Skírnir - 01.01.1913, Page 86
86
Frá útlöndum.
arinnar í þá átt, að halda fram yfirráðum Ósmannaþjóðflokksins,
og þjóðerni hans á kostnað allra hinna, sem hratt stríðinu á stað.
■Þetta kom fram á öllum sviðum, í skólamálum, kirkjumálum o. s.
frv. Tungumál hinna þjóðflokkanna áttu að lúta í lægra haldi
fyrir tyrkneskunni. Sambandið var myndað gegn Tyrkjum, að því
er sambandsþjóðirnar sögðu, til varnar fyrir þjóðerni þeirra og trú.
Þær gerðu sór í byrjuninni sem mest far um, að láta líta svo út
sem hér væri um trúarbragðastríð að ræða.
Tyrkland er eins og belti þvert yfir Balkanskagann, frá Marm-
arahafinu og Svartahafinu að austau og vestur að Adríahafi. Vest
ast er Albanía, þá Makedónía og Þrakía austast. Albauía er fjalla-
land og Albanir sórstakur þjóðflokkur. Þeir lifa hálfgerðu villi•
mannalífi, en eru hraustir og herskáir mjög, álíka og nábúar þeirra
í Montenegró. Þrír fjórðu hlutar Albana eru Múhameðstrúar, en
hinir eru kristnir. Albanir hafa altaf haldið fram sjálfstæði sínu
gegn Tyrkjastjórn, og er Ungtyrkir vildu draga þá meir en áður
undir forræði stjórnarinnar í Konstantínópel, mótmæltu þeir því
og hófu loks uppreisn, eins og fyr segir. En nýja stjórnin í Kon-
stantínópel, er við tók af Ungtyrkjum, hafði sætt þá við sig, og
er ófríourinn hófst, stóðu þeir með Tyrkjum. Þeim var miklu
ver við yfirráð Serba og Montenegrómanna, er ætluðu að skifta
Albaníu ntilli sín ásamt Grikkjum, en við yfirráð Tyrkja. Grimdin,
sem Serbar og Albanir beittu hvorir gegn öðrum í stríðinu, var
hroðaleg, einkum frá Serba hálfu, sem voru hinum yfirsterkari.
Þegar svo að sýnt var, að miklum hluta Tyrklands mundi verða
skift upp milli sigurvegaranna, 1/stu Albanir yfir, að þeir mynduðu
sórstakt ríki. Foringi þeirra í þeim samtökum heitir Ismael Khemal,
aldraður maður, er áður hafði verið landstjóri Tyrkja í Trípólis, en
á síðustu árum hafði hann fengist við stjórnmál heima fyrir og
átt sæti á þingi Tyrkja. Hann gekst fyrir því, að þjóðfundur var
haldinn i Valóna og þar 1/st yfir sjálfstœði landsins og bráðabirgða-
stjórn kosin. Sjálfur varð Ismael Khemal formaður þeirrar stjórn-
ar. En hvernig þeim málum 1/kur er enn ósóð, þvi Serbar hafa
fariö með her vestur yfir Albaníu og tekið bæi vestur við Adríaháf.
Makedónía er að stærð tveir þriðju hlutar alls Tyrklands og
íbúatalan er þar 3 miljónir, eða helmingur af íbúum Tyrklands.
Hún er miðhluti Balkanskagans og þar ægir saman öllum þeim þjóð-
flokkurn, sem á Balkanskaganum búa. Tyrkir eru taldir þar hálf
miljón, og eíu þeir allir Múhameðstrúar. Þá eru Grikkir þar taldir
fjórði þartur úr miljón, og eru þeir allir kristnir. Slavneskar þjóðir,