Morgunblaðið - 06.10.2000, Side 68
68 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
MORGUNB LAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
oróið þð endurspegla
Pottþétt-safnplöturnar
beturen margt annað
hvaða tónlist er vinsæl-
ust hverju sínnt. Ef litið
er yfir lagalistann á
þeirri nýjustu, þeirri
tuttugustu og fyrstu í
Gullmolar!
GULLNAR glæð-
ur, eldri safn-
platan meö ein-
um ástsælasta
dægur-
lagasöngvara
semhéráfandt
hefur alið
manninn er
búin að vera
ófáanleg um ail-
langa hríð. Nú
hefur verið bætt úr því og það heldur betur
með útgáfu á nýrri og endurbættri safnplötu
með Hauki Morthens sem ber nafn eins af
hans frægustu slögurum „Ó, borg m(n borg".
Safnpiatan nýja ertvöföld og fyrir utan það aó
innihalda hans kunnustu perlur eins og sjálft
titillagið, „Til eru fræ“, „Hæ, Mambó“ og
„Frostrósir" þá hefur hún einnig að geyma áð-
ur óútgefna gullmoia á geisladisk sem flestir
eru úrfórum ekkju Hauks, Ragnheiöar
Magnúsdóttur.
Dansinn dunar!
riMO---- I „ „ -i' ^
ruoinnt, pa Kumur t—"
glögglega í Ijós að hvers konar danstónlist
og sálarskotið R'n'B er það sem blífur. Af ein-
um fjörutíu smellum sem safngripurinn hefur
að geyma þá má draga allt upp undir þrjátíu
þeirra í ofannefnda tónlistardilka. Spurning
hvort þetta séu teikn um það sem koma skal
' - aö danstónlistin sé endanlega búin að taka
völdin á vinsældalistum - eða bara enn ein
bólan sem blæs út uns hún verður sprengd í
loft upp með skerandi gítarómnum.
Nr. | var ivikuri ' i Diskur i Flytjandi i Ótgefandi i Nr.
<1. i 1 i 2 i i Pottþétt 21 : Ýmsir ; Pottþétt : 1.
2.: : i : N : Sailing To Philadelphio :Mark Knopfler : Universal 1 2.*-
3. : 2 i 3 i : Selmasongs (Doncer In The Dork)! Bförk : Smekkleyso: 3.
4. ; 14 : 2 : : Music iMadonno : Warner Music: 4.
5. : 4 : 19 : : Marshall Mathers LP ■ Eminem * Universal • 5.
6. ; 3 i 25 ; i Pioy iMoby ; Mute i 6.
7. ; 10 i 8 i ; Parachutes ; Coldplay ÍEMI ; 7.
8. i 11 i 5 i j Born To Do It i Croig David Í Edel : 8.
9. i 12 ; 8 i I Tourist i St Germoin ÍEMI i 9.
10.: 6 : 69 ; Ö: Ágætis byrjun : Sigurrós : Smekkleysal 10.
11.: 9 ; 4 ; : íslenski draumurinn : Úr kvikmynd : Kvikm.fél. Ísl.í 11.
12.i 131 18 i : Ultimate Collection j Barry White ■ Universal ■ 12.
13.: 5 :20: i Oops 1 Did It Agoin i Britney Spears ■ EMI ; 13.
14.; 22! 11 i ! Riding With i E.CIapton + B.B.King i Warner i 14.
i5.; 31 i ii; : Fuglinn er floginn * Utangorðsmenn i íslenskir tónar ■ 15.
16.; 20 ; 6 ; i Cun’t Toke Me Home ;Pink ÍBMG ; 16.
17.i 27 i 37 i i Best Of 1 Cesario Evora ÍBMG :17.
18.! 69 i 4 i : Marc Anthony :Marc Anthony :Sony : 18.
19.: 8: 13: : Svona er sumnrið 2000 : Ýmsir : SPOR 119.
20.: 2i: 59 : : Significont Other ■ Limp Bizkit ! Universal ! 20.
21.:i9'.12l : Lifuð og leikið i KK og Mognús Einksson * íslenskir tónor i 21.
22.: 79: 6 : H; Nútíminn i Þursaflokkurinn i íslenskir tónar i 22.
-•23.: : 1 : i Ó borg mín borg ; Haukur Morthens íslenskir tónori 23.
24.i 63 i 17 i i Greatest Hits iWhitney Houston ÍBMG i 24.
25.; 78 i 1 ; i The Mirror Consirocy : Thievery Corporatioi 11 Í4AD : 25.
26.: : 1 : : Bowie At The Beeb (Ltd) : Dovid Bowie ÍEMI :26..
