Morgunblaðið - 06.10.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 63
við enn ekki svör við stóru spurn-
ingum lífsins. „What’sthis life for?“
syngur hljómsveitin Creed og í
þögninni og einmanaleikanum sem
heltekur mann eitt langt augablik
þegar maður á minnst von á því,
hlýtur hver maður að spyrja sig
þessarar spurningar. Erum við
bara tilviljun sem lifum, deyjum og
síðan ekki söguna meir? Urðum við
-og alheimurinn með öllum sínum
náttúrulögmálum, fegurð og ná-
kvæmni -til fyrir tilviljun eða er til
einhver æðri tilgangur...tilgangur
sem gefur okkur lífsfyllingu á með-
an við erum á jörðinni og heldur
áfram eftir dvöl okkar hér?
Þessar spurningar virðast vera
innbyggðar í manninn og því er
hvorki barnalegt né óraunhæft að
ætla að Guð sé til. Sé hann til og
hafi hann ætlað okkur þennan æðri
tilgang, hlýtur hann að hafa útbúið
leið sem við getum nálgast hann í
gegnum. Hann gerði gott betur en
svo. Hann fæddist inn í heiminn í
líkama Jesú frá Nasaret og gerðist
leiðin sem við getum farið. Þessi
leið er öllum opin.
Kristur er persóna. Hann er ekki
kristindómurinn eins og við þekkj-
um hann í dag. Hann kom ekki til
þess að mynda einhverjar hefðir.
Hann kom fyrst og fremst til að
gefa líf... líf sem er hreint, heilagt,
fullt af gleði og kærleika - eilíft líf.
Það er bara til eitt líf sem er eilíft:
líf Guðs. Þess vegna auglýsti Krist-
ur sjálfan sig. Hann sagðist mundu
deyja og rísa aftur upp til þess að
þeir sem trúa á hann geti eignast
hlutdeild í lífl hans. Þeir sem eign-
ast hlutdeild í honum eignast líka
hlutdeild í Föðurnum því að þeir
eru eitt. Þetta eru góðu fréttirnar.
Þetta eru sérstaklega góðar fréttir
vegna þess að þær eiga við enn í
dag.
Þó að kristindómurinn sé að
missa allt aðdráttarafl á nútíma ís-
lendinginn er Kristur samt enn þá
raunhæfur möguleiki fyrir þig og
mig. Stóra spurningin er: Virkar
hann? Það er eitthvað sem hver
verður að svara fyrir sig. Og eina
leiðin til þess að komast að því er
að taka skref út í óvissuna og kjósa
að trúa.
Kristur sjálfur líkir því við mann
sem fann mikinn fjársjóð á akri.
Hann fór, seldi aleigu sína og
keypti akurinn (Matt. 13:44). Þetta
margborgaði sig en áður en hann
eignaðist allt þurfti hann að gefa
allt. Eins þurfum við að treysta
Kristi fyrir öllu lífi okkar áður en
við eignumst allt hans.
Sá sem þorir að hleypa Kristi að
og leyfa honum að verða það mikil-
vægasta í lífi sínu mun uppgötva að
hann er uppspretta lífs og tilgangs.
Þó að kristindómurinn hafi í gegn-
um sögunnar rás haft bæði jákvæð
og neikvæð áhrif hefur þessi upp-
spretta ávallt reynst fersk og við-
eigandi þeim sem gefist hafa Kristi
á vald. Góðu fréttirnar um Jesú
Krist eru ekki gamlar fréttir
-heldur stöðugt nýjar og ferskar
fréttir - því að enn í dag fær fólk
að reyna kraft hins upprisna. Leit-
aðu því og þú munt finna.
BIRKIR MÁR KRISTINSSON,
kennir íþróttir
við Dalvíkurskóla.
Hönnu KrUlíndr
afsláttur í október
af barnamyndatökum
Reykjavíkurvegur 5, símar 555 0455 og 699 7944
Fallegar
haustvörur
Hverfisgötu 78,
sími 552 8980
Opið iaugardag
frá kl. 10.00-16.00.
Nú verður rifist um
bókastaflana
Já, allt á 50 kr. stk.
Við erum að rýma til fyrir nýjum vörum og ath.
