Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 7

Skírnir - 01.01.1913, Page 7
Jón Borgfirðingur. 7 miður um það gefið, að haun iðkaði bóklestur, og þótt það ef til vill draga áhuga hans frá vinnunni, enda var hann aldrei hneigður fyrir vinnu, og sízt skepnuhirðing á vetr- um, að því er hann sjálfur segir. Réði hann loks af að verða laus úr vist vorið 1852 og vinna síðan í kaupamensku um sláttinn, svo hann kæmist af næsta vetur. Fluttist hann þá til Reykjavíkur um haustið, því þangað stóð allur hugurinn í bækurnar og mentunina. Veturinn eftir kyntist hann Jóni Arnasyni stúdent, er seinna varð landsbókavörður, og fekk nokkra tilsögn hjá honurn, án þess að hann gerði rerkning fyrir; urðu þeir brátt góðkunnugir, og fekk Jón Borgfirðingur að nokkru endurgoldið nafna sínum síðar, er hann fór að gefa út Þjóðsögur sínar,' með því að safna fyrir hann þjóðsögum og munnmælum. Jón Borgfirðingur mun í fyrstu hafa gert sér hálft í hverju von um að geta kornist í skóla og gengið mentaveginn, en sá þó brátt að þess var enginn kostur bæði sakir aldurs og örbirgðar, því hann var 27 ára gam- all og átti engan að, og mun tilsögn Jóns Arnasonar þá um veturinn hafa verið einasta kenslan, sem hann naut um æfina. Hvarf hann því frá þessu ráði og réðist til Einars Þórðarsonar, er þá hafði um haustið tekið við ráðs- mensku eða forstöðu Landsprentsmiðjunnar gömlu; var það eflaust bókatilhneigingin, sem beindi honum að því starfi. Hann stundaði þó eigi prentiðn nema mjög skamm- an tima, en réðist í þess stað í bókasöluferðir fyrir Einar og Egil bókbindara Jónsson. Eigi mun hann samt hafa þózt geta komið ár sinni vel fyrir borð í Reykjavík, og leitaði því fyrir sér annarstaðar, en hafði jafnframt hug- a,nn á því að koma sér svo fyrir, að hann gæti átt að- gang að bókum og svalað lestrarfýsn sinni. Rétt um þess- ar mundir (1852) hafði verið stofnuð prentsmiðja á Akur- eyri, og var þá um hríð allmikill áhugi nyrðra á bóka- útgáfum, en færri voru þar til samkepni um bókasölu og ritstörf en í Reykjavík. Mun þetta eitt með öðru hafa ýtt undir Jón að taka sig upp frá Reykjavík og flytja norður til Akureyrar sumarið 1854. Þegar þangað var

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.