Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1913, Síða 59

Skírnir - 01.01.1913, Síða 59
Danmerkur og Noregs saga próf. Edv. Holms. 59 gamaldags, úrelt og ófært, áður en einveldið komst á. Það var nú endurbætt á margan hátt; þótt einveldiskon- ungarnir gerðu vald sitt meira og ótakmarkaðra en í nokkru öðru landi á meðal hinna mentuðu þjóða, var þó einveldis- stjórnin í Danmörku og Noregi mildari en í öðrum löndum. En að sumu leyti var afturför að einveldinu. Einvalds- konungarnir dönsku tóku alla ábyrgðina á sínar herðar. Þeir notuðu eigi »stéttirnar« sér til ráðuneytis eins og í öðrum löndum. Fyrir því vandist þjóðin á að varpa öllum áhyggjum sínum upp á konunginn, en við það lam- aðist framtakssemi manna og dugur. Sextíu árum eftir lögtöku einveldisins hafði því eigi tekist að bæta úr hinu fjárhagslega og búnaðarlega eymdar- ástandi. Konungarnir eyddu of miklu fé handa sér og hirð sinni. Hinn mikli norræni ófriður var þá alveg ný- lega afstaðinn. Á síðari hluta 18. aldar voru nokkrir ráðgjafarnir duglegir framfaramenn. Þá var unnið margt og mikið ríkinu til framfara; verzlun og iðnaður blómgaðist; bænd- ur fengu fult frelsi; hagur manna batnaði; vísindi og menning tók stórum framförum, og Island naut á ýmsan hátt góðs af því. — En hins vegar var miklu fé sóað burt til þess að reisa hallir handa konungi, afardýrt ridd- aralíkneski af Friðrik 5. og fleira þess konar. I þessari stuttu ritgjörð er eigi hægt að lýsa sögu prófessors Holms ítarlega. Hann lýsir framþróun ríkisins og þjóðfélagsins og hag þess í öllum greinum. Hann skýrir venjulega fyrst frá hinni ytri sögu Danmerkur og Noregs, lýsir konungunum og landstjórninni út á við í öllum henn- ar greinum, þeim mönnum, sem skipuðu landstjórnina og höfðu stjórnarathöfnina á hendi. Hann segir frá atburðum öllum, sem snerta ríkið í heild sinni og viðskiftum við önnur lönd, ófriði og utanríkispólitík, samningum við önnur lönd, skoðunum manna á því sem gerðist, og mis- klíð og skiftum skoðunum þeirra, sem völdin höfðu. Hann lýsir einnig vináttu Danmerkur og Noregs við önnur lönd, verzlunarviðskiftum og siglingum til annara landa og heimsálfa o. s. frv.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.