Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 46

Skírnir - 01.01.1913, Page 46
46 Um „akta“-skrift. til mismunandi upplags manna; sama reglan um línufjölda og stafafjölda gilti fyrir alla. Hún ákvað hvað m i n s t mætti vera á örkinni. »Hingað« — sagði lögmálið, og þó aktaskrifarinn færi að eins og skrifað stæði »Hingað, og ekki lengra% þá varð ekkert á því haft. Þessu gleymdi Jón Sigurðsson. Hann gætti ekki að því að telja fyrst stafi og línur. Það var það sem særði hina næmu réttlætistilfinningu unga mannsins. í þessu atviki kemur skýrt fram tvenns konar eðli. Þar mætast tveir menn svo ólíkir, að hvorugur skilur annan. Munurinn á þeim er að sinu leyti eins og munur hins gamla og hins nýja sáttmála. Aktaskrifarinn er barn lögmálsins, sem kemur að utan. Hann miðar verk sitt ein- göngu við það sem heimtað er fyrir kaupið sem hann fær, og með oflæti Faríseans bendir hann á skriftina ogsegir: »Þér getið talið stafi og línur«. Jón Sigurðsson fylgir fagnaðarboðskap kærleikans til vinnunnar. Hann spyr ékki hvað af honum sé heimtað fyrir kaupið sem hann fær, heldur hvei’ju hann geti mest afkastað. Mælikvarðinn er kraftur sjálfs hans, en ekki launin. Að vinna eins og kraftarnir eru til, er hið óskrif- aða boðorð sem hann lifir eftir. Vér skulum nú athuga hvaða afleiðingar það hefir fyrir einstaklingana og þjóðfélagið í heild sinni, hvorri stefnunni er fylgt. Og þá vil eg byrja á því að líta á hvor stefnan sé upprunalegri í eðli mannsins. Hvernig eru börnin? Þau eru í rauninni sístarfandi. Þau eru á sífeldri hreyfingu, hoppa og hlaupa og vilja altaf hafa eitthvað fyrir stafni. Þess vegna er löngum svo er- fitt að fá þau til hæglætis og gera úr þeim siðprúð dauð- yfli. Starfshvötin virðist þeim inngróin frá upphafi vega, þó oft skifti um viðfangsefnin og áhugamálin á þeim aldri. Og að hreyfingar barnanna eru svo mjúkar og yndislegar, kemur einmitt af þessu, að þær koma svo ósjálfrátt og eðlilega. Það liggja ekki á þeim óeðlilegar hömlur. Og alt sem börnin gera, er gert sjálfs þess vegna. Þau spyrja ekki um launin. Þau spyrja ekki um það, hvað þau fái

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.