Skírnir - 01.01.1902, Síða 3
Átta visun. 5
að hún varð sú, að halda pundinu af ull vorri niðri í 45—46 aurum,
svo sem ég hefi getið um í ritgerð minni um verzlunarfrelsi og vernd-
artolla, som prentuð er í Andvara 1899 (sjá sérstaklega 169.—164. bls.)
Mannkynssagan verður oss enn hugðnæmari fyrir það, áð hver-
vetna i henni getum vér rakið náið samband milli mentunar og frelsis.
Þá er og mjög lærdómsríkt að athuga, hversu sömu eðlisorsakir hafa
jafnaðarlega sviplíkar afieiðingar sitt á hverjum tima og sitt hjá hverri
þjóð; og hversu afleiðingar þessar geta þó orðið nokkuð breytilegar
fyrir j-misleg önnur áhrif. „En svo mikið er víst, að þær þjóðir, sem
rýmsta frelsis hafa notið, hafa eftirlátið oss ina fágætustu fjársjóði
andlegs auðs, og þeim eigum vér að þakka mjög mikið af siðmenning
vorri og mentun . . . i stuttu máli: þjóðmenningar-sagan er saga
frelsisin8“. !|
Fátt er það sem meiri áhrif hefir haft á menningu og stjórnar-
hagi þjóðanna, hvort heldur til ills eða góðs, heldur en trúarbrögðin.
Hjátrúarfull trúarhrögð, sem fylla manninn skelfingu og ótta, en eigna
prestum og konungum guðdðmlegt vald, þau gera þjóðirnar að vesal-
mannlegum þrælum og eru öruggur grundvöllur harðstjórnarinnar.
Þau styrkja drottinvaldið, en veikja mótspyrnuna; þau hefja erfikenn-
ingar upp yfir skynsemina, veikja frjálsan vilja, sljóvga skilninginn, og
halda mönnum í fáfræði; þau skapa þræla í frjálsra manna stað.
Hreinni og háleitari trúarbrögð hafa gagnstæð áhrif. Það eru
þau trúarhrögð, scm Walter Bagehot kallar „styrkjandi trúarbrögð11
(thb fortifying religions). „En það eru þau trúarbrögð“ segír hann,
„sem sterka8ta áherzlu leggja á in drengilegu atriði siðfræðinnar —
atorku, sannleiksást og starfssemi —; þessi trúarbrögð hafa haft in
bersýnilegustu áhrif til að efla og styrkja þá þjóðflokka, sem höfðu
þau, og gora þá sigursæla11 (Physics and politics, 6. útg., 217. bls.).
Þessi trúarbrögð bæla ekki hugsunina niður, heldur vekja hana til í-
hugunar á guðlegum sannleika og réttvísi; þau hæla ekki manninn
niður til flatmagandi ótta gagnvart stjórnendum sínum, heldur krefja
stjórnendurna reikniugskapar gagnvart guði og mönnum fyrir réttvísa
stjórn.
Sviplík áhrif hefir og uppfræðingin. En góð uppfræðing og
1) Erskine May: Democracy in Europe. Introd.