Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1913, Side 60

Skírnir - 01.01.1913, Side 60
60 Danmerkur og Noregs saga próf. Edv. Holms. Siðan segir Holm frá hinni innri sögu þessara landa í öllum hennar greinum, svo sem hluttöku konungs í stjórn landsins, áhrifum hinna helztu manna, »stórmenna«, á hana. Hann lýsir embættismönnunum, réttarfarinu, landbúnaðin- um og ritum og ræðum um búskapinn, viðleitni stjórnar- innar til þess að efla akuryrkju og jarðrækt og endurbót- um einstakra manna í þá átt. Hann skýrir frá prísum, iðnaði og verzlun og umræðum manna og ritum í þá áttr hagfræðislegum frumreglum stjórnarinnar, verksmiðjum og ýmsum stofnunum, tilraunum stjórnarinnar til þess að styðja innlendan iðnað einkum gegn samkepni frá útlöndumr iðnaðarfélögum, tilraunum stjórnarinnar til þess að efla verzlun og siglingar bæði með verzlunarsamningum og með aðstoð sendiherranna. Hann skýrir frá verzluninni bæði í Danmörku og í hertogadæmunum, í Noregi og á Islandi, í Færeyjum og á Grænlandi, í Kaupmannahöfn og í Bergen og í öðrum kaupstöðum ríkjanna, siglingum milli kaupstaðanna, kornverzluninni við Noreg, vöruflutningum frá Danmörku og Noregi suður um Miðjarðarhaf. Þá lýsir hann einnig verzlunarstéttinni i Kaupmannahöfn, ástandinu og lífinu í kaupstöðunum í Danmörku og Noregi, húsaskipun og lifnaðarháttum. Hann lýsir fiskiveiðum og öðrum at- vinnuvegum, sem enn hafa eigi verið nefndir, og umhyggju fyrir fátækum og veikum. Hann lýsir fjárhagsástandinu bæði í Danmörku og Noregi. Hann skýrir frá her og flota, og kostnaðinum við herbúnaðinn bæði á sjó og landi. Hann lýsir kirkju- og trúarmálum, vísindum og listum, og framkomu stjórnarinnar gagnvart þeim. Hann lýsir hinu andlega lífi, bókmentum, skoðunum manna á ýmsu, sem hafði pólitíska þýðingu, þjóðlega og mannfélagslega, t. a. m. betri mentun kvenna. Hann lýsir endurbótum á móður- málinu og tilraunum til að hreinsa það. Hann lýsir lífl konunganna og ættmanna þeirra, hirðlífinu, þokka almenn- ings og áliti bæði á hinum konungbornu mönnum og stór- menni því, er sat að stjórnarstörfum. Þetta litla ágrip af nokkru efni sögunnar sýnir hve víðtæk hún er og hve mikinn fróðleik hún hefir að geyma;.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.