Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1913, Side 15

Skírnir - 01.01.1913, Side 15
Jón Borgfirðingur. 15- þætti eigi frambærileg eða vel samið visindlegt rit frá sjónarmiði nefndarinnar. Það er ekki laust við að þetta setjist í hann og veki hjá honum grun um, að hann sé látinn gjalda þess að hann var leikmaður. Kennir þá i svip hjá honum nokkurrar beiskju út af æfikjörunum, svo hann ritar Eggert vini sínum á þessa leið (29. sept. 1887): »Mér hefði verið miklu nær að rorra í Borgarfjarðar- myrkrinu sem garðmaður og fjósa. aldrei lært að lesa á bók og þvi síður að mynda staf með krít og koli, enda var eg narraður fyrir það. og beygðist snemma krókur- innK. Eggert prestur tók svari hans út af ummælum nefndarinnar1), enda var hann fróðleiksmaður mikill í þeim greinum, og af bréfum Jóns má marka, að Eggert prestur hefir oftar talið kjark í hann og alið á sjálfstrausti hans, því Jóni hætti annars við að taka sér það nærri, er honum þótti ritstörf sín lítils metin. Fann hann eflaust sjálfur til þess manna bezt, að hann hafði í æsku farið á mis við mentunina, enda hafðí hann sízt of mikið álit á ritum sínum, þótt hann hins vegar væri sér þess meðvit- andi, að hann vandaði til þeirra. eftir föngum. í bréfl 28. júlí 1888 kveðst hann nú leggja árar í bát með rit- störfln, en það varð þó eigi, — til þess var bókmenta- áhuginn og fróðleiksfýsnin of mikil. Hann hélt bókfræða- grúskinu áfram til dauðadags, jók prentskrá sína og Rit- höfundatal með hverju ári, og var jafnan á höttunum eftir öllum nýjungum. í blöð ritaði hann jafnan öðru hvoru smágreinar, einkum andlátsfregnir og æflminningar, og ritskrár frá hans hendi fylgja æflsögum ýmsra manna bæði í Andvara og viðar. m. önnur hliðin á æflstarfi Jóns Borgfirðings, og engu þýðingarminni en ritstörfin, — enda af sömu rótum runn- in, — var tilhneiging hans eða öllu heldur á s t r í ð a til ') Þjóð. XXXIX nr. 57-58.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.