Skírnir - 01.01.1913, Side 51
Um „akta*-skrift.
51
ef þeir gerðu ekki betur en af þeim var heimtað. Með
því að beina öllum kröftum sínum að starfinu, hefir þeim
sífelt farið fram, svo þeir gátu gert betur en fyrirrennar-
arnir og þokað hver í sinni grein mannkyninu áfram til
meira viðsýnis og öflugri athafna en áður. Það er þeim
mönnum að þakka að heimurinn er ekki löngu gjaldþrota,
því með því sem þeir gáfu hafa líka verið greiddar skuld-
irnar fyrir hina sem drógu af sér. Eg hefi oft hugsað um
lítið atvik sem eg tók eftir í æsku. Eg kom í kaupstað-
inn með vinnumanni frá stóru heimili. Við vorum með
ull á 12 hestum. En í sveitinni minni var ullin dökk,
því jörð er þar mjög sendin. Og nú fengum við helli-
rigningu í 9 tíma samfleytt, svo nærri má geta að ullin
í pokunum var ekki sem fegurst verzlunarvara, þegar við
lögðum haDa inn daginn eftir. En hún var tekin eftir
þyngd fullu verði, þvi húsbóndi okkar var einn af auðug-
ustu viðskiftamönnum verzlunarinnar. Samtímis okkur
kom fátækur maður með nokkur pund af ull og lagði inn.
Hun var drifhvít og skraufþur, svo mér varð starsýnt á
hana við hliðina á blökku og blautu dyngjunni sem við
komum með. En fátæki maðurinn fekk ekki meira fyrir
ullina sína en húsbóndi minn. Hún var sett saman við
ullina hans og fór með henni ofan í geysistóran poka sem
hékk á bitum og troðið var í af karli sem að eins náði
með hausinn upp úr pokanum. Eg var að hugsa um það hvort
ekki mundi hitna í ullinni, sem troðið var í pokann blautri
og óhreinni — hvort pokinn mundi ekki brenna með öllu
saman. Og eg hugsaði mér helzt, að ef það brynni ekki
alt saman, þá væri það að þakka hreinu og þurru ullinni
fátæka mannsins. Síðan hefir hún verið mér ímynd þess
réttlætis sem viðheldur heiminum.
Ef vér svo lítum á það sem íslenzku þjóðinni er helzt
til frægðar, þá dylst varla, að hún á það að þakka mönn-
um sem ekki voru akta-skrifarar að upplagi né fram-
kvæmd. Eg mintist áðan á Jón Sigurðsson, og fegra
dæmi verður naumast nefnt. En það er óhætt að full-
yrða, að mestöll bókmentastarfsemi Islendinga frá upphafi
4*