Skírnir - 01.01.1913, Page 74
14
Ritfregnir.
svo að eg muni eftir, illmælapésa JÓ. um Ben. Gröndal. Og ekki sýnist
hann hafa orðtekið latnesku málfræðina sina, úr þvi að o. ávarpsfall
vantar i orðahók hans.
Skáldrit J. Guðl. notar JÓ., eða þykist nota, en alls eigi þeirra
Einars Benediktssonar, Einars Hjörleifssonar, Gruðmundanna, Magnús-
sonar og Guðmundssonar eða Þorsteins Erlingssonar. Islenzkar gátur
o. s. frv. eða Jrjóðsögur (utan JÁ.), Huld, Fornyrði löghókar P. Yídal.,
Safn til sögu Islands, Biskupasögur Jóns Halldórss., rit Gruðbrands hisk.
prentuð (t. d. Morðbréfabækliuga), rimur o. s. frv. segist JÓ. eigi eiuu
sinni nota. Kit próf. Ágústs Bjarnasonar notar hann, en t. d. ekki rit
dr. Gruðm. Einnbogasonar, og eru þó líka mörg ný orð í þeim. Dómasafn
landsyfirréttarins nefnir hann ekki heldur, en þar eru mýmörg „teknisk11
lagaorð. Hann þykist hafa notað formálahækurnar, hæði M. St. og L. E.
Svbj. og mina, en i háðum eru ýms lagaorð, sem eg hefi rekið mig á
þar, en JÓ. vantar. . Bragfrœði Helga Sigurðssonar, Rvík 1888, hefir
JÓ. ekki notað, ekki einu sinni bragháttaskrána framan við hókina.
Því vantar öll bragheiti, nema úr Eddu, því að þau lánar JÓ. hjá Cl.
og Er. Úr hragfræði HS. vantar JÓ. t. d bragnöfnin: aðalhendinga-
sneitt, aðalhendingaliður, aðalhent, áldýra, aldýruháttur, alfleigt,
álfrum-hent, a-ályktað, a-sneitt, a-hending, alkliðar, alodd-hent,
a-hendmg, alsneitt, alvíxlað o. fl.
JÓ. hefir ekki einu sinni getað ritað upp úr orðabókunum. Hann
sleppir t. d. yfir 200 orðum, sem Sch. hefir, sumum algengum, mörgum
úr Spm. JÞ., nokkrum úr Fr., Cl., EJ. og BH. JÓ. vantar orð eins og
alsystir (álbróðir hefir hann), alsystkin, árennilegur, aftót [aftór á e. t. v.
að vera aftót. Er e. t. v. annaðhvort prentvilla, eða JÓ. hefir mis-
lesið BH., sem er nokknð leturdaufur], aðfararréttur, a-hœfi, a-lög,
a-heimild, a-beiðandi, a gerð, áfrýjunarréttur, á-leyfi, á-upphœð,
aftœti, árhólmi, árvöxtur og fjölda samsetninga á ár og árs, t. d.
ársvextir (hefir því t. d. ekki orðtekið fjárl. eða landsreikningá),
álandsveður, aflandsveður, a-vindur, a-stormur, átroðsla, aðþrengja,
aðþrenging (aðþrengdur hefir JÓ.)* 1), afmælisgildi, afmœlisveizla,
afmœlisbragur (shr. braginn i Óðni Y. 90), afmœlissjóður (Stj.tið.),
arfavisk2), aragrúi o. s. frv., o. s. frv.
Nú þegar hefi eg rekist á eða fundið i orðabókum og orðasöfnum
og fáeinum bókum öðrum um 1100 orð, sem JÖ. vantar, mörg mjög tíð.
Rúmsins vegna get eg ekki tilfært fleira hér.
III. Annaðhvort er JÓ. ódæma-skeytingarlaus og hroðvirkur eða
hann skortir alla hugmynd um þær kröfur, sem hver skynbær maður
*) Þetta sýnir, að JÓ. hefir rannsóknarlaust bara hripað orðin upp
i handrit sitt eftir því sem hann mundi þau þann og þann svipinn, og
jafnvel ekki nent að líta i orðasöfnin, því að mjög mörg þessara orða
eru einmitt i orðabókum eða orðasafni Sch.
*) Stafsetningarorðhók B. Jónss. A-in taka þar yfir 3 bls., en JÓ.
hefir ekki nent að lita yfir þau!