Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 44

Skírnir - 01.01.1913, Page 44
44 Um „akta“-skrift. lægra haldi og greiða fulla borgun, því skriftin reyndist aktaskrift. Sögumaður segir að þetta hafi eins og skvett dálitlu köldu vatni á dýrkun sína á Jóni Sigurðssyni i svipinn og segist geta þessa »til að vekja athygli á, hve miklu næmari áhrif það hefir á uaglingana með þeirra næmu réttlætis- tilfinningu, en á fulltíða menn, ef þeim er rangt til gert«. Vér skulum virða þessa tvo menn fyrir oss. Annars vegar er Jón Sigurðsson, maðurinn sem vann af öllum kröftum meðan æfin entist að hverju því sem hann hugði sig helzt gagna ættjörðinni með, en aldrei spurði um launin, aldrei um það hvað hann fengi fyrir starfið. Það liggur við að mig sundli, þegar eg renni huganum yfir það sem h a n n fekk afkastað. Lítið t. d. á það sem hann hefir ritað. Það er ekki lítið að vöxtunum vísindastarfið hans — allar útgáfurnar, ritgerðirnar, bækurnar. En það er ekki að eins stórkostlegt að vöxtunum. Þeir sem bezt eru að sér í þeim greinum sem hann fékst við, ljúka upp einum munni um það, að öll hans vísindastörf séu leyst af hendi með frábærri vandvirkni og að þekkingin sem þar kemur fram sé aðdáanleg. Og þó er þetta ekki nema nokkur þáttur af æfistarfinu. Stjórnmálastarf hans er að sínu leyti jafnstórkostlegt, vinnan sem hann hefir lagt í það innan þings og utan ótrúlega mikil. Svo öll bréfa- viðskiftin, allar leiðbeiningar, skriflegar og munnlegar, sem hann lætur öðrum í té, og allir snúningarnir sem hann hefir fyrir landa sína heíma og í Höfn. Gestanauðin á heimilinu. Einhvern tíma hefir það alt kostað. Eða komið á Landsbókasafnið og lítið á handritasafnið hans. Hvernig fékk hann tíma til að safna því öllu, rannsaka hvert blað, raða því og skrifa alt sem hann heíir skrifað þar? Já, lítið á skriftina h a n s. Rithöndin er á sinn hátt ímynd mannsins. Hún er hreyfing hans og speglar eðli hans og ástand líkt og limaburðurinn og svipbrigðin. Rithönd Jóns Sigurðssonar er ekki »akta« skrift. Þar er ekkert »óvenjulega gleitt og gisið«. Eg hefi ekki séð aðra hönd, er mér þyki að öllu tigulegri og fegri. Húa

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.