Skírnir - 01.01.1913, Síða 89
Frá ntlöndum.
89
Pétur, er af Kara-Georgsættinni og kom til ríkis 1903, og hafði þá
fyrirrennari hans verið myrtur.
Serbar hafa gengið hraustlega fram nú í stríðinu, eins og
Búlgarar, og hefir her þeirra reynst miklu betur en við var búist.
Það var markmið Serba, að ná undir sig landi suður að Adríahafi.
Nú sem stendur nær Serbía hvergi til sjávar, og er það afarmikið
mein fyrir verzlun landsins. Serbar telja sér því lífsnauðsyn að
eignast höfn eða hafnir við Adríahafiö, og nú í ófriðnum hafa þeir
tekið þar hafnarbæinn Dúrazzó. En stjórn Austurríkis og Ung-
verjalands tók þá fram í fyrir þeim, kvaðst alls ekki þola það, að
Serbar fengju fastar stöðvar við Adríahafið og ógnaði með stríði, ef
þeir hyrfu ekki frá þeirri fyrirætlun. En Serbar hafa haldið sinui
stefnu eftir sem áður, og er því máli ólokið enn. Það er sagt, að
Rússar styðji Serba að málum, eða ætli að gera svo, ef til ófriðar
komi við Austurríki út af þessu, en Austurríki hefir aftur á móti
trygt sér fylgi Þýzkalands og Ítalíu, sem ásamt því mynda þrí-
veldasambandið. Hefir ófriður út af þessu verið yfirvofandi, og
svo er enn. Austurríki hræðist það, að veldi Serba vaxi, vegna
þess, að Serbar eru mjög fjölmennir, eins og áður segir, þar í
suðausturhéruðunum, og mundu þau héruð, ef Serbíu yxi mjög
fiskur um hrygg, við fyrsta tækifæri ganga undan Austurríki og
sameinast Serbíu. Um það hafa og lengi kveðið við háværar raddir
i Serbíu, að svo ætti að vera. Þegar Austurrlki kastaði eign sinni
á Bosníu og Herzegovinu 1908, var því fastlega mótmælt frá hálfu
Serbíu, en stjórn Austurríkis hafði þau mótmæli þá að engu. Nú
í stríðinu hafa Serbar sýnt, að meira tillit verður að taka til þeirra
en áður hefir verið gert, og ef Rússar fylgja þeim að málum, þá
hafa þeir afl á bak við sig, sem mikils má sín um þrætumálið.
En það hefir þá snúist upp í deilu milli tveggja kynflokka, Slava
og Germana. Rússland er höfuðríki slavneska kynflokksins, og
Rússakeisari h'tur á sig eins og verndara hans. Slavnesku ríkin á
Balkanskaganum hafa líka notið hjálpar frá Rússum til þess að
kasta af sér yfirráðum Tyrkja, og féngju þau yfirrhöndina á Balk-
anskagauum nú, er alment litið svo á sem áhrif Rússa þar mundu
fara vaxandi. En alt er óútsóð nm það enn, hve mikið verður úr
þessari deilu milli Austurrikis og Serbíu, og hitt þó enn óvissara,
hvernig henni muni lykta. Hitt má telja víst, að Serb/a hafi upp
úr stríðinu við Tyrki mikinn landauka suður á bóginn. Það er
talað um að gera borgina Yskyb, sem Serbar hafa tekið nú í stri'ð-