— þetta tilboð er aðeins frá kl. 11.00—17.00
7. og 8. október.
Ath.: Síðustu dagar.
FRÁBÆRT VERÐ.
Langholtsvegi 42, sími 588 2608.
Á að skrá íslenska karlmenn
sem dætur afa sinna?
Frá Krisínu Ingveldi Bragadóttur:
ÉG ER íslenskur ríkisborgari og
jafnframt námsmaður í Danmörku.
Ég hef á námsárum mínum hér í
Danmörku fætt tvo drengi.
En þeir merku atburðir í lífi
mínu hafa fengið mig til að leiða
hugann að íslenskri karlmennsku
og milliríkjasamningi íslendinga
og Dana. Þannig er nefnilega mál
með vexti að þegar íslenskar konur
fæða börn í Danmörku þá fá börn
þeirra eftirnöfn mæðra sinna eins
og dönsk lög gera ráð fyrir. Ekki
nóg með það. Þrátt fyrir íslenskt
ríkisfang neita íslendingar að skrá
börnin eins og íslensk lög gera ráð
fyrir, þ.e. að eftirnafn þeirra teng-
ist fornafni föður þeirra eða móð-
ur, og einmitt það finnst mér
furðulegt og afar einkennilegt mál.
Við Islendingar státum okkur oft
af sérkennum okkar, við segjumst
leggja mikla rækt við íslenska
tungu og menningu. Tungumálið á
að vera afar ómengað, laust við er-
lend áhrif og hvert mannsbarn á að
geta lesið fornsögurnar eins og
þær voru skráðar því við erum svo
dugleg við að varðveita tungu okk-
ar og séríslenska menningu. En
hvernig stendur þá á því að Islend-
ingar hafa gert milliríkjasamning
við Dani sem neyðir íslenskar kon-
ur til þess að skrá íslenska drengi
sem dætur afa sinna? Eru einhver
fordæmi fyrir því að íslenskur
karlmaður hafi eftirnafnið dóttir
eða er bara allt svona gott sem
kemur frá Dönum að við tökum
óritskoðað við því og gleymum allri
málrækt og þjóðernishyggju eða
finnst okkur ekkert athugavert við
að drengir séu dætur afa sinna?
Hvað verður þá um íslenska karl-
mennsku sem mér skilst að margir
hafi áhyggjur af, því hún á víst
undir högg að sækja í samfélaginu,
og margir vilja meina að hún fari
hverfandi. Varla eru það lóð á
vogaskálar karlmennskunnar að á
Hagstofu íslands séu íslenskir
karlmenn dætur bara vegna þess
að mæður þeirra voru staddar í
Danaveldi þegar þeir fæddust í
þennan heim.
KRISTÍN INGVELDUR
BRAGADÓTTIR,
kennari og sálfræðinemi
Kagsákollegiet 175,
2730 Herlev, Danmörk.
Heimsendir gíróseðlar -
greiðslukortafjjónusta
S: 535 1823/535 1825
Happdrætti
HJARTAVERNOAR
WELEDA BOSSAKREMIÐ
- þú færð ekkert betra -
Þumalína, heilsubúðir, apótekin
Jóga gegn streitu
Ný námskeið hefjast eftir helgi
Námskeið í Heilsuskóla Planet PuLse,
SkiphoLti 50a
Morgunnámskeið hefst 9. okt. og er á mánudags- og
miðvikudagsmorgnum kl. 10.00 og stendur í fjórar vik-
ur.
Kvöldnámskeið byijar 10. okt. og er á þriðju- og
fimmtudögum kl. 17.20 og stendur í fjórar vikur.
Nokkur pláss laus á byrjendanámskeið 9. okt.
Leiðbeinandi: Guðjón Bergmann.
Skráning í síma 588 1700.
/>/awéri‘ iPw:/A’Ér
ICELAND
HAUSTSKIPIN ERU KOMIN
Af því tilefni bjóðum við 15 % afslátt
af öllum vörum í dag og á morgun.
& VELKOMIN UM BORÐ
0
RED//GREEN
( mi.i'u;,-i dinTsiafni )
Laugavegur I • Sími 561 7760