Morgunblaðið - 24.10.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 15
FRÉTTIR
Sex flugfélög með tilboð í útboði á ríkisstyrktu sjúkra- og áætlunarflugi
íslandsflug gerði
tilboð í alit flugið
Nokkur tilboðanna í flugþjónustu
við landsbyggðina
Norðursvæði
Tilboðsflokkur B: Áætlunarflug Grunnbætur Sjúkraflug Grunnbætur Staðal- sjúkraflug
Flugfélag (slands kr. 41.253.195 46.760.000 108.000
íslandsflug 42.000.000 22.000.000 180.000
Vestfjarðasvæði, Suðursvæði og Vestmannaeyjar
Tilboðsflokkur 1: Áætlunarflug Grunnbætur Sjúkraflug Grunnbætur Staðal- sjúkraflug
Flugfélagið Jórvík kr. 2.957.132 8.140.000 124.700
íslandsflug 3.000.000 35.000.000 180.000
Vestmannaeyjasvæðið
Tilboðsflokkur C: Sjúkraflug Grunnbætur Staðal- sjúkraflug
Flugfélagið Jórvík kr. 4.140.000 124.700
Flugfélag Vestmannaeyja 11.000.000 80.000
SEX flugfélög lögðu inn tilboð í út-
boði Ríkiskaupa á rekstri sjúkra- og
áætlunarflugs á íslandi en tilboð
voru opnuð í gær. Eftir á að fai-a yfir
tilboðin sem bárust og taka afstöðu
til þeirra en flugfélögin sem um ræð-
ir eru Leiguflug ísleifs Ottesen, Is-
landsflug, Flugfélag íslands, Flug-
félag Vestmannaeyja, Mýflug og
Flugfélagið Jórvík. Hægt var að
bjóða í eitt eða fleiri svæði og bauð
íslandsflug eitt félaga í þann tilboðs-
valmöguleika sem tekur til allra
svæða.
Tilboðsvalmöguleikar voru alls
tólf og fólu í sér flug á fjórum svæð-
um; norðursvæði, suðursvæði, Vest-
fjarðasvæði og Vestmannaeyja-
svæði. Hvað varðar flug á
norðursvæði og Vestfjarðasvæði var
ávallt um bæði áætlunar- og sjúkra-
flug að ræða en engin áætlunarleið
fylgn- hins vegar Vestmannaeyja-
eða suðursvæði.
Auk valmöguleikanna tólf gafst
síðan tækifæri til að bjóða í þrjár
áætlunarleiðir sérstaklega.
Tilboðsgjafarnir sex buðu í ólíka
tilboðsvalmöguleika og beinn sam-
anburður er því ekki alltaf auðveld-
ur. Þess skal jafnframt getið að við
mat á tilboðunum eru tilboðsverð
einungis einn þeirra þátta sem
skipta máli. Þau skipta þó mestu
máli, gilda 45% af endanlegri niður-
stöðu. Aðiir þættir sem spila hér inn
í eru gæði boðinnar þjónustu (30%),
fjárhagsleg og tæknileg geta bjóð-
enda (15%) og reynsla af sambæri-
legum verkefnum (10%).
Leiguflug ísleifs Ottesen
Leiguflug Isleifs Ottesen lagði
fram tilboð í þremur af þeim tilboðs-
valmöguleikum sem í boði voru.
Flugfélagið bauð í fyrsta lagi í
sjúkraflug á suðursvæði (tilboðsval-
möguleiki A) og vill 2.190.000 kr.
grunngjald frá ríkinu fyrii- sjúkra-
flug og 119.000 kr. gjald fyrir hvert
staðalsjúkraflug.
LÍO býður einnig í Vestfjarða-
svæði en þar er bæði um áætlunar-
flug og sjúkraflug að ræða (D). Til-
boð þess hljóðar upp á 2.543.793 kr. í
grunnbætur fyrir áætlunarflug,
4.190.000 kr. í grunngjald fyrir
sjúkraflug og 119.000 kr. gjald fyrir
hvert staðalsjúkraflug.
Loks býður LÍO í áætlunar- og
sjúkraflug til suðursvæðis og Vest-
fjarðasvæðis sem saman var einn til-
boðsvalmöguleiki (H). Þar býður
fyrirtækið 2.543.793 kr. í grunnbæt-
ur fyrir áætlunarflug og 5.900.000
grunngjald fyrir sjúkraflug. Tilboð
vegna gjalds fyrir hvert staðal-
sjúkraflug hljóðar sem fyrr upp á
119.000 kr.
