Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 68

Skírnir - 01.01.1913, Page 68
Ritfregnir. «8 „Dipl. III. 3“ þýði. 2) Hann aðgœtir þar af leiðandi ekki, hvort tilv. €1. sé rétt. 3) Hann aðgœtir ekki, hvort tilv. staður sé í Dl. III. 3. 4) Hann lœtur G. Vigf. vitna í rit, sem kemur út meir en 20 ár- um eftir útkomu Cl. og 4—7 árum eftir andlát Guðbrands! Yið aðgerð vitnar JÓ. i Dl. V. 145. Við atgörð vitnar Cl. i Dipl. Y. 145., það er atveg eins og fyrra dæmið. Við orðið aflangr vitnar Cl. i ísl. Annala ár 1414 (auðvitað AM.-út- gáfuna). JÓ. tekur þá tilvitnun upp. Tilvísunin er röng í Cl. JÓ. hefir ekki haft fyrir þvi að prófa þetta, og eru þó ísl. annálar auðvitað hér í Landsb.safni. Við aðalkelda vitnar Fr. i Karla Magn. s. bls. 422, en Cl. i bls. 442. Úr þessu verður hjá JÓ. 4, 2. Gretur verið prentvilla, en ýmsum tilgátum má um þetta leiða eftir að séð er sam- vizkusemi JÓ. I AM. safni er handrit merkt 656. Það hafði ekki verið gefið út, þegar a-in komu út í Cl., og hann vitnar þvi i handritið. Fr. og JÞ. vitna í útgáfu handritsins, sem gefið var út, þegar 2. útg. Fr. kom og Spm. JÞ. JÓ. vitnar í hvorttveggja á vixl, prentaða útg. handritsins og handritið sjálft. Skyldi JÓ. hafa lesið handritið? Langt í frá. Hann vitnar i handritið, þegar hann tekur orð, sem i því eru, frá Cl., en i prentuðu útgáfuna, þegar hann fær orðin hjá Fr. eða JÞ. Og hve nær hefði JÓ. átt að lesa handrit i AM. safni í Khöfn ? Þó Iætur hann heita svo, að hann noti handrit þetta, en hann hefir ekki gert það, heldur Guðbr. Vigfússon. Og úr því að JÓ. hefir ekki og getur ekki hafa notað þetta handrit, þá á hann ekki að vitna í það, heldur í Cl. En þessi dæmi eru ekki sérstök. Þau og mörg önnúr koma upp um höfundinn, hversu hann skreytir sig með lánsfjöðrum án þess að hann geti þess. Sjá t. d. o. »ösnulegr steinni i JÓ. sbr. við Cl. JÓ. tilgreinir sjaldnast heimild fyrir því, hvar þau orð finnist í rit- um, er hann tekur í bók sina, né heldur, að þau séu tekin frá Fr., Cl., JÞ., EJ. o. s. frv. Stundum sýnir JÓ. þó rögg af sér og ritar npp tilv. eftir orðabókunum, og ferst það þá oft eins og lýst hefir verið. En oft -er það, að JÓ. nennir ekki að rita tilv. heimildar sinnar upp að fullu og öllu, heldur lætur sér nægja að hripa upp bókartitilinn, en sleppir hindi og hlaðsíðu. Við o. afdeilingr vitnar Fr. t. d. i Bps. I. 801 (= Biskupas. I. b. bls. 801). JÓ. nennir ekki að skrifa upp nema „Bps.“, sleppir bindi og bls.! Nú eru Bps. í 2 bindum, texti samtals yfir 1600 hls., svo að tilvitnun JÓ. er dágóð. Við orðið afskyld vitna Fr. og Cl. i DI. I. 273, og tilv. er laukrétt. Hér skrifar JÓ. upp að eins „DI“, sleppir líka bindi og bls. DI. er komið út i 9 heilum bindum (að texta til) og það 10. er á leiðinni, og alls texti um 7000 bls.! Ætli það stæði ekki í JÓ. að finna orð eftir þess konar tilvitnun? Ef tilvitnun er ónákvæm hjá heimildarmanni JÓ., þá gengur sama ónákvæmnin aftur hjá JÓ., venjulega i verri mynd. Við o. aðálmein vitnar Cl. t. d. i „Fms. VI (in verse = i vísu)“. JÓ. vitnar að eins í „Fms.“, sleppir bæði bindi

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.