Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 11

Skírnir - 01.01.1913, Page 11
Jón Borgfirðingur. 11 um árla dags og síðla á kvöldum og nóttum. Árið eftir voru þeir Vesturheimsmennirnir dr. Fiske og Arthur Reeves hér á ferð, og var Fiske sem kunnugt er bókavinur mik- ill og þá löngu tekinn að leggja grundvöllinn undir hið mikla íslenzka bókasafn sitt. Færðu þeir í tal við Jón, að hann semdi íslenzka bókaskrá í tveim hlutum; skyldi í fyrri hlutanum vera skrá yfir allar bækur og biöð, er prentað hefði verið á íelandi, en í seinni hlutanum yfir íslenzkar bækur prentaðar erlendis og öll rit um Island á erlendum málum. Ætluðu þeir síðan að gefa skrána út. Jón tók heldur dauflega í þetta, einkum að því er snerti erlendu bækurnar, því þar var han)i ekki jafnsterkur á svellinu, en þó ætlaði hann að reyna. Ekkert varð samt af þessu er til kom, því Reeves vildi ekki kaupa af hon- um handritið að bókaskránni, en að eins kosta útgáfuna og láta Jón hafa nokkur eintök prentuð í ritlaun; að því þóttist Jón ekki geta geta gengið, sem varla var von, fátækur barnamaður. Það mun víst mega t.elja einsdæmi í bókmentasögu heimsins, að erlendir fræðimenn snúi sér til fátæks al- múgamanns um úrlausn á bókfræðismálefnum, en þar til er því að svara. að Jón Borgfirðingur var þá óefað állra manna bezt að sér hér á landi i þeirri grein. Hann hafði jafnan haft mesta yndi af því að safna öllu þar að lút- andi og rita upp hjá sér. Hafði hann á undanförnum árum dregið saman í allmikið Rithöfundatal og ætlaði það Bókmentafélaginu, eftir samningum við Jón Sigurðsson, eins og sjá má af bréfum hans, en endirinn varð sá, að það lenti alt hjá Jóni Sigurðssyni sjálfum og er nú í hand- ritasafni hans nr. 103—106, 4to. Jón var þó sífelt að auka við það og hélt áfram að safna öllu þar að lútandi fram á síðustu ár. Upp úr öllu þessu grúski kom honum til hugar að taka saman eða hripa upp Drög til sögu isl. bókmenta frá 1400—1874 eða Ágrip til ísl. bókfrœði, og gerði ráð fyrir að geta þar helztu rita íslenzkra, er kunn væru al- Jiýðu og hefðu verið notuð »til almennrar brúkunar til

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.