Morgunblaðið - 22.10.2000, Síða 36

Morgunblaðið - 22.10.2000, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÚLFAR HARALDSSON, Álfaskeíði 92, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum Fossvogi sunnu- daginn 15. október, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 25. október kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfé- lagsins. Ragnheiður Kristinsdóttir, Ásta Úlfarsdóttir, Kristinn Þ. Sigurðsson, Þórunn Úlfarsdóttir, Haraldur Þór Ólason, Ásgeir Úlfarsson, ína Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför ástkærrar móður okkar, ÁSTU KRISTINSDÓTTUR WATHEN, Ránargötu 21, Reykjavík sem lést á krabbameinsdeild Guy's sjúkra- hússins í London, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 27. október kl. 13.30. Sunna Ronaldsdóttir Wathen, Sean Ronaldsson Wathen. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, SESSELJA DAVÍÐSDÓTTIR, Álfalandi 5, sem lést mánudaginn 16. október, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 23. október kl. 10.30. Inga Karlsdóttir, Gunnar Jónasson, Jónas Þór Gunnarsson, Sesselja Dagbjört Gunnarsdóttir. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR EINARSSONAR, Greniteig 9, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilþrigðisstofnunar Suðumesja. Sigrún Guðjónsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Steinunn Njálsdóttir, Bjarni Ásgrímur Sigurðsson, Hansborg Þorkelsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Árný Þorsteinsdóttir, Sveinbjörg Sigurðardóttir, Guðsveinn Ólafur Gestsson og barnabörn. Sambýlismaðurinn minn, bróðir okkar, mágur og vinur, ÁSGEIR PÁLL ÚLFARSSON frá Seyðisfirði, Amtmannsstíg 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 23. október kl. 15.00. Ellen H. Sighvatsson, Ágústa Guðrún Sigfúsdóttir, Valdís Vífilsdóttir, Brynja X. Vífilsdóttir, Guðrún Eva Úlfarsdóttir, Karl Úlfarsson, Ágústa Edwald, Jón O. Edwald, Steindór Úlfarsson, Sigríður Jónsdóttir, Margrét Úlfarsdóttir, Guðbjartur I. Gunnarsson, Emelía Dóra Petersen, Vagner Petersen. + Sesselja Davíðs- dóttir fæddist á Svarfhóli í Hraun- hreppi 22. ágúst 1928. Hún lést á gjör- gæsludeUd Land- spítalans við Hring- braut 16. október síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru þau Davíð Sigurðsson bóndi, f. 6. maí 1899, d. 22. júní 1998, og kona hans Inga Ei- ríksdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1904, d. 6. janúar 1996. Systkini Sesselju: Erla H. Valdimarsdóttir, f. 12. apríl 1923, Eiríkur Kúld Dav- íðsson, f. 14. október 1930, og upp- Elsku Sella mín, hún var erfið stundin með þér á Landspítalanum mánudaginn 16. október þegar þú kvaddir þennan heim eftir stutta legu en erfiða. Sorgin sem heltók okkur, fjölskyldu þína, var mikil og sennilega eigingjörn. Við vorum öll að vona að þér tækist enn á ný að sigra æðri máttarvöld eins og þér hafði svo oft tekist áður en nú var varaorkan búin. Eigingjörn segi ég vegna þess að þú varst okkur svo mikil stoð og stytta í öllu okkar lífi. Þú varst ekki aðeins tengdamóðir mín heldur einnig mikill og góður vinur í blíðu og stríðu. Þú studdir okkur til góðra verka og leiddir okkur á þinn hátt til að hugsa hátt og finna leiðina að betri tilveru. Þú vildir að börnin okkar Ingu menntuðust og vissir að þar væri framtíðin. Þú gladdist mjög yfir dugnaði Ingu í námi og að hennar hugur stefnir hærra í þá veru. Þú hafðir óbilandi trú á stöðu fjölskyldunnar því þú hafðir sjálf komið úr geysisterkum for- eldragarði þeirra Ingu og Davíðs og veit ég með vissu að þú og mamma þín voruð með betri vin- konum sem þekkjast nú til dags og daglegt samband þitt við þau sæmdarhjón alla tíð var ykkur öll- um mikils virði. Við urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi að þú fluttir til okkar í Álfa- landið fyrir tíu árum og smátt og smátt hefur samfélag okkar verið að mótast og dafna. Ekki síst fyrir þína áeggjan og þótt þú værir sennilega mun oftar lasin en við áttuðum okkur á varst þú alltaf nærri og tilbúin að hjálpa okkur í öllum okkar veraldlegu málum. Ef ég