Skírnir

Ukioqatigiit

Skírnir - 01.01.1913, Qupperneq 69

Skírnir - 01.01.1913, Qupperneq 69
Ritfregnir. 69 og að orðið sé í visu. Úr þvi að JÓ. nennir ekki að rita upp tilv. heimildarmanna sinna, mun liann þá nenna að prófa, hvort tilv. séu réttar hjá þeim ? Þessn héfir verið svarað með dæmum. Tilvitnanir JÓ. eru flestar á borð við þær, sem greindar voru. Grágás, Sturlunga, Grislas., Njála, Gulaþ.lög, Frostaþ.lög, Rímhegla o. s., frv. eru t. d. nær alt af greindar án kapítula eða bls. Það sýnist liggja í augum uppi, að JÓ. eigi að tilgreina, úr hvaða orðabók hann tekur þau orð, er hann hefir ekki aðra heimild greinda að og sannprófaða í bók sinni. En þetta gerir JÓ. örsjaldan. Hann er svo sem ekki að geta þess, þótt hann taki orð úr Fr., Cl., Spm. JÞ. o. s. frv., þótt hann hafi enga aðra heimild. Sjá t. d. o. aftakalítill, afspraki, afspýttr hjá JÓ. sbr. við Cleasby. Eg gæti nefnt hundruð af slikum dæmum, ef rúm leyfði. Einstöku sinnum vitnar JÓ. í Fr.r Cl., EJ., Spm. JÞ., án þess að nokkur sérstök ástæða sýnist til þess framar en annarstaðar, þar sem hann lætur það ógert. Ef þær tilvitn- anir eru ekki gerðar i hugsunarleysi, þá er ekki unt að ætla þær gerðar í öðru skyni en því, að menn skuli af þeim ráða, að hvergi annarstaðar hafi bann óprófað tekið úr Cl., Fr. o. s. frv., að menn skuli halda, að alt annað, sem hann tekur frá þeim, ýmist rétt, ýmist aflagað, sé bygt á sjálfs hans vinnu og rannsókn. DI. segist JÓ. hafa notað. Eg man nú satt að segja ekki eftir fleiri tilv. i það en þeim, er eg hefi áður nefnt, en vil þó ekki aftaka neitt um það. En JÓ. hefir ails ekki notað 01., ekki einu sinni registrin við það. Eg nefni að eins örfá orð, sem flest eru i registrum DI., en öll vanta hjá JÓ.: arfþurð, áttungakvartel, afmerkja (fé), afmörk- un (fjár), afsegja (dóm), afskafningr, alkirkjuskyld, almenningsbók, armskífa, armjárn, afmáning, alkanna, altunna, auk mýmargra fleiri. Eg tek það þegar fram, að JÓ. tekur allar þær orðasamsetning- ar, sem bann veit, enda er það auðvitað sjálfsagt i slikri hók. Jóns- bók (lögbókina) segist JÓ. nota. Þetta eru víst ekki alger skrök, en þó vantar þaðan orð, t. d. auðnáhús (Mannh. 16. k.)* 1), argafas rang- þýtt, vantar eina merkingu í almenning2) o. s. frv. Járnsiða er ekki nefnd hjá JÓ. Rímur fornar ekki heldur. Og svona mætti rekja lát- laust. Illa notað það sem notað var, og margt látið ónotað, er nota bar. Þó kastar tójfunum, þegar JÓ. kemst í nýrra málið, þegar Cl., Fr. o. s. frv. sleppa hendi sinni af honum. Hann virðist fyrst og fremsfc litla hugmynd hafa um þau hjálpargögn, sem til eru. Það er t. d. t) Orðið er líka i Grg. I a. 186, II. 398, og má af þessu sjá, ásamt mörgu öðru, að JO. befir ekki orðtekið Grágás. Reyndar segist hann (í form. 1. útg. ljóðm. Kr. J.) hafa leikið sér að þvi á skólaárum sín- um að rannsaka, hversu oft myndin „of“ og myndin „umb“ komi fyrir i Grágás! 2) Síðarnefnt sýnir m. a. að JÓ. hefir ekki notað orðasafn Y. F. við Grágás.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Skírnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.