Morgunblaðið - 22.10.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Málstofa um
afleiðingar
loftslags-
breytinga
LANDVERND og Umhverfis-
stofnun Háskóla íslands boða til
málstofu um afleiðingar loftslags-
breytinga og alþjóðlegar samn-
ingaviðræður. Málstofan verður
haldin á Grand hótel Reykjavík á
degi Sameinuðu þjóðanna 24. októ-
ber kl. 16-18.
A málsstofunni mun Tómas Jó-
hannesson jarðeðlisfræðingur
fjalla um hvort veðurfarsbreyting-
ar af mannavöldum séu þegar
komnar fram og hvaða áhrif þær
geti haft í framtíðinni. Halldór
Þorgeirsson, skrifstofustjóri í um-
hverfisráðuneytinu, mun gera
grein fyrir því hvaða afleiðingar
veðurfarsbreytingar geta haft á
samfélagið hér á landi og annars
staðar. Þá mun Eiður Guðnason,
sendiherra og formaður samn-
inganefndar íslands, greina frá al-
þjóðlegum samningaviðræðum um
aðgerðir til að draga úr loftslags-
breytingum af mannavöldum og
stefnu íslenskra stjórnvalda í þeim
efnum. Að lokum mun Ingibjörg
Björnsdóttir umhverfisfræðingur
hugleiða hvernig langtímahags-
munum íslands kunni að vera best
borgið í þessu erfiða viðfangsefni.
Eftir að framsöguerindi hafa
verið flutt verða almennar umræð-
ur þar sem framsögumenn sitja við
pallborð.
Aðgangur að málstofunni er
ókeypis og öllum opinn.
----------------
Ráðstefna um
vísindalegar
upplýsingar
NORRÆNA samvinnunefndin um
vísindalegar upplýsingar heldur
sína 3. ráðstefnu fyrir forstöðu-
menn bókasafna 23.-24. október á
Radison SAS Hótel Sögu, A-sal.
Yfirskrift ráðstefnunnar að
þessu sinni er: Framþróun eða aft-
urför - Rannsóknarbókasöfn á um-
brotatímum.
Fyrirlesarar koma frá Norður-
löndunum og hafa allir mikla sér-
þekkingu á þeim málefnum sem
fjallað er um. Má þar nefna Erland
Kolding Nielsen, forstjóra Kon-
unglega bókasafnsins í Kaup-
mannahöfn, sem talar um hvaða
efni skuli yfirfært á stafrænt form
og hver eigi að framkvæma það,
Terja Höiseth, yfirbókavörð
Tækniháskólans í Luleá í Svíþjóð,
sem talar um hver skuli bera
ábyrgð á varðveislu eldri árganga
rafrænna tímarita og Kristina
Hormia-Poutanen, sérfræðing við
Háskólabókasafnið í Helsinki, sem
ræðir um hvernig hægt sé að
skipuleggja samstarf bókasafna á
landsvísu.
------f-4-*-----
Fyrirlestur
um streitu og
fjölskyldulíf
FYRIRLESTUR verður í For-
eldrahúsinu, Vonarstræti 4b, bak-
húsi, mánudaginn 23. október kl.
20.30. Fjallað verður um áhrif
streitunnar á fjölskyldulífið og á
einstaklinga.
Fjallað verður m.a. um eftirfar-
andi spurningar: Er streitan hluti af
nútímafjölskyldulífi og eitthvað sem
við sköpum okkur sjálf oft af „litlu“
tilefni? Ef svo er hvemig birtist
hún, hvaðan kemur hún og hvaða
áhrif hefur streitan á fjölskylduna?
Hvað er til ráða þegar streitan er að
taka völdin? Hvernig er afslappað
fjölskyldulíf? Er það til? Fyrirlesari
er Sigríður Anna Einarsdóttir fé-
lagsráðgjafi.
Allir eru velkomnir. Aðgangseyrir
er 500 kr.