birtist í mýfiugumynd á heimil- inu um miðbik dags var mér boðið upp á kaffi og meðlæti með miklu hraði því þú þekktir mitt háttalag, alltaf á hraðferð. Eða þegar vinir mínir í getraunaklúbbnum komu í heimsókn sást þú til þess að hlutir eins og kaffi og meðlæti væri þeg- ar á borðum þannig að það var hægt að snúa sér að getraununum óskiptum. Að vísu höfðu félagar mínir ávallt miklar áhyggjur af því hvort þú tippaðir eða ekki því ein- hvern veginn varst þú alltaf með fleiri tölur réttar á seðlinum en við, þú hlýtur að hafa fengið þessa vitneskju með óskiljanlegum hætti, því ekki sagðist þú fylgjast með stöðunni í ensku knattspyrn- unni. Ég veit að félagar mínir eiga eftir að sakna þín sárt. Kynni mín við þig Sella mín hóf- ust fljótlega eftir að ég og Inga dóttir þín fórum að draga okkur saman fyrir u.þ.b. 25 árum, en þá bjóst þú í Bogahlíðinni. Þú tókst mér strax mjög vel og má segja að okkar samband hafi strax orðið mjög gott, því fljótlega tókst mér að gera þig að góðum viðskiptavini við fyrirtæki föður míns og síðar við okkur þegar við Inga stofnuð- um okkar eigin verslun í Stórholt- inu. I þá götu fluttir þú reyndar árið 1980 til að vera í nágrenni við foreldra þína í Meðalholtinu. Sam- félagið í Holtunum var eins og lítið sjávarþorp úti á landi þar sem kunningsskapur við nágranna verslunarinnar var miðpunkturinn og þú lést þig aldrei vanta ef ein- eldisbróðir Finnbogi Jónsson, f. 8. septem- ber 1940. Dóttir Sesselju og Karls Þórðarsonar er Inga Karlsdóttir, f. 21. ágúst 1954, gift Gunnari Jónassyni, f. 23. júlí 1953. Börn þeirra eru Jónas Þór, f. 28. ágúst 1978, og Sesselja Dagbjört, f. 29. sept. 1981. Sesselja starfaði lengst af í Verslun O. EUingsen. Útför Sesselju fer fram í Bústaðakirkju mánudaginn 23. október og hefst athöfnin klukkan 10.30. hverjar uppákomur voru í verslun okkar. Eftir að Jónas Þór kom í heim- inn 1978 og síðan Sesselja Dag- björt 1981 varst þú nú aldeilis betri en enginn, bæði ef þurfti að passa þau sem lítil eða þegar þeirra afmælisdagar voru. Tala ég nú ekki um jólin sem þú gerðir að þvílíkri pakkahátíð hjá þeim, því alltaf gátu þau reitt sig á að eitt- hvað skemmtilegt og nytsamlegt kæmi úr þeim og alltaf voru pakk- arnir fleiri en einn á mann. Þér þótti skemmtilegra að þau fengju fleiri eins og þú sagðir. Þau hafa sem betur fer fengið að njóta þín betur sem ömmu en flest börn hafa fengið, ekki síst þegar við fluttum til þín í eitt ár þegar við vorum að byggja í Álfalandinu og eins eftir að þú fluttir til okkar ár- ið 1990. Nálægð þín skapaði festu og öryggi í öllu okkar lífi. Mig langar aðeins að minnast á trygglyndi þitt, bæði við þinn vinnustað til tæplega 40 ára, Verslun O. Ellingsen, og þá miklu ræktarsemi sem þú sýndir þinni vinnu. Ég man að oft eftir að þú fluttir í Álfalandið keyrði ég þig á morgnana og það var ekki að ræða það að vera ekki á réttum tíma í vinnuna, því stundvísi var þér mik- ið hjartans mál. Einnig langar mig aðeins að minnast góðs sambands milli þín og foreldra minna og þá sérstaklega við móður mína, Sig- ríði Þórarinsdóttur. Til merkis um það kannaðir þú sérstaklega hjá lækninum í sumar hvort ekki væri í lagi, aðeins tveimur dögum eftir hjartaaðgerð, að þú kæmir með okkur á ættarmótið hennar í ísa- fjarðardjúpi. Þú stóðst þig eins og hetja og ég held að þú hafir ekki viljað missa af þessari ferð sem reyndar tókst einkar vel. Ég man að þegar við snerum frá æskuslóð- um móður minnar í Þernuvik varstu búin að semja vísur um ferðalagið og það er ljóst að skáld- gáfuna hafðir þú í þér og ég veit að þú hefur samið þó nokkur ljóð í gegnum tíðina. Mig langar að senda þér kærar kveðjur frá móður minni fyrir ein- staklega góð kynni og trausta vin- áttu alla tíð, en með henni mynd- aðir þú spilaklúbb ásamt Veigu systur mömmu og Stennu vinkonu þeirra úr Djúpinu. Auk þess sem þið voruð virkar í starfi Kvenfé- lags Bústaðakirkju voruð þið sam- an í félagslífi aldraðra í kirkjunni og áttuð þar ánægjulegar stundir. í þessari litlu upprifjun á okkar kynnum langar mig einnig að minnast