerfest verði olíubær eins og ætlunin hefur verið í tuttugu ár, að því er Aftenposten greinir frá. Mikil eftirvænting ríkir í Hamm- erfest að sögn ráðamanna og getur olíufundurinn haft jákvæð áhrif á at- vinnu- og efnahagslíf á staðnum. Áætlað er að unnið verði sameigin- lega úr nýju olíulindinni og gaslind í nágrenninu. --------------- Samskipta- vettvangur olíufyrir- tækja á Netinu Ósló. Morgunblaðið. HAFINN er undirbúningur að því að koma á fót samskiptavettvangi ol- íufyrirtækja á Netinu. TietoEnator er upplýsingatæknifyrirtæki sem starfar á Norðurlöndunum og hefur gert samning við m.a. Norsk Hydro, Statoil, BP Amoco og Shell um að þróa kerfið LicenseWeb þar sem hægt verður að nálgast upplýsingar af öllu tagi um olíu- og gasiðnaðinn i Noregi. Talsmenn olíuiðnaðarins í Noregi lýsa ánægju sinni með væntanlegan vettvang og segja hann gefa norsk- um íyrirtækjum forskot á keppi- nauta sína annars staðar í heiminum. Hjá TietoEnator starfa 10 þúsund manns á Norðurlöndunum og er ráð- gjöf varðandi upplýsingatækni í olíu- og gasiðnaðnum eitt af meginverk- efnum fyrirtækisins. ------♦-♦-♦---- Daewoo ásakar Ford fyrir tekjumissi BÍLAFRAMLEIÐANDINN Daew- oo í Kóreu kennii’ nú Ford um minni tekjur í september en áætlað hafði verið. Ford hætti nýlega við að kaupa Daewoo. Sala í september í ár var um 16% minni en í september í fyrra. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Framtíð bílaframleiðsluhluta Daewoo er óljós eftir að Ford féll frá 6,9 milljarða dollara tilboði í fyrir- tækið. Nú er talið að General Motors (GM) muni jafnvel bjóða í Daewoo en ljóst er að DaimlerChrysler mun ekki leggja fram tilboð. Aðsendar greinar á Netinu vg> mbl.is _ALLTX\f= EITTH\SA£J rJÝTT NETVERND er nafn á nýrri tryggingu sem Vátryggingafélag Islands býður fyrirtækjum, en með henni geta fyrirtæki tryggt sig gegn hugsanlegum áföllum af raf- rænum viðskiptum eða öðrum sam- skiptum um Netið. I fréttatilkynningu segir að tryggingin henti öllum fyrirtækj- um sem eru með nettengda starf- semi af einhverju tagi. Með henni sé hægt að tryggja tiltölulega ein- falda starfsemi á borð við tölvu- póstkerfi fyrirtækis og einnig geti tryggingin til dæmis náð til vefsíðu fyrirtækja og rafrænna viðskipta þeirra í gegnum Netið. „Netvernd tekur mið af áður óþekktri áhættu sem fyrirtæki standa nú frammi fyrir þegar þau taka upp starfsemi á Netinu og hefja samskipti í gegnum tölvu- póst. Tryggingunni er ætlað að fylla upp í glufur sem myndast hafa í hefðbundinni vátryggingar- vernd með breyttum viðskiptahátt- um. Netvernd veitir meðal annars vernd gegn bótakröfu þriðja aðila vegna nettengdrar starfsemi. Tryggingin veitir vernd gegn fjár- tjóni vegna vírusa eða tölvuþrjóta, bótakröfu vegna misnotkunar á greiðslukortanúmerum viðskipta- vina, þjófnaði í gegnum vefsíðu fyr- irtækis, bótakröfu starfsmanns vegna óviðunandi starfsskilyrða og fjárhagslegu tjóni sem hlýst af rekstrarstöðvun sem hindrar notk- un á tölvukerfi fyrirtækis eða við- skipti í gegnum vefsíðu þess,“ segir í fréttatilkynningunni. Bent er á að reynslan hafi þegar sýnt að mistök eða óhöpp í tengsl- um við notkun Netsins hafi ekki einungis alvarleg áhrif á veltu fyr- irtækja sem fyrir þeim verða. Vegna þessa skoðar VÍS nú mögu- leika á því að bjóða upp á þjónustu sérfræðinga til viðbótar þeirri vátryggingarvernd sem í Netvernd felst, svo sem lögfræðinga, hug- búnaðarráðgjafa og sérfræðinga á sviði almannatengsla. Hlutverk þessara sérfræðinga yrði að að- stoða fyrirtæki við úrlausn net- tengdra vandamála sem upp kunna að koma. Blómaskreytingafólkið okkar verður með sýnikennslu og kynningu fyrir almenning laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. október frá kl. 13-16. Þar sýna þau nýjustu stefnur í blómaskreytingum, sem þau kynntust á námskeiði hjá heimsmeistaranum KLAUS WAGENER.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.