Skírnir - 01.01.1913, Blaðsíða 83
Frá útlöndum.
83
friðarsamningunum að tryggja trúarbrögðum sínum rétt í landinu,
þótt það kæmist undir stjórnmálayfirráð ítala. Hið sama á sór
stað i öðrum löndum í Norður-Afríku, sem Tyrkir hafa mist um-
ráð yfir, Egiptalandi, Túnis og Marokkó.
Balkanstríðið. Eftir að svo var komið, sem hér er frá sagt
á undan, hófst Balkanstnðið, og hefir það staðið yfir frá því í
miðjum október og fram í desember. Það er eitt hið grimdarfylsta
stríð, sem háð hefir verið, og mannfallið orðið gífurlegt. Það er
talið, að 350 þúsundir manna hafi fallið báðumegin ; Tyrkir hafi
mist 160 þús., Búlgarar 110 þús., Serbar 50 þús., Grikkir 20 þús.
og Svartfellingar 18 þús. Stórveldin höfðu í orði kveðnu reynt að
hindra stríðið og gáfu út yfirlýsingu um það áður en farið var á
stað, að hvernig sem stríðinu lyki, skyldu landamerki öll á Balkan-
skaganum haldast óbreytt eftir sem áður. En frá sambandsríkj-
anna hálfu var stríðið hafið til landvinninga af Tyrkjum, og létu*
þau það þegar uppi, og sögðu tilefni stríðsins að hrinda oki Tyrkja
af hinum kristnu þjóðflokkúm, sem enn ættu undir því að búa.
Hér er það ekki ætlunin að skýra frá einstökum orustum. En
sambandsþjóðirnar héldu þegar með her inn á Tyrkland úr þrem-
ur áttum. Og alstaðar hrukku Tyrkir fyrir. Búlgarar fengu fyrst
viðnám, eftir blóðugar stórorustur við Kirk Kilisse og Lule Burgas,
við Chataljavígin, sem eru um 5 mílur vestur frá Konstantínópei,
og ná þau vígi þvert yfir tangann milli Marmaranafsins að sunn-
an og Svartahafsins að norðan, en austanvert á þeim tanga er
Konstantínópel. I öðru lagi settist her Búlgara um Adríanópel, en
þar voru aðalv/gstöðvar Tyrkja þeim megin. Serbar hóldu suður
eftir Makedóníu og tóku Yskyb, sem er forn höfuðborg Serbíu.
Grikkir tóku Saloniki, sem er önnur stærst borg í Tyrklandi og
verzlunarborg mikil. Síðan tóku Grikkir og Serbar í sameiningu
borgina Monaatir. En aðalviðureign Svartfellinga og Tyrkja hefir
verið við Skútari. Héraðinu þar umhverfis höfðu Svartfellingar
hugsað sór að auka við land sitt. Höfuðorusturnar hafa staðið um
þessar borgir, sem hór hafa verið nefndar. En svo má heita að
alt landið austur að Chataljavirkjunum væri í höndum sambands-
þjóðanna, er vopnahlé var samið snemma í desember. Þó höfðu
Tyrkir ekki gefið upp vörnina í Adríanópel fyrir Búlgurum, ekki
í Skútari fyrir Svarttellingum, og ekki í Janína, er Grikkir sátu
um. Serbar höfðu þá haldið meö her vestur yfir Albaníu að hafnar-
bænum Durazzo við Adríahafið og tekið hann. Tyrkir höfðu beðið-
6*