27.: 17 i 19: : Mission Impossible 2 ! Ýmsir : Holywood Rec.! 27.
28.: 7 :40 i iSogno ■Andrea Bocelli ! Universal ! 28.
29.: 18:27 : : Sögur 1980-1990 i Bubbi i íslenskir tónorj 29.
30.: 33: 1 : I Fólkið í blokkinni i Ólofur Haukur & félagar; Skífan : 30.
A lónfettmum eru plötur yngri en tveggja óro og eru í verðflokknum „fuilt verö".
Tónlistinn er unninn of PricewoterhouseCoopers fyrir Sombond hljómplötuframleiðando og Morgunbloðiö i somvinnu
viö eftirtoldor verstonir: Bókvol Akureyri, Bónus, Hogkoup, Jopís Brautorbolti, Jopís Kringlunni, Jopís Lougavegi, Músík
og Myndir Austurstræti, Músík og Myndir Mjódd, Somtónlist Kringlunni, Sb'fon Kringlunni, Skrfon Lougovegi 26.
Kamelljónið!
SÚ GREIN hefur vart verið
rituö um Bowie þar sem
honum hefurekki verið
líkt við þá skrítnu skepnu
sem kamelljóniö er. Þeir
sem til kameiljóns
rokksins þekkja vita
mæta vei aö það öðlað-
ist síöur en svo frægð á einni nóttu
heldur þurfti að vinna fýrir henni hörðum
höndum. Á fyrstu árum sínum var Bowie
einkar iöinn við að koma fram og nýttu þeir
hjá BBC vinnusemi hans óspart. Nú hefur
loksins veriö dustað rykið af þeim fjöl-
mörgu upptökum meö Bowie sem BBC hef-
ur iegiö á eins og ormur á gulli í eina þrjá
áratugi. Þar meö erekki öll sagan sögö því
fyrst um sinn fylgirgömlu BBC hljóóupptök-
unum spáný upptaka BBC frá því í sumar.
Lukku-Láka-
söngvar!
SVO komst Ólafur Teitur imk
Guönason aö orði í dómi
sínurn um Sailing To
Philadelph\a er hann
reyndi aö lýsa tónlist -g*
þessa gamalreynda gít-
argoös og fyrrverandi for-
sprakka Dire Straits. Há- A
stökk Marks Knopflers inn ■
á Tónlistann kann kartnski
aö koma einhverjum á óvart en viö nánari
hugsun er þaö ekkert svo skrítið. Dire
Straits eignaðist marga dygga unnendur
hér á landi þegar sú mæta sveit var upp
á sitt besta og þeir unnendur virðast ein-
faldlega halda tryggð við sinn mann þrátt
fyrir að frægöarsól hans skíni ef til vill
ekkí eins skært og áóur. Þess má geta
aö Knopfler gerir betur á Fróni en í heima-
landinu þar sem plata hans fór einungis t
fjóröa sæti - skyldi karlinn vita af þessu?
ERLENDAR
ooooo
, ★★★☆☆
Páll Oskar poppari fjallar um
nýjustu plötu Kylie Minogue,
Light Years
Kylie kemur
á óvart
VÁ! Svakalega er hún Kylie
Minogue flott núna, maðui-!
Hún hefur kannski aldrei
verið ein af mínum uppáhaldsgyðjum
í gegnum tíðina en NUNA er ég sko
búinn að taka hana í sátt. Hún hefur
•aíltaf fallið í skuggann af Madonnu
(og stundum gengið frekar langt í að
stæla hana) - og kannski hefur það
orðið henni til trafala. Hún hefur t.d.
aldrei náð því að verða raunveruleg
stjarna utan Ástralíu, Bretlands og
Japan - og hér á Fróni hafa nokkur
lög með henni farið inn um annað og
út um hitt síðasta áratuginn.
Jú jú, auðvitað muna allir eftir „I
Should Be So Lucky“, „The Locomot-
ion“, „Better The Devil You Kncrw“,
„Tears On My Pillow“, „Give Me Just
A Little More Time“ og svo í seinni
tíð „Confide In Me“ og „Where The
Wild Roses Grow“... heyrðu!! Þessi
listi er nú orðinn miklu lengri en ég
hélt að hann yrði í upphafi. Hmm..
sýnir kannski hvað ferill konunnar
hefur verið lúmskur eftir allt saman.
Þetta eru flott popplög sem maður
man eftir þegar maður er minntur á
þau þótt maður hafi ekki tekið neinu
ástfóstri við þau á sínum tíma.
