Skírnir - 01.01.1913, Side 62
62
Danmerkur og Noregs saga próf. Edv. Holms.
sloppið svo vel hjá allri kúgun og ánauð stjórnar og æðri
stétta sem á íslandi og í Noregi.
Prófessor Holm ritar að tiltölu jafnt um Noreg sem
um Danmörku, og hann skygnist um í öllum þeim lönd-
um, sem lágu undir danska og norska ríkið. Hann ritar
bæði um hið helzta í sögu hertogadæmanna, sem Dana-
konungar áttu yfir að ráða, og um hin fornu lönd norsku
krúnunnar, Færeyjar, ísland og Grænland. Hann getur
einnig um nýlendur eða eignir Dana í öðrum heimsálfum.
Prófestor Holm getur eðlilega eigi ritað mjög langt
um fsland í sögu sinni, en með kinnroða megum vér
íslendingar játa, að lýsing hans á ástandinu á íslandi á 18.
öld, verzluninni og efnahug landsmanna er hið bezta yfir-
lit yfir sögu landsins á þeim tíma, sem enn hefir verið
ritað. Alls er það hér um bil 60 bls. Enginn hefur ritað
um þetta af svo víðtækri þekkingu sem hann, enginn skoð-
að það og dæmt svo í sambandi við sinn tíma og ástandið
annarstaðar sem hann. Ohlutdrægni hans og réttlæti kem-
ur þar fram sem annarstaðar. Hann áfellir stjórnina fyrir
ýinsar gjörðir hennar, en tekur lika fram hina lofsverðu
viðleitni hennar á síðari hluta 18. aldar til þess að rétta
við hag landsmanna. Alls veitti konungur 84562 ríkisdali
til þess að styrkja fyrirtæki Skúla Magnússonar til efling-
ar iðnaði á íslandi og til framfara fyrir landið. Um ís-
lendinga ritar hann með samkend í öllum þeim hörmung-
um, sem yfir landið dundu á 18. öldinni.
íslandi var eins og Noregi betur stjórnað á einveldis-
tímanum en áður.
Það segir sig sjálft, að prófessor Holm nefnir eigi
marga íslendinga í sögu sinni; hann lýsir að eins tveim-
ur nánar, Skúla Magnússyni og Jóni Eiríkssyni. Saga hans
er um hag landsins og viðgang á 18. öldinni; það lá því
fyrir utan þau takmörk, sem hann hafði sett sér, að nefna
marga íslendinga.
Prófessor Holm hefir með þessari miklu sögu sinni
rutt braut um sögu Dana og Norðmanna, sem seint mun
fyrnast, og hann hefir greitt veginn fyrir þeim, sem ritar