Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 18

Skírnir - 01.01.1913, Page 18
Jón Borgfirðingnr. 18 rita vorra að fornu og nýju, þar sem í höfuðstað vísind- anna bryddir á slíku atferli á seinni hluta 19. aldar, hvað‘ þá á miðöldunum í hinu dimma myrkri*. Þessi áhugi Jóns og hirðusemi kom einkum Bók- mentafélaginu í góðar þarfir, og verður seint fullþakkað. Hann lét Bókmentafélaginu í té alt það, er hann komst yfir af handritum, og var sumt af því stórmerkilegt, svo sem t. d. öxnafellsbók, safn af dómum og bréfum frá 15.,. 16. og 17. öld með hendi Ara Magnússonar í ögri. í handritaskrá félagsins eru talin 272 nr. frá Jóni Borgfirð- ing, en ótalið er sjálfsagt annað eins eða meira, sem hann sendi félaginu eftir að skráin kom út. Hélt hann áfram að reyta í það smám saman fram á síðastliðið sumar, og að lokum skildi hann svo við, að hann ánafnaði því alt sem hann lét eftir sig af handritum. Ef meta ætti þetta til peningaverðs, mundi það eigi nema öllu minna en 5—6000 kr., og mundi það hvervetna þykja höfðingleg gjöf og þjóðræknisleg, eigi sízt af fátækum manni, sem altaf átti örðugt uppdráttar. Það mun sérstaklega hafa verið í viðurkenningarskyni fyrir þetta, að Jón var gerð- ur að heiðursfélaga í Bókmentafélaginu, og svo meðfram fyrir hitt, að hann átti manna mestan þátt í að útvega því nýja félaga, eins og reyndar fleiri mentafélögum, því hann var svarinn stuðningsmaður þeirra allra bæði í orði og verki, og átti öll bókmentaviðleitni þar góðan hauk í horni, sem hann var. Jón Borgfirðingur lét sér mjög umhugað um að af- stýra því, að íslenzk handrit væru seld út úr landinu. Rann honum jafnan til rifja er íslenzkir menn voru að bjóða erlendum söfnum handrit sin til kaups, eins og t. d. Jón Arnason bókavörður. Og mjög lét hann sér ant um að halda spurnum fyrir um það í bréfum til kunningja sinna, hvað yrði af bóka- og handritasöfnum einstakra manna, svo sem t. d. síra Benedikts Vigfússonar á Hólum o. fl., og vildi reyna að afstýra því að þau tvístruðust. Sjálfur átti hann jafnan mjög bágt með að skilja við sig fágætar bækur, og vildi hvorki farga þeim né lána, jafn-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.