Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 27
Gert út á hinn breiða
hóp kjósenda
Reuters
William Hague (t.v.), leiðtogi breska íhaldsflokksins, býður forvera sinn
í embætti, John Major, velkominn á flokksþingið í Bournemouth.
Leiðtogar í kosninga-
ham komu fram á
flokksþingum Verka-
lýðsflokksins og íhalds-
flokksins og báðir leita
þeir eftir hylli hins
breiða hóps kjósenda,
segir Sigrún Davfðs-
dóttir.
„VIÐ hlustum" var inntakið í ræðu
Williams Hagues, leiðtoga breska
Ihaldsflokksins, er hann hélt aðal-
ræðu sína á flokksþinginu í gær og
freistaði þess að sannfæra áheyrend-
ur um að flokkurinn væri „tilbúinn til
að stjórna - fyrir alla“. I síðustu viku
var það Tony Blair forsætisráð-
herra, sem stóð í ræðustól á flokks-
þingi Verkalýðsflokksins og talaði
svo svitinn spratt fram sem dökkblá-
ir blettir á ljósbláu skyrtunni undir
frjálslega fráhneppta jakkanum.
William Hague hafði hneppt að sér
og skólabræður hans segja að hann
svitni ekki, en hvort tilþrif hans í
ræðustólnum duga til að sannfæra
kjósendur um að flokkurinn sé til-
búinn „til að stjórna fyrir alla þjóð-
ina og allt landið" á enn eftir að koma
í ljós.
Andstætt því sem virtist augljóst
allt frá kosningunum 1997 og þar til
fyrir nokkrum vikum getur breska
stjórnin ekki gengið út frá því sem
vísu að hún nái aftur meirihluta.
Fylgið hefur hrunið af henni undan-
farnar vikur, en hið neyðarlega fyrir
Ihaldsflokkinn er að þótt vinsældir
hans hafi aukist nær flokkurinn ekki
þeirri uppsveiflu, sem hrunið gæti
gefið efni til.
Fyrir Hague er það enn verra að
ýmsir álíta hann sjálfan helstu
hindrunina í vegi fyrir auknu fylgi
flokksins. Aðrir benda á að öðrum sé
ekki til að dreifa, hann sé besti fáan-
legi leiðtoginn, en það voru þó allir
sammála um að Michael Portillo
hefði komið fram á þinginu eins og sá
sem vill láta líta á sig sem mögulegan
tilvonandi flokksformann.
Hremmingar Blairs
Þegar allt virtist ganga svo vel fór
skyndilega allt að ganga svo illa. Og
stjórnin virtist vera síðust allra að
átta sig á því. Það var eins og hún
skildi ekki almenna óánægju með
álögur á bensín fyrr en um tvö þús-
und atorkusamir bændur og bifreið-
arstjórar höfðu lamað landið fyrir
nokkrum vikum. Þar við bættist
óánægja með ellilífeyrinn.
Það var í skugga þessara mót-
mæla að Verkamannaflokkurinn hélt
flokksþing sitt í vikunni sem leið.
Um leið komu skoðanakannanir, sem
skyndilega sýndu að Verkamanna-
flokkurinn hefði misst meirihluta-
fylgi sitt til Ihaldsflokksins. Blair
brást ekki við með því að lofa að
lækka álögur, heldur reyndu bæði
hann og Gordon Brown fjármála-
ráðherra að koma fólki í skilning um
að lækkaðar bensínálögur væru
gegn umhverfinu og að ellilífeyri
yrði að skoða í víðara samhengi.
En skaðinn var skeður, óánægjan
vakin og það sem einkum svekkti
fólk var hvað stjórnin virtist hafa
verið sein að átta sig á því hvað helst
lægi fólki á hjarta. Imyndin, sem fólk
fékk af flokksforystunni, var að hún
væri ístöðulaus, hefði enga skýra
stefnu og hlustaði ekki á aðra en
sjálfa sig. Blair þótti takast vel upp í
ræðu sinni og virtist hafa náð til
flokksmanna, en uppi eru efasemdir
um að hann hafi endurheimt fyrra
traust kjósenda.
Ræða hans snerist einkum um
hvað stjórnin hefði gert og hvað
hefði tekist vel. í lokin kom hann
þingheimi á óvart með því að benda á
með tilfinningaþrungnum orðum
hvað ekki þýddi að biðja hann um.
Það þýddi ekki að biðja hann um nið-
urskurð, sem bitnaði á þeim sem síst
mættu við því.
73 tilvitnanir í „fólkið“
Þótt sumir stjórnmálaskýrendur
segðu að lokinni ræðu Hagues í gær
að hún hefði fyrst og fremst verið
löng var þar þó ýmislegt athyglisvert
að finna. Hvort Hague verður ein-
hvem tímann maður fólksins er
óvíst, en „fólkið" er greinilega hópur
Hagues. Hann vitnaði 73 sinnum í
„fólkið". Hann ætlaði að stjórna fyrir
það og á það hlustaði hann.
Að mati Hagues er Ihaldsflokkur-
inn jarðtengdur, meðan Verkalýðs-
flokknum, sem hann fullur fyrirlitn-
ingar kallar stöðugt „Nýja verka-
lýðsflokkinn" þótt Blair noti það
hugtak ekki lengur, er stjómað af fá-
mennri klíku. Og Hague horfði að
sjálfsögðu fram á við, ekki til baka,
með sviðsmynd í bakgranni, sem
gárangamir líktu við geimskip.
