Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 30

Skírnir - 01.01.1913, Page 30
30 Ljrf og lækningsr. Hey- Svo eg nú nefni annað dæmi, er lungun sýkjast, kvef. vil eg minnast á heykvef eða heymæði sem sumir kalla. Fjármenn sem eru að vetrinum í mygluðum eða rykmiklum heyjum sýkjast oft að mun af þessu ryki og ólofti. Hér sem oftast endrarnær kemur skýr áminning frá náttúrunni. Maðurinn fer að fá hóstauppgang og mæði. A þennan hátt segja lungun til sín, að þeim sé ofboðið. Þau reyna jafnframt eins og meltingarfærin að losa sig við ólyfjanina. Innan í lungnapípunum sópa óteljandi örsmá bifhár óhreinindunum látlaust upp á við. Slímkirtlarnir vefja utan um þau seigu slími og hóstinn þeytir því upp úr andfærunum, dökkleitu af óhreinindun- um. Náttúran starfar hér iðin og óþreytandi, nótt og dag, til þess að verja sig óheilnæminu, en svo mikið getur það verið, að hún fái ekki rönd við reist Slímhúðin sýkist þá meira og meira, mótstöðuafl líkamans þverrar, hóstinn, uppgangurinn og mæðin ágjörist, og getur svo farið að sjúklingurinn verði ófær til vinnu sinnar. Fyrst hefir náttúran aðvarað manninn daglega og leggur hann ef til vill í rúmið ef hann hlýðir ekki! Nú kemur batinn á sama hátt og í garnakvefinu. Þegar rykið hættir að berast ofan í lungun, hreinsast þau, þrotann dregur smámsaman úr slimhúðinni, særðir blettir á henni gróa, hósti, uppgangur og mæði hverfa að lokum, ef skemdin er ekkí því meiri. Meðul hafa nauðalítil áhrif á þetta læknisstarf náttúrunnar. Landfar- Eg hefi nú nefnt tvö dæmi þess, hversu náttúr- sóttir. an læknar einfalda meltingar-. og lungnakvilla, án allra lyfja, á líkan hátt og hún græðir sár. Líkt er þessu farið með margar landfarsóttir, þó ekki sé það eins einfalt. Þegar sjúklingunum batnar, læknast þeir af nátt- úrunni, og læknirinn hefir venjulega engin lyf, sem reki sjúkdóminn úr líkamanum og lækni þannig sjúklinginn. Þó ýmsir læknar hafi orð á sér fyrir það að vera sérlega góðir lungnabólgu- eða taugaveikislæknar, þá er það fljót- sagt, að enn sem komið er verður ekki sagt að nein lyf

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.