þess hversu hrifin þú varst af æskuslóðum þínum á Mýr- um og hvað þér fannst allt fagurt bæði í Borgarfirði og í Borgarnesi sem þú sagðir vera fallegasta byggðarlag í heimi. Ég var því mjög ánægður í huga mér þegar þú dreifst þig þótt lasin værir til að vera við aldarafmæli kirkjunnar á Ökrum í sumar og veit að þessi ferð var þér mjög mikils virði. í okkar spjalli, í gegnum tíðina, Sella mín, talaðir þú oft um hugs- anlegan flutning árið 2000 því ein- hvern veginn höfðu hlutirnir þróast þannig hjá þér í þessu ver- aldlega lífi að þú fluttir ætíð með 10 ára millibili. Nú þegar kveðju- stund er runnin upp skynjar mað- ur það að þessi flutningur er orð- inn að veruleika. Hafin er ferðin mikla til fyrirheitna landsins sem vonandi býður eingöngu upp á birtu og yl og nærveru við þá sem þér voru svo kærir, svo sem for- eldra þína elskulega, aðra vini og ættingja. Ég vil þakka þér sam- fylgdina alla frá fyrsta degi til hins síðasta. Þú komst alltaf til dyr- anna eins og þú varst klædd og hræsni var ekki til í þínum orða- bókum. Ég vil þakka þér stuðning- inn við fjölskyldu mína og þá alveg sérstaklega umhyggju þína fyrir börnum okkar og óskir þínar um gott gengi þeim og okkur til handa. Megi guð vaka yfir sálu þinni alla tíð. Minningin um elskulegan vin lif- ir. Gunnar Jónasson. Elsku amma Sella! Þau ár sem við áttum saman eru nokkuð mörg en sá tími samt svo stuttur og nú ert þú farin á betri slóðir. Þegar við komum á þá staði þar sem samvera okkar var mest, búumst við enn við að sjá þig með bros á vör. Við hugsum oft um þig og brosum því margar góðar minn- ingar eigum við jú saman. Þú varst okkur miklu meira en við gerðum okkur grein fyrir. Þú varst okkur systkinunum jafnt ráðgjafi sem góður vinur, ávallt tilbúin að hlusta á okkur og koma með góð ráð ef þurfti og einnig ætíð tilbúin að segja okkur sögur úr sveitinni eða af ættartengslum við hina og þessa. Ættfræði var í miklu uppá- haldi hjá þér og þú hafðir hæfi- leika til þess að segja þannig frá að við höfðum virkilega gaman af að fræðast um ættir okkar. Alltaf stóðstu með okkur á hverju sem gekk. Til dæmis þegar við buðum vinum okkar heim og hávaðinn var dálítið mikill varstu fyrst daginn eftir til þess að hrósa okkur öllum, við foreldra okkar, fyrir hversu prúð og stillt við hefðum verið. Þó vitum við alveg að þú hlýtur að hafa lítið sofið. Elsku amma okkar, við kveðjum þig með söknuði og hlýju. Við vilj- um þakka fyrir allar yndislegu samverustundirnar sem við áttum saman og allt sem þú kenndir okk- ur. Minningin um þig mun ætíð eiga sérstakan stað í hjarta okkar. Megi guð vaka yfir þér. Þín barnabörn, Sesselja og Jónas. Elsku Sella! Alltaf kemur andlátsfrétt mér á óvart þó ég hafi fylgst með líðan þinni undanfarna mánuði og ár. Það er sama, ég fékk sjokk þegar Inga dóttir þín hringdi í mig. Ég er ekki ennþá búin að ná því að þú sért farin. Nú ert þú komin til for- eldra þinna og ættingja sem taka þér opnum örmum. Eg á eftir að sakna þín mikið, ekki í dag heldur alla daga sem ég á eftir. Þú varst svo sérstök persóna, hafðir stórt hjarta, skapstór eins og ættin en afskaplega trygglynd og trú á hverju sem gekk. Ég á í raun og veru engin orð til að lýsa þér hvað þú varst dásamleg. Ég ætla sér- staklega að þakka þér árin í sveit- inni okkar, Miklaholti. Það var 14 ára aldursmunur á milli okkar, þú leist alltaf á mig sem litlu systur og ég á þig sem stóru systur. Elsku Sella, ég gleymi aldrei hvíta fallega kjólnum með mynd- unum á pilsinu sem þú gafst mér eða þegar þú varst að dúlla við hárið á mér og setja rúllupinna í mig, sem ég vildi helst hafa í 2-3 daga. Eða þegar þú varst að vinna í bakaríinu í Borgarnesi og komst heim um næstum hverja helgi með fangið fullt af brauðum og góðgæti handa öllum og sagðir: „Komið þið sæl, elskurnar mínar, hvernig haf- ið þið það?“ Ég kveð hér stórkostlegan per- sónuleika sem ég elskaði sem frænku, stóru systur og góðan sannan vin. Vertu sæl að sinni, elsku frænka. Helga Ósk Kúld. SESSELJA DA VÍÐSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.