Hörð andspyma gegn glæpum,
skattalækkanir og sjálfstæði þjóðar-
innar vora efni, sem birtust í ræðu
Hagues í mörgum myndum. Hið síð-
astnefnda var meðal annars reifað
með tilvitnun í höfnun Dana á aðild
að Efnahags- og myntsambandi
Evrópu, en sá atburður var oft
nefndur á þinginu.
Af beinum tillögum um aðgerðir
var annars fátt að heyra utan hvað
Hague lofaði að lækka dísil- og bens-
ínverð um þrjú pens, um 35 íslenskar
krónur, og koma á skattafrádrætti
fyrir hjón. Að öðra leyti forðaðist
hann að fara of nákvæmlega í fyrir-
ætlanir flokksins, utan að það yrði
tekið tillit til vilja fólksins.
Breiði vegurinn eða mjói -
Bretland innan eða utan
Evrópu
Stjórnmálaskýrendur hafa bent á
að umræðan á flokksþingi Ihalds-
flokksins hafi borið merki togstreitu
milli þess að vera breiður flokkur er
nær til allra eða mjór flokkur er
höfðar aðeins til fárra. Ann Widde-
combe, formælandi flokksins í innan-
ríkismálum, hélt stranga ræðu um
hörku í glæpamálum. Ráðið væri að
sýna enga miskunn, heldur sekta til
dæmis fólk um 100 pund, tólf þúsund
íslenskar krónur, fyrir að vera með
svo mikið sem ögn af kannabis á sér.
Hugmyndin fékk góðar undirtekt-
ir þingheims, en utan salarins
streymdu mótmælin fram. Samtök
lögregluþjóna höfnuðu hugmynd-
inni, því þetta kollvarpaði eðlilegum
áherslum á hvað væri mikilvægt og
hvað ekki. Og mörgu ungu fólki
fannst að þessu væri sérstaklega
beint gegn sér. Að nokkram klukku-
stundum liðnum þurfti Widdecombe
að draga i land og Hague að undir-
strika samhygð flokksins.
Það kvað við annan tón í ræðu
Michaels Portillos. Þar mátti heyra
rödd samkenndar, skilnings og um-
burðarlyndis, jafnt í garð allra kyn-
þátta og í garð samkynhneigðra.
Hinn frjálslyndi tónn var að mati
margra líklegri til að höfða til hins
breiða hóps kjósenda. Afstaðan til
samkynhneigðra er enn viðkvæmt
mál í flokknum, sem enn styður opin-
berlega harðlínu á því sviði. Widde-
combe sagði til dæmis að hún gæti
ekki fellt sig við annað en að fjöl-
skyldan væri homsteinn þjóðfélags-
ins.
Við blaðamenn hrósaði Hague
ræðu Portillos, en vitað er að Hague
treystir Portillo aðeins í hófi, enda
má öllum vera ljóst að Portillo vildi
gjaman komast í sæti Hagues. Port-
illo hefur sagst standa þétt við bak
leiðtogans, en það verður vísast ekki
ef Portillo sér sér einhvern leik á
borði. Ymsum þótti líka ræða Port-
illos, sem er formælandi flokksins í
efnahagsmálum, vera of leiðtogaleg.
Nær hefði verið að hann héldi sig við
efnahagsmálin og ekkert annað.
En auk áðurnefndra mála er það
þó afstaðan til Evrópusamstarfsins,
sem er langviðkvæmasta málið í
Ihaldsflokknum. Hague talar óspart
niðrandi um Evrópusambandið og sú
einstrengingslega afstaða hefur fælt
marga frá og dregið úr þeim blæ víð-
feðmi, sem flokkurinn leitast við að
fá á sig. En Tony Blair er heldur ekki
mikið átrúnaðargoð Evrópusinna,
því þótt hann geti tekið skorinort til
orða hefur hann lítið gert til að efla
trú landa sinna á að eitthvað gott
geti komið frá Brussel.
Michael Heseltine, fyrrverandi
ráðherra og einn leiðtoga Ihalds-
flokksins, sagði í vikunni að hörð af-
staða Hagues gegn evranni væri
gegn breskum hagsmunum. Undir
þessari stefnu væri flokkurinn jafn-
illa kominn og Verkalýðsflokkurinn
var á níunda áratugnum undir stjórn
„galinna vinstrimanna".
Flokksþingin nú gætu vel verið
síðustu þingin áður en kosningabar-
áttan hefst, en almennt er búist við
kosningum næsta vor. Tónninn sem
gefinn var á þingunum á því eftir að
enduróma næstu mánuðina, en í báð-
um flokkum er enn óljóst hver
granntónninn verður.
saltkjöt
f^mm
mmmam
kg
.
D1A froslð
lambaBæri
lambahryggur
D1A froslnn
lambasnltsel
m/osiafylllnnu
kg
svfnagðllas
ps^goodfeiias pizza
1745 0
|445g
Aviko Oven Superstring
f ranskar m, 179?
vaníllu
súkkulaðl
banana
hlndberia
nuukis
örbylgjuDopp
Dk
2000
Opið alla daga til kl. 23=
ligifiáisiiijn