EIGNABORG ^ 5641500
FASTEIGNASALA
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
Fannafold 221 - Reykjavík
Glæsilegt einbýli, um 157 fm. í húsinu eru vandaðar innréttingar, stórar
stofur, flísalagt baðherbergi, parket á svefnherbergjum. Stór vestur sól-
pallur, suðurgarður með vönduðum sólpöllum. Hiti í stéttum fyrir framan
hús og bílskúr, sem er um 36 fm. Mikið útsýni til vesturs og norðurs. Allar
nánari uppl. og teikningar hjá Eignaborg. Einkasala._________________
SUNNUDAGUR 22. OKTOBER 2000
M
V.
Brú milli
kaupenda
og seljenda
IIFRðST
Guðmundur Bjöm Stcinþónson'
lögg. fasteignasali
Pálmi B. Almarsson
lögg. fasteignasali
Ingvar Ingason
sölumaiur
Guðrún Gunnarsdónir
ritari
Vegmúla2 | Sími 533 3344 | Fax 533-3345
tviviv .faste ign asaln.is
'•£a
FæKJASMÁJRI 3, 5 OG 7 - TIL SÝNIS í DAG^
(dag er opið hús í þessum nýju og skemmti-
legu fjölbýlishúsum. Alls er um að ræða sjö
íbúðir sem afhendast fullbúnar án gólfefna.
Hvenri íbúð fylgir stæði í bílageymslu og sér
bílskúr einni. Sex 3ja herb. íbúðir og ein 2ja
herb. Stærðir eru frá 70 fm og uppí 96 fm.
Allar nema ein eru til afhendingar I nóvem-
ber n.k. Sjón er sögu rfkari. Fulltrúar bygg-
ingaraðila og fasteignasölunnar verða á
staðnum og veita allar upplýsingar.
OPIÐ HUS I DAG FRA KL. 13-15
Til sölu í þessari glæsilegu húseign er öll jarðhæðin, bakhús, önnur hæð og hliðarbygging.
Um er að ræða 7. hæða glæsilegt skrifstofii- og verslunarhúsnæði auk hliðarbyggingar, þar sem eftirfarandi einingar
eru til sölu:
• Aðalhús samtals 1900,3 fm.
• Jarðhæð (verslunarhæð) að grunnfleti 600 fm.
• Bakhús (getur nýst sem verslunarpláss) að grunnfleti 873,3 fm.
@ 2. hæð að grunnfleti 427 fm.
;-=7 Hliðarhús: samtals ca 270 fm.
Jarðhæð að grunnfleti ca 90 fm.
• 2. og 3ja hæð, hvor um sig að grunnfleti ca 90 fm.
Framangreindir eignarhlutar eru til sölu í heilu lagi eða smærri einingum. Um er að ræða einstaklega glæsilega
eign sem hefúr öll verið tekin í gegn. Að utan hefúr m.a. verið skipt um alla glugga sem eru úr áli og timbri.
Gluggarnir eru með þreföldu verksmiðjugleri, sem gefúr mun meiri hljóðeinangrun en almennt gildir um
sambærilegar eignir. Auk þess hefúr eignin verið einangruð að utan og klædd með fallegri álklæðningu.
Einstaklega glæsilegt útsýni er úr skrifstofúhæðunum. I sameign verða tvær lyftur og eru stigagangur og sameign
sérstaklega rúmgóð. Næg bílastæði, m.a. í bílageymslu. Teikningar og allar nánari upplýsingar veittar á
skrifstofum fasteignasölunnar Stóreignar og Eignamiðlunar
mr
STOREIGN
FASTEIGNASALA
Austurstrætí 18 sími 55 - 12345
gsm Arnar, 8963601 - gsm Jón, 8966558
Sími 588 9090 * Fax 588 9095 - SíðuiiiTila 2 1
SuÖurlandsbraut 12, Reykjavík