Skírnir - 01.01.1913, Side 59
Danmerkur og Noregs saga próf. Edv. Holms. 59
gamaldags, úrelt og ófært, áður en einveldið komst á.
Það var nú endurbætt á margan hátt; þótt einveldiskon-
ungarnir gerðu vald sitt meira og ótakmarkaðra en í nokkru
öðru landi á meðal hinna mentuðu þjóða, var þó einveldis-
stjórnin í Danmörku og Noregi mildari en í öðrum löndum.
En að sumu leyti var afturför að einveldinu. Einvalds-
konungarnir dönsku tóku alla ábyrgðina á sínar herðar.
Þeir notuðu eigi »stéttirnar« sér til ráðuneytis eins og
í öðrum löndum. Fyrir því vandist þjóðin á að varpa
öllum áhyggjum sínum upp á konunginn, en við það lam-
aðist framtakssemi manna og dugur.
Sextíu árum eftir lögtöku einveldisins hafði því eigi
tekist að bæta úr hinu fjárhagslega og búnaðarlega eymdar-
ástandi. Konungarnir eyddu of miklu fé handa sér og
hirð sinni. Hinn mikli norræni ófriður var þá alveg ný-
lega afstaðinn.
Á síðari hluta 18. aldar voru nokkrir ráðgjafarnir
duglegir framfaramenn. Þá var unnið margt og mikið
ríkinu til framfara; verzlun og iðnaður blómgaðist; bænd-
ur fengu fult frelsi; hagur manna batnaði; vísindi og
menning tók stórum framförum, og Island naut á ýmsan
hátt góðs af því. — En hins vegar var miklu fé sóað
burt til þess að reisa hallir handa konungi, afardýrt ridd-
aralíkneski af Friðrik 5. og fleira þess konar.
I þessari stuttu ritgjörð er eigi hægt að lýsa sögu
prófessors Holms ítarlega. Hann lýsir framþróun ríkisins
og þjóðfélagsins og hag þess í öllum greinum. Hann skýrir
venjulega fyrst frá hinni ytri sögu Danmerkur og Noregs,
lýsir konungunum og landstjórninni út á við í öllum henn-
ar greinum, þeim mönnum, sem skipuðu landstjórnina og
höfðu stjórnarathöfnina á hendi. Hann segir frá atburðum
öllum, sem snerta ríkið í heild sinni og viðskiftum við
önnur lönd, ófriði og utanríkispólitík, samningum við
önnur lönd, skoðunum manna á því sem gerðist, og mis-
klíð og skiftum skoðunum þeirra, sem völdin höfðu. Hann
lýsir einnig vináttu Danmerkur og Noregs við önnur lönd,
verzlunarviðskiftum og siglingum til annara landa og
heimsálfa o. s. frv.