Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1913, Side 54

Skírnir - 01.01.1913, Side 54
54 Um „akta“-skrift. ar þeir koma. Vér megum vera óendanlega þakklátir þeim íslenzku mönnum, sem hlýddu köllun sinni og sköp- uðu listaverk, þó þeir fengju ekkert í aðra hönd, því þeir hafa unnið verk sem annars væru óunnin í heiminum og enginn gæti uú unnið í þeirra stað. Eða halda menn að fornbókmentirnar islenzku yrðu bættar með öðrum bók- mentum, ef forfeðrum vorum hefði láðst að skapa þær? Hvaða verk mundu t. d. Norðmenn geta haft til að bæta sér upp Noregskonungasögur? Sá arfur sem vér höfum fengið er af þeirri tegund sem varanlegust er. Flestar eignir rýrna og eyðileggjast með aldrinum. Hús síga í jörð og molna og hrynja, brýr og vegir ganga úr sér, slitna og svara ekki þegar fram í sækir breyttum kröfum tímans; skipum hlekkist á. En listaverk bókmentanna eru »geymileg meðan byggist heimur«, og sá fjársjóðurinn verður á endanum drýgstur, sem varanlegastur er. Þegar reikningarnir verða gerðir upp, þá verður sá talinn mestur er mest gaf af geyrai- legum hlutum, og sú þjóðin auðugust sem mest á af þeim fjársjóðum sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Eg hefi valið mér þetta umtalsefni vegna þess, að hugsanirnar um aktaskriftina hafa ásótt mig svo oft síðan eg ias um þetta atvik er eg gat um í upphafi ræðu minn- ar. Orðið »akta-skrift« hefir í huga mér orðið nokkurs konar einkunn,semósjálfráttfestist viðhvert það verk er virt- ist bera þess merki að höfundurinn hefði unnið það slæ- legar en hann gat. Við Ijós þe3s hefir mér fundist eg betur en áður kunna að greina sauðina frá höfrunutn. Og eg held það gæti orðið mörgum lærdómsríkt að athuga sjálfa sig og aðra frá þessu sjónarmiði: Er maðurinn aktaskrifari ? Er aktaskrift á verkinu? Sé maðuriun aktaskrifari, þá er dómurinn fallinn. Hann er þá ekki einn af þeim scm sækja á brattann og lyfta mannkyn- inu á hærra stig. Hann er ekki einn af þeim útvöldu sem gáfu meira en þeir fengu. Af skriftinni hans verður okki einn stafur geymdur í lífsins bók. Guðm. Finnbogason.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.