Skírnir - 01.01.1913, Side 31
Lyf og lækningar.
31
þekkist, sem eigi við þessum sjúkdómum. Það eru ekki
til nein lungnabólgu eða taugaveikismeðul.
Eins og flestum er kunnugt, valda örsmáar lifandi
verur sóttum þessum. FleStar þeirra eru taldar jurtir,
nokkrar dýr. Kvikindi þessi geta lifað og dafnað í líkama
manna og fjölgað þar svo ótölulegum miljónum skiftir.
Þar sem sóttkveikjurnar hreiðra sig, geta þær valdið
skemdum á líffærunum, en mestmegnis stafar sjúkdómur-
inn af eiturtegundum, sem þær mynda og berast inn í
blóðið. Eitur þessi valda t. d. hitasóttinni, sem venjulega
fylgir þessum kvillum.
Því fer fjarri, að líkaminn taki þegjandi og hljóða-
laust móti gestum þessum. Þvert á móti slær ætíð í blóð-
uga-n bardaga, sem oftast lýkur svo, að sóttkveikjurnar
bera lægra hlut. Hvít blóðkorn flykkjast venjulega að
sóttkveikjuhreiðrunum, éta bókstaflega oft og einatt sótt-
kveikjurnar og drepa þær þannig. Þá mynda og blóð-
kornin efni, sem eru eitur fyrir sóttkveikjurnar. En
hversu sem þessari viðureign lýkur, þá er það fullsannað,
að eftir nokkurn tíma verða einkennilegar breytingar á
blóði sjúklingsins. I þvi finnast þá efni, sem ýmist eyða
sóttkveikjueitrinu eða drepa sjálfar sóttkveikjurnar. Eftii
því sem lengra sækir á sjúkdóminn aukast efni þessi, ef
bata er von, og þegar þau eru orðin nægilega sterk, missa
sóttkveikjurnar valdið yfir líkamanum og sjúklingnum
batnar. Líkaminn hefir hér á undursamlegan hátt búið
til eins konar lyf, sem einmitt eiga við þessum sjúkdómi
og engum öðrum, efni, sem svara alveg til þess sem
vakað heflr fyrir alþýðu og læknar frá alda öðli þráð að
þekkja og leitað að.
Vér getum nú svarað spurningunni: Hvers vegna
batnar barnaveikin, lungnabólgan, taugaveikin, misling-
arnir og margar aðrar sóttir af sjálfu sér eftir lengri eða
skemmri tíma? Þær batna af því að líkamanum hefir
tekist að mynda svo mikið af varnarefnum, að þau hafa
orðið sóttkveikjunum og eiturefnum þeirra yfirsterkari.
Nú má að sjálfsögðu spyrja: Því batna þá ekki á sama