En þessi nýja plata með Kylie,
Light Years, er algerlega búin að slá í
gegn á mínu heimili. Hún Kylie átti í
einhveijum erfiðleikum hjá plötufyr-
irtækinu sem hún var hjá síðast,
Deconstruetion-plöturnar voru hætt-
ar að seljast og „listrænn ágreining-
ur“ varð til þess að þeir riftu plötu-
samningnum við hana. Það er oftast
nær mjög niðurlægjandi fyrir popp-
arann að lenda í svoleiðis því nær
ekkert plötufyrirtæki vill taka við
poppara sem rekinn hefur verið fi-á
öðru fyrirtæki.
En Kylie hefur margt með sér (fyr-
ir utan auðséð hörkugóðan umboðs-
mann). Hún hefur útlitið (aldrei litið
betur út), „star-quality“ sem heldur
henni á forsíðum bresku slúðurblað-
anna og hún nýtur fylgis aðdáenda
sinna sem hafa tekið við hana ást-
fóstri síðan hún lék Charlene í sápu-
óperunni Nágrönnum. Það er
skemmst frá því að segja, að stór hluti
aðdáenda hennar eru samkynhneigð-
ir karlmenn - og þeir hafa fylgt henni
í gegnum þykkt og þunnt öll þessi ár.
En það eru lagahöfundar eins og
Guy Chambers, Johnny Douglas,
Steve Anderson, Richard Stannard
og sjálfur Robbie Williams sem elska
hana líka og eru búnir að hjálpa henni
að raða saman þessari líka finu
poppplötu sem um er rætt. Helsti
kostur plötunnar er að hún er ekki að
sýnast vera eitthvað annað en hún er.
Hér er froðan blásin af bjórnum og
hafin upp til skýjanna - allt sem heitir
glamúr, gleði og glaumur er tilbeðið í
nafni gyðjunnar sjálfrar. Textarnir
eru hvorki að reyna að breyta lífi
hlustandans né endurskrifa poppsög-
una. Hér er bara slappað af, lagst út
af í flauelssófanum í nýjustu tískuföt-
unum með vínberjaklasa og drukkið
kampavín með.
Það eru ýmsar tilvísanir í þekkt
diskóstef í tónlistinni sjálfri og það
má heyra sterk áhrif frá „I Feel
Love“, „Am’t No Stoppin’ Us Now“
og jafnvel poppi í anda níunda ára-
tugarins eins og „Fade To Gray“.
Þess ber að geta að tilvísun er ekki
það sama og stuldur. Þetta gengur
fínt upp hérna og er tilgangurinn að
skapa ákveðið andrúmsloft. Platan
sjálf fagnai- því að diskóið sé ekki
dautt eins og heyra má berlega í lög-
unum „Disco Down“ og hinu stór-
skemmtilega „Your Disco Needs
You“. Það er engu líkara en Village
People séu mættir með Kylie í stúdíó-
ið - í búningunum! Ókei, þetta, er sem
sagt popptónlist fyrir STÁLPAÐ
FOLK - ekkert barnapopp í anda
Britney Spears eða Backstreet Boys.
Fullorðið fólk má nú líka leika sér!
Þeir sem hlusta á síbyljuútvarp hafa
nú þegar heyrt lögin „Spinning Ar-
ound“ og „On A Night Like This“ (Ég
er búinn að vera með fyrmefnda lagið
á heilanum undanfarið). En þar lætui'
platan ekki við sitja. Öll lögin era
sterkir kandídatar í smáskífur - eng-
in uppfyllingarlög hér - og ég gruna
að „So Now Goodbye“, „Disco
Down“, „Please Stay“, „Butterfly" og
„Under The Influenee Öf Love“ gætu
gert góða hluti á playÚstunum. Öll
lögin á plötunni eru með klæðskera-
sniðnum viðlögum og eru nær öll 3.30
að lengd. Smá diskó, léttpopp, smá
salsa, jafnvel smá easy-listening.
Lagið sem kemur mér mest á óvart
er „Bittersweet Goodbye", vegna
þess að hún Kylie syngur þessa gull-
fallegu ballöðu svo svakaiega vel. Ég
hef aldrei heyrt hana syngja svona!
Hún er með frekar mjóa rödd, sér-
staklega á efstu tónunum - en þetta
er flott léttpopprödd. Það er líka auð-
heyrt að hún er fullkomlega sátt við
hlutskipti sitt sem léttpoppdrottning
og þessi plata undirstrikar það í eitt
skipti fyrir öll. Til hamingju, Kylie.
Ætli Madonna hafi séð þetta fyrir?
Nœturqalinn sínti 587 6080
Dúndurdansleikur í kvöld með hinum
frábæru Léttu sprettum
" Frítt inn til kl. 23.30
HARMONIKUBALL
verður í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima,
iaugardagskvöldið 7. október kl. 22.
Ailir velkomnir