íslandsflug
íslandsflug lagði fram sex tilboð.
Flugfélagið býðst í fyrsta lagi til að
halda uppi áætlunarflugi á norður-
svæði einu og sér gegn 42 milljóna
greiðslu í grunnbætur (B). Fyrir-
tækið vill 22 milljóna greiðslu í
grunngjald fyrii- sjúkraflug og 180
þúsund krónur fyrir hvert staðal-
sjúkraflug.
Tilboð Islandsflugs í pakkann suð-
ursvæði, Vestfjarðasvæði og Vest-
mannaeyjasvæði (I) hljóðaði upp á 3
milljónir kr. í grunnbætur fyrir
áætlunarflug, 35 milljónir í grunn-
gjald íyrir sjúkraflug og 180 þúsund
kr. í gjald fyrir hvert staðal-
sjúkraflug.
í pakkann suðursvæði, Vest-
fjarðasvæði og norðursvæði (J) býð-
ur íslandsflug 45 milljónir króna í
grunnbætur fyrir áætlunarflug, 29
milljónir kr. í grunngjald fyrir
sjúkraflug og 180 þúsund kr. gjald
fyrir hvert staðalsjúkraflug.
Islandsflug bauð eitt flugfélaga í
þann tilboðsvalmöguleika sem tekur
til allra flugsvæðanna fjögurra (K).
Þetta tilboð hljóðar upp á 42 milljóna
króna grunnbætur fyrir áætlunar-
flug, 43 milljóna króna grunngjald
fyrir sjúkraflug og 180 þúsund króna
gjald fyrir hvert staðalsjúkraflug.
Yrði þessu tilboði tekið þýddi það
vitaskuld að öll önnur tilboð í einn
eða fleiri tilboðskosti féllu um sjálft
sig-
Ennfremur býður Islandsflug í
valmöguleika L, þ.e flug á Vest-
fjarðasvæði og norðursvæði. Tilboð-
ið hljóðar upp á 45 milljónir króna
grunnbætur fyrir áætlunarflug, 22
milljóna króna grunngjald fyrir
sjúkraflug og 180 þúsund króna
gjald fyrir hvert staðalsjúkraflug.
Loks má nefna að Islandsflug bauð
sérstaklega í áætlunarflug milli
Siglufjarðar og Akureyrar/Sauðár-
króks og hljóðar tilboðið upp á átta
milljónir króna.
Flugfélag Islands
Flugfélag íslands lagði fram fjög-
ur tilboð í útboðinu. í valmöguleika
B, þ.e. norðursvæði eitt og sér, bauð
flugfélagið 41.253.195 kr. í grunn-
bætur fyrir áætlunarflug, 46.760.000
kr. í grunngjald fyrir sjúkraflug og
108 þúsund kr. gjald fyrir hvert
staðalsjúkraflug. Þessu tilboði fylgir
sá valkostur að það taki einnig að sér
áætlunarflug milli Isafjarðar og Ak-
ureyrar gegn viðbótarbótum.
Flugfélag íslands lagði einnig
fram tilboð í flug á suðursvæði og
norðursvæði (F) og raunar voru til-
boðin tvö. Fyrra tilboðið hljóðaði
upp á 41.253.195 kr. í grunnbætur
fyrir áætlunarflug, 65.942.000 kr. í
grunngjald fyrir sjúkraflug og 108
þúsund kr. gjald fyrir hvert staðal-
sjúkraflug. Miðast þetta tilboð flug-
félagsins við að það taki jafnframt að
sér áætlunarflug milli Isafjarðar og
Akureyrar gegn tilteknum viðbótar-
grunnbótum.
Taki Flugfélag íslands hins vegar
jafnframt að sér áætlunarflug milli
Siglufjarðar og Akureyrar/Sauðár-
króks fyrir 10.485.450 kr. telur það
sig ekki þurfa nema 39.753.195 kr. í
grunnbætur fyrir áætlunarflug í val-
möguleika F (suðursvæði og norð-
ursvæði), 65.942.000 grunngjald fyr-
ir sjúkraflug og 108 þúsund kr. gjald
fyrir hvert staðalsjúkraflug.
í fjórða lagi leggur Flugfélag ís-
lands fram tilboð í flug á norður-
svæði einu og sér (B). Býðst flugfé-
lagið til að taka að sér áætlunarflug
gegn grunnbótum er hljóða upp á
39.753.195 kr„ 46.760.000 kr. í
grunngjald fyrir sjúkraflug og 108
þúsund króna gjald fyrir staðal-
sjúkraflug. Þetta tilboð felur hins
vegar aukreitis í sér val um að Flug-
félag íslands tæki að sér áætlunar-
flug milli ísafjarðar og Akureyrar
annars vegar og Siglufjarðar og Ak-
ureyrar/Sauðárkróks hins vegar fyr-
ir tilteknar viðbótargrunnbætur.
