Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1913, Side 26

Skírnir - 01.01.1913, Side 26
26 Lyf og lækningar. löndin og drápu fólkið unnyöpum þrátt fyrir allar fyrir- bænir í kirkjum og klaustrum. Nú eru þær oftast nær heftar með sóttvörnum, samgönguvarúð og sótthreinsunum. En þekkingin er ekki einhlít. Flestir vita að einfalt, óbrotið matarhæfi, gott andrúmsloft og hreinlæti er heilsu- samlegra en óhóf, óregla og óhreinlæti, og þó syndgar allur fjöldi manna móti þessu af tómu hirðuleysi. Einföld tann- pína er ágætt dæmi: Fjöldi manna veit vel að tennurnar þrífast því að eins að sífelt sé reynt á þær, að nokkur hluti matarins sé harðæti eða annað sem tyggja þarf til muna. Þessu er ekki skeytt. Tennurnar taka að skemm- ast. Nú vita menn að þessumónýtu tönnum er það mikilvörn, ef þær eru burstaðar og þeim haldið vel hreinum, að auk þess þarf að fylla holurnar áður en tönnin gjörskemmist. Hvorttveggja er vanrækt, svo endirinn verður sá, að læknirinn kippir út ónýtum brotunum og tönnin er úr sögunni. Beztu ráðin til þess að takmarka sjúkdómana, eru meiri þekking og meiri hirðusemi. Næst þessu gengur senniiega aukin velmegun. Bláfátæk- um mönnum eru oft flestar bjargir bannaðar. Þeir geta ekki bætt húsakynni sín sem skyldi og verða oft að láta sér lynda lakari föt og fæði en æskilegt væri. Hver sem bætir efnahag alþýðu, er jafnframt bezti iæknir. Sjúkdómaþekk- Það er ekki fjarri sanni, að krefjast þess ing lækna. a{ lgeknum, að þeir beri kensl á flesta sjúkdóma, viti hvað að sjúklingnum gengur. Þó vikur þessu oft öðruvísi við en flestir ætla. Sumir sjúkdómar eru auðþektir óðar en litið er á sjúklinginn. Lopi eða bjúgur á öllu andlitinu er t. d. nálega óbrigðult merki nýrnabólgu. Álika auðsæ og ótvíræð einkenni fylgja alla- jafna mörgum sjúkdómum, og læknirinn getur þá umsvifa- laust sagt sjúklingnum hvar og hvernig hann finni til meina sinna, án þess að spyrja hann nokkurs. Náttúrlega eru allir ánægðir við læknirinn, þegar honum tekst svo vel, en því miður blasir það sjaldnast við fyrirhafnarlaust

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.