Skírnir - 01.01.1913, Síða 36
36
Lyf og lækningar.
J)ó þau við ólæknandi sjúkdóma megni ekki annað, þá
geta þau linað þjáningar og bætt líðanina.
Þá er það og mikilvægt atriði, að vita hvað ura er
að vera, hvað að sjúklingnum gengur, hvort treysta má
náttúrubatanum eða sérstakra lækninga þuríi með. Jafnvel
þó sjúkdómurinn sé ólæknandi, er það oft þýðingarmikið
fyrir vandamennina, að vita að svo sé. Enginn getur
leyst vel úr þessum spurningum, nema góður og fróður
læknir, og það getur oft orðið að ómetanlegu gagni, að
þeim sé svarað rétt, t. d. ef drepsóttir koma upp, sem
stöðva þarf í byrjun.
Til livers Von er þó menn spyrji: Til hvers eru þau
eru lyfin? þessi ótal lyf hjá læknum og í lyfjabúðum úr því
svo fáir sjúkdómar verða læknaðir með lyfjum? Satt að
segja eru mörg óþörf og lítils nýt, en þó eru þau ekki fá
sem að góðu gagni koma jafnvel þó þau lækni ekki sjúk-
dómana. Mörg eru svo dýrmæt, að til vandræða horfði,
ef mér mistum þau. Eg skal drepa á nokkur dæmi.
Til þess að geta hreinsað hendur og hörund við skurði,
eru notuð sóttkveikjudrepandi lyf. Ef þau væru
ófáanleg, væri að miklu leyti fótunum kipt undan skurð-
lækningum og sótthreinsun. Meðan á skurðum stendur,
eru sjúklingarnir svæfðir með svæfingarlyfjum.
Án þeirra myndi fáum þykja fýsilegt að leita handlækna.
Alkunnugt er það, að mörgum sjúkdómum fylgja mikl-
ar þrautir og þjáningar, sem stundum geta varað svo dög-
um og vikum skiftir. Nálega undantekningarlaust má með
verkeyðandi lyfjum lina allar þjá'ningar og breyta
hörmungaræfi í sæmilega líðun. Mörgum myndi bregða
við, ef þeim væri kipt í burtu. Með lyjum má nálega
undantekningarlaust draga úr hitasótt ef þess gjörist þörf,
stöðva hósta, sem gengur of nærri sjúklingnum, veita hon-
um væran svefn, ef hann getur ekki sofið, stöðva niðurgang,
bæta hœgðaleysi o. s. frv. Þessi fáu dæmi sýna það glögg-
lega, að þrátt fyrir alt eru lyfin dýrmæt og vandræði að
vera án þeirra.