Flugfélag
Vestmannaeyja
Flugfélag Vestmannaeyja lagði
fram tilboð í tilboðsvalmöguleika C,
þ.e. sjúkraflug á Vestmannaeyja-
svæðinu. Býðst flugfélagið til að
sinna sjúkraflugi fyrir 11.000.000 kr.
grunngjald og 80 þúsund króna
greiðslu fyrir hvert staðalsjúkraflug.
Mýflug
Mýflug hf. lagði fram þrjú tilboð
og eru þau öll í flug á Vestfjarða-
svæðinu (valmöguleiki D) en með
ólíkri útfærslu. í fyrsta lagi var um
að ræða flug með áætlunarflug milli
Isafjarðar og Akureyrar aukalega.
Flugfélagið býðst til að sinna áætl-
unarflugi á svæðinu gegn tíu millj-
óna kr. greiðslu á ári í grunnbætur, 9
milljóna kr. grunngjaldi fyrir
sjúkraflug og 117.400 gjaldi fyrir
hvert staðalsjúkraflug. Býðst flugfé-
lagið til að sinna áætlunarleiðinni
Isafjörður-Akureyri sérstaklega
fyrir 19.852.739 kr. viðbótargrunn-
bætur.
Sé áætlunarfluginu milli ísafjarð-
ar og Akureyrar sleppt er Mýflug
tilbúið til að sinna áætlunarflugi á
Vestfjarðasvæðinu (D) fyrir
9.913.016 kr. í grunnbætur, 9 millj-
óna kr. grunngjald fyrir sjúkraflug
og 117.400 kr. gjaldi fyrir hvert
staðalsjúkraflug.
í þriðja lagi býðst Mýflug til að
sinna þessu sama svæði fyrir sömu
upphæð og í fyrsta tilboði en nú með
36.412.739 viðbótargrunnbótum fyr-
ir áætlunarflug milli ísafjarðar og
Akureyrar.
Flugfélagið Jórvík
Flugfélagið Jórvík hf. er sjötti og
síðasti tilboðsgjafinn. Lagði það
fram sex tilboð í útboði Ríkiskaupa.
í tilboðsvalmöguleika A, suður-
svæði, bauð flugfélagið að það tæki
að sér sjúkraflug fyrir 4.140.000 kr.
grunngjald og 124.700 í gjald fyrir
hvert staðalsjúkraflug.
í sjúkraflug á Vestmannaeyja-
svæði (valmöguleiki C) býður flugfé-
lagið 4.140.000 kr. í grunngjald og
124.700 kr. í gjald fyrir hvert staða-
lsjúkraflug. Fyrir áætlunarflug á
Vestfjarðasvæði (D) vill fyrirtækið
2.959.132 kr. í grunnbætur fyrir
áætlunarflug, 4.140.000 kr. í grunn-
gjald fyrir sjúkraflug og 124.700
gjald fyrir hvert staðalsjúkraflug.
í fjórða lagi býðst Flugfélagið
Jórvík til að sinna suðursvæði og
Vestmannaeyjasvæði saman (val-
möguleiki E) gegn 6.140.000 kr.
grunngjaldi fyrir sjúkraflug og
124.700 kr. gjaldi fyrir hvert staðal-
sjúkraflug. I fimmta lagi býðst það
til að sinna suðursvæði og Vest-
fjarðasvæði (valmöguleiki H) gegn
greiðslu upp á 2.959.132 kr. í grunn-
bætur fyrir áætlunarflug, 6.480.000
kr. grunngjaldi fyrir sjúkráflug og
124.700 kr. gjaldi fyrir hvert staðal-
sjúkraflug.
Að síðustu bauð Flugfélagið Jór-
vík í flug á suðursvæði, Vestfjarða-
svæði og Vestmannaeyjasvæði sam-
an (I) og hljóðar tilboð þess upp á
2.959.132 kr. í grunnbætur fyrir
áætlunarflug, 8.140.000 kr. grunn-
gjaldi fyrir sjúkraflug og 124.700
gjaldi fyrir hvert staðalsjúkraflug.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Halldör Asgrímsson vígir nýja jarðstöð Islandssima sem tekin var í
notkun á árs afmæli fyrirtækisins.
s
Ný jarðstöð Islandssíma
NÝ jarðstöð Íslandssíma var vígð
fyrir helgina. Er hún við Bústaða-
veg í Reykjavík, í nágrenni við
Veðurstofu íslands. Ár er nú liðið
frá því fyrsta símtalið fór um
fjarskiptakerfi Islandssima. Hefur
fyrirtækið rekið eigið ljósleiðara-
kerfi í jörð, símtöl hafa einnig
farið uin Cantat-3 sæstrenginn og
nú bætist jarðstöðin við. Halldór
Ásgrímsson vígði jarðstöðina nýju
og sést hér við það tækifæri
ásamt nokkrum forráðamönnum
Íslandssíma.
Samgöngunefnd Reykjavíkur sett á laggirnar
Ágreiningur um
hlutverk nefndarinnar
SAMÞYKKT fyrir samgöngunefnd
Reykjavíkur hlaut samþykki á fundi
borgarstjórnar í fyrrakvöld. Megin-
hlutverk nefndarinnar er að móta
stefnu að þvi er varðar umferðarmál,
umferðaröryggismál, gatnamál, bfla-
stæðamál, almenningssamgöngur,
ferðamál og samgöngumál almennt
og gera tillögur til borgarráðs sem
varða þettaverksvið. Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks létu bóka vonbrigði
sín með tvo þætti samþykktarinnar;
að stjóm SVR skuli lögð niður og að
ferðamál eigi að falla undir nefndina.
Helgi Pétursson, borgarfulltrúi
R-lista, sem kjörinn var formaður
samgöngunefndar segist telja að með
stofnun nefndarinnar sé stigið veru-
legt framfaraspor fyiir stjóm borg-
arinnar hvað málaflokka nefndarinn-
ar áhrærir og telur að með nefndinni
skapist gmndvöllm- fyiir góða um-
ræþuogaðgerðir.
í bókun sjálfstæðismanna í borg-
arstjóm segir m.a. að margt mæli
með því að umferðarmál, umferðar-
öryggismál, gatnamál og stefnumót-
un í almenningssamgöngum komi
saman í einni nefnd. Sjálfstæðismenn
lýsa á hinn bóginn yflr vonbrigðum
með að stjórn Strætisvagna Reykja-
víkur skuli lögð niður í kjölfar stofn-
unar samgöngunefndar og samþykkt
um SVR felld úr gildi án þess að fyr-
irtækinu sé tryggð rekstrarstjórn
sem hafi yílrstjórnar- og eftirlitshlut-
verki að gegna, en SVR sé eitt
stærsta fyrirtæki borgarinnai-.
Helgi Pétursson sagði hins vegar
að sámgöngunefnd yrði mun öflugra
tæki til stefnumótunar í samgöngu-
málum en stjórn SVR. Hann segir
enga ástæðu til annars en að ætla að
stjómendur Strætisvagna Reykja-
víkur geti axlað þá ábyrgð sem þeim
verður falin í nýju skipulagi.
Allar nefndir hafí
ferðamálíhuga
Þá kemur fram í bókun sjálfstæð-
ismanna að þeir telja engin rök fyrir
því að fela samgöngunefnd umsjón
ferðamála borgaiinnar: „I æ ríkaii
mæli tengist ný sókn í ferðamálum
menningarlífi þjóðarinnar og því rök-
rétt að fela menningarmálanefnd
þann málaflokk. Það hefði verið vel
við hæfi nú þegar verkefni Menning-
arborgar árið 2000 er senn að ljúka.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sagði að erfitt væri að sjá
hvai’ vista ætti ferðamál í borgarkerf-
inu. Hugmyndin um að vista mála-
flokkinn í samgöngunefnd væri ekki
síst til komin vegna þess að það end-
urspegli t.d. hvernig sá málaílokkur
er vistaður á Alþingi.
Borgarstjóri sagði hins vegar að í
raun þyrfti að sinna ferðamálum í
mörgum nefndum og ráðum borgar-
innar, m.a. í menningarmálanefnd.
Allar nefndir og ráð borgarinnar
ættu alltaf að hafa það í huga hvemig
sú starfsemi sem þeir reka og sinna
nýtist best í ferðaþjónustu.
I samgöngunefnd eiga sæti, auk
Helga Péturssonar formanns, Helgi
Hjörvar og Kristín Blöndal fyrir
R-lista og Kjartan Magnússon og
Kristján Guðmundsson fyrir Sjálf-
